Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 55
ský 55
Þessa daga stóðu yfir heitar umræður um sænska evruaðild,
þjóðaratkvæðagreiðsla um málið 14. september, Persson
forsætisráðherra treysti mjög á Lindh sökum vinsælda hennar og hún
var óþreytandi að tala fyrir evrunni. Síðdegis ætlaði hún að finna sér
einhver föt til að vera í í sjónvarpskappræðum.
Í vöruhúsinu veittist maður að henni, lagði til
hennar með sveðju og hún hné niður helsærð
meðan maðurinn flýtti sér í burtu. Hún var
með meðvitund, bað vinkonu sína að hringja
í eiginmanninn en um nóttina lést hún af
áverkunum.
Það náðust myndir af tilræðismanninum og
tveimur vikum síðar var Mijailo Mijailovic tekinn
fastur. DNA-próf á hnífnum sem hann kastaði
frá sér og fötum sannaði gjörðir hans. Hann er
af serbneskum ættum, hefur verið óstöðugur á
geði og þegar hann játaði nokkrum mánuðum síðar sagðist hann
hafa verið veikur þessa dagana, ekki hafa sofið, heyrt raddir og farið
inn í bæ með hníf með sér. Þegar hann sá Önnu Lindh réðst hann
á hana. Ekkert bendir til að hann hafi setið fyrir henni heldur að
ódæðið hafi verið skelfileg tilviljun brjálaðs
manns þó hann virðist hafa vitað hver hún var
og borið til hennar haturshug. Mijailovic var
dæmdur í ævilangt fangelsi og síðan til vistunar
á geðsjúkrahúsi.
Það er lítið af skeleggum stjórnmálakonum
og sjónarsviptirinn að Önnu Lindh er því enn
meiri. Hún hafði þegar látið svo ærlega til sín
taka en ferill hennar hefði án efa orðið langur og
farsæll ef brjálsemi óviðkomandi manns hefði
ekki komið í veg fyrir að svo yrði.
Anna Lindh fæddist árið 157. Hún var myrt í verslunarmiðstöðinni NK í miðborg Stokkhólms hinn 10. september árið 2003.
Þegar Mijailo Mijailovic
sá Önnu Lindh réðst
hann á hana. Ekkert
bendir til að hann hafi
setið fyrir henni heldur
að ódæðið hafi verið
skelfileg tilviljun brjálaðs
manns.
sky
,