Ský - 01.08.2007, Page 52
52 ský
Bara að þetta verði ekki önnur gáta eins og Palme-morðið.“ Þetta var setning sem heyrðist víða í Svíþjóð þegar það spurðist út að kvöldi 10. september 2003 að Anna Lindh
utanríkisráðherra Svía væri helsærð eftir banatilræði fyrr um
daginn.
Morðið á Olof Palme forsætisráðherra hefur legið eins og mara
á Svíum síðan 28. febrúar 1986 - var það samsæri eða bara verk
geðtruflaðs manns? Morðingi Lindhs er truflaður á geði þó að
serbneskt þjóðerni hans hafi hugsanlega átt þátt í óvild hans í garð
Lindh.
Bæði Palme og Lindh voru jafnaðarmenn sem mikið bar á, jafnt
heima sem heiman. Ferill Lindh var örugglega aðeins á byrjunarreit
þó hún hefði þegar náð langt - fæstir efuðust um að hún ætti eftir að
verða flokksleiðtogi og forsætisráðherra, auk þess sem störf á erlendum
vettvangi hefðu vísast blasað við ef hún hefði horft í þá átt.
Palme: Aðdáun og hatur
Olof Palme var stjórnmálamaður sem vakti aðdáun stuðningsmanna
og hatur andstæðinga - það stóð engum á sama um skoðanir
hans og manninn sjálfan. Kjell-Olof Feldt, flokksbróðir Palmes,
samstarfsmaður og fyrrum fjármálaráðherra, hefur sagt frá heimsókn
þeirra í tennisklúbb þar sem Palme átti örugglega fáa stuðningsmenn:
„Það var óþægilegt að sjá hatrið sem skein úr augum fólks í salnum
þegar það kom auga á Palme.“ Á flokkssamkomum var það þó oftast
botnlaus aðdáun sem blasti við.
Jafnaðarmaðurinn Palme fæddist 1927 á Östermalm í Stokkhólmi,
yfirstéttarhverfi, og það var ekkert í uppruna hans sem benti í
jafnaðarmannaáttina. Ýmsir hafa giskað á að þessi bakgrunnur hafi
gert Palme enn harðsnúnari en ella því honum hafi fundist hann
þurfa að sýna svo óyggjandi væri hvar hugur hans væri, hafi orðið
að vera meiri jafnaðarmaður en aðrir. Hann var ár í framhaldsnámi
í Bandaríkjunum, fór á puttanum um landið en las svo lögfræði við
Stokkhólmsháskóla.
Stjórnmálin urðu fljótt í fyrsta sæti og þar hafði hann allt til að
bera sem til þurfti: snöggur að svara fyrir sig, fluggáfaður, vel að
sér og fljótur að hugsa. Það sem andstæðingunum gat sviðið var
hve ósvífinn hann gat verið - eða eins og Feldt hefur sagt þá dugði
honum ekki að leggja andstæðinginn í gólfið heldur þurfti hann
að ganga svo frá honum að andstæðingurinn næði heldur ekki
andanum.
Palme var annálaður baráttumaður og ræðumaður, tendraðist
upp á fundum og í samræðum við fólk en kom alls ekki jafn vel fyrir
í nærmynd sjónvarpsins þar sem kaldblá augun gátu virst stingandi
og yfirbragðið hrokafullt. Hann var líka þekktur fyrir hirðuleysislegt
morðin á Olof Palme
og Önnu lindh
Tilræði við stjórnmálamenn:
sigrún Davíðsdóttir heldur hér áfram umfjöllun sinni um tilræði við stjórnmálamenn. að þessu sinni
segir hún frá morðinu á Olof Palme forsætisráðherra svía, sem hefur aldrei verið upplýst, og á Önnu
lindh utanríkisráðherra. morðingi hennar fannst fljótt og er nú vistaður á geðsjúkrahúsi.
Texti: Sigrún Davíðsdóttir
Myndir: Ýmsir
stjórnmál