Ský - 01.08.2007, Page 44

Ský - 01.08.2007, Page 44
 ský Um tveimur mánuðum áður en málefni parsins var í hámæli komst upp um ungan þjóðþekktan karlmann sem reyndi að smygla inn til landsins tveimur kílóum af kókaíni. Vakti magn fíkniefnanna mikla athygli og ekki hvað síst fyrir það að fyrrum Idol-stjarna, sem hafði sungið sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar fyrir nokkrum árum, var þar að verki. Ekki er ljóst hvort Idol-stjarnan var burðardýr en ekki er það þó talið ólíklegt. Fjölskylda mannsins var harmi slegin yfir fréttunum og taldi kærasta hans öruggt að hann hefði verið notaður sem burðardýr því hún hefði ekki vitað til þess að hann væri í neyslu. Eilíf barátta „Þetta fólk er ekki áberandi á yfirborðinu, þeir sem eru að nota þessi burðardýr reyna að hafa þau eins venjulega jóna og hægt er svo þeir falli inn í fjöldann. Þetta er oft fólk sem er í kröggum og skuldar eða er í einhvers konar vandræðum en það er ekki víst að neinn viti af því. Oft er verið að pína þetta fólk til að gerast burðardýr en það er ekki samasemmerki um að burðardýr líti út á ákveðinn hátt. Þó nokkur hluti af fíkniefnum kemur ár hvert til landsins en stærstur hlutinn kemur með burðardýrum og í flestum tilvikum þykist viðkomandi ekki vita hvað var í töskunni sinni. Það er allur gangur á hvaðan fólk er að koma, þetta er öll flóran. Af eðlilegum ástæðum kemur mikið í gegnum Kaupmannahöfn en það er vegna fjölda véla þaðan og sumir eru að koma annars staðar frá, með millilendingu þaðan. Amsterdam er þekktur dreifingarstaður fíkniefna í Evrópu og kannski á eitthvað sem hingað kemur uppruna þar. Þeir sem nota burðardýr reyna að villa um fyrir okkur og þeir reyna að vera skrefi á undan en við erum alltaf með vökul augu. Þetta er eilíf barátta,“ segir Kári Gunnlaugsson, aðaldeildarstjóri tollgæslunnar á Suðurnesjum. Staða burðardýrsins góð í undirheimunum maður sem þekkir líf undirheimanna vel og hefur kynnst heimi burðardýrsins af eigin raun sagði blaðamanni eftirfarandi: „Það eru til fleiri en ein tegund af burðardýrum en best er að skipta þeim í tvo hópa; annars vegar þeir sem samþykkja að bera efnin til landsins fyrir greiðslu (yfirleitt ungt fólk sem er til í að taka áhættu til að redda fjárhag, oft skólafólk) og hins vegar fíkniefnaneytandinn sem er að fjármagna eigin neyslu (eða er skikkaður til verksins vegna verulegra skulda vegna neyslunnar). Oft hagstæðara að nota stelpur - Sú meginregla gildir með báða hópana að burðardýrið er talið laust allra mála gagnvart eiganda efnanna ef upp um það kemst en þetta er þó ekki algilt. Það er talið að viðkomandi hafi greitt sitt með tilrauninni einni saman, svo framarlega sem fagmannlega hefur verið staðið að henni og viðkomandi segi ekki frá í yfirheyrslum og vísi ekki á neina aðra, enda á viðkomandi yfir höfði sér barsmíðar að fangelsisdvöl lokinni eða í henni ef hann hefur kjaftað. Staða burðardýrsins er ekki slæm í undirheimunum (ef það hefur haldið sér saman). Það er nú einu sinni þannig í þessum heimi að þeir sem eru í mestum metum eru einmitt þeir sem smygla og höndla með fíkniefni og inni í fangelsum eru það þeir ásamt morðingjum sem tróna á „toppnum“. Þeir sem aftur á móti kjafta „tala og tala og smygl M yn d: M B L/ S ve rri r V ilh el m ss on . Úr Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.