Ský - 01.08.2007, Page 53

Ský - 01.08.2007, Page 53
 ský 53 útlit, leit alltaf út eins og hann hefði sofið í fötunum, bindið skakkt og hárið ógreitt. Samstarfsmenn hans sáu um að koma honum til rakara við og við þegar þeim þótti hárið orðið of bítlalegt. Hann varð einn af drengjum Tage Erlanders, leiðtoga jafnaðarmanna, og var löngu orðinn landsþekktur stjórnmálamaður þegar hann varð forsætisráðherra 1969, 42 ára að aldri sem á þeim tíma þótti bráðungur aldur í því embætti. Í þessari umferð sat hann fram á 1976, varð svo aftur forsætisráðherra 1982 og var í því embætti þegar hann var myrtur að kvöldi 28. febrúar eftir að hafa verið á bíó með Lisbet konu sinni. Stjórnmálamaður kalda stríðsins Palme var þekktur formælandi þriðja heimsins, hafði ferðast víða, heimsótti Castro á Kúbu, talaði máli Tékka þegar skriðdrekar Sovétmanna ruddust inn í Prag 1968 og ögraði Bandaríkjamönnum með því að taka þátt í mótmælagöngum gegn Víetnamstríðinu á þeim tíma þegar slagorð eins og „heimsvaldastefna“ var daglegt tungutak. Palme barðist hatrammlega gegn útbreiðslu kjarnorkuvopna, talaði gegn stjórn Francos á Spáni, gegn aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku og studdi málstað Palestínumanna. Á þessum tíma var Robert Mugabe vonarstjarna í Afríku og Palme var vinur hans – það væri óneitanlega forvitnilegt að vita hvaða skoðun Palme hefði á Mugabe núna og á heiminum yfirleitt. Hvaða augum sem menn líta hlutleysi Svía í seinni heimsstyrjöldinni þá hafa Svíar látið meira til sín taka á sviði alþjóðastjórnmála en aðrar Norðurlandaþjóðir og á sínum tíma var Palme holdtekning þessara afskipta, þekktur hvort sem var á Indlandi, Suður-Afríku eða Kúbu. Þessi alþjóðlegu umsvif hans ýttu enn undir skarpa afstöðu til hans hvort sem var heima eða heiman. Víða um heim eru nú götur og torg sem bera nafn hans – vitnisburður um áhrif og álit. Þunglyndur áður en hann var myrtur Vinir og samstarfsmenn hans hafa sagt frá því að Palme hafi verið þunglyndur mánuðina áður en hann dó, hann hafði lent í útistöðum við sænsk skattayfirvöld og þó þau mál leystust honum í hag virtist honum hafa fatast áhuginn hvort sem það hefði orðið til lengdar eða ekki. Hann var ekki mikið gefinn fyrir öryggisverði og þegar hann brá sér út með fjölskyldunni kaus hann iðulega að vera án þeirra. Þannig var það líka kvöldið þegar einhver kom aftan að honum og skaut tveimur Olof Palme var fæddur árið 127. Hann var myrtur á götu úti í Stokkhólmi að kvöldi 28. febrúar árið 186. Vinir og samstarfsmenn hans hafa sagt frá því að Olof Palme hafi verið þunglyndur mánuðina áður en hann dó.

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.