Ský - 01.08.2007, Page 47
ský 7
Óskar hét fullu nafni Óskar Bertels Magnússon en honum virðist
hafa verið gefið nafnið Óskar Bartel og þannig er hann skráður í
opinberum gögnum fyrstu æviár sín en síðar breytist millinafnið í
Bertels.
Magnús átti óvenju litríka ævi í samskiptum við konur því hann
átti mýgrút barna með mörgum konum, sumum þeirra bjó hann
með en átti lausakaup við aðrar. Óskar varð frumraun hans á þessu
sviði en Magnús mun hafa verið í vinnumennsku á Sauðanesi líkt og
Margrét þegar kynni þeirra hófust.
Magnús varð nafntogaður hestamaður og gleðimaður í Reykjavík
á fyrri hluta tuttugustu aldar sem bjó yfirleitt við kröpp kjör og mikla
ómegð á útjaðri samfélagsins. Einn sona hans og hálfbróðir Óskars,
Sigurður A. Magnússon rithöfundur og hálfbróðir Óskars, hefur lýst
bágum aðbúnaði í uppvexti sínum í Reykjavík í mörgum bókum
eins og Undir kalstjörnu og Möskvum morgundagsins og er Sigurður
líklega þekktastur af börnum Magnúsar.
Óskar var því elstur barna Magnúsar en fjórða barn móður
sinnar. Margrét hafði átt þrjú börn vestur í Bolungarvík með tveimur
mönnum áður en hún kynntist Magnúsi en með honum eignaðist
hún síðan þrjú börn til viðbótar. Ekki ól Margrét öll sín börn upp
sjálf því a.m.k. eitt þeirra varð eftir fyrir vestan þegar hún fór þaðan
og Óskar ólst upp að einhverju eða mestu leyti í Brekknakoti í
Þistilfirði hjá vandalausum.
Óskar hafði áhuga á að komast til betri kjara og fór til náms á
Hvanneyri þegar hann hafði aldur til og lauk þaðan námi.
Hann settist að í Reykjavík árið 1941 í Blesugróf þar sem
einyrkjar og fátæklingar höfðust við utan borgarmarkanna í einhvers
konar sjálfsmennsku eða þurrabúðum og hefur Tryggvi Emilsson
rithöfundur dregið upp átakanlegar myndir af fátæktarbasli
Blesugrófarbúa í bók sinni Baráttan um brauðið.
Óskar kynntist eiginkonu sinni Blómeyju Stefánsdóttur á þessum
árum en þau eignuðust saman einn son, Hallmar Stálöld, sem
fæddist árið 1941. Fyrir átti Blómey eina dóttur, Sigríði, sem fæddist
á Siglufirði 1939. Hallmar er samkvæmt Ættum Þingeyinga fæddur
á Raufarhöfn.
Hún sagði nei en hann sagði jú
Í bók Ómars Ragnarssonar, Mannlífsstiklur, er sagt frá kynnum
Ómars af Óskari en þar er einnig viðtal við Blómeyju um upphaf
kynna þeirra og þar segir Blómey að hún og Óskar hafi kynnst á
dansleik á Kópaskeri þar sem Óskar bauð henni upp í dans og sagði
fljótlega: „Viltu koma með mér og vera stúlkan mín?“
Blómey kvað nei við en Óskar sagði: „Jú“ og þau áttu eftir að búa
saman í 54 ár þótt Blómey segi ítrekað í viðtölum sínum við Ómar
að hún hafi aldrei verið hrifin af Óskari.
listamaðurinn í heiðinni
M
yn
d:
L
ei
fu
r
Þ
or
st
ei
ns
so
n.
Kastalinn í Blesugróf.