Ský - 01.08.2007, Side 56

Ský - 01.08.2007, Side 56
56 ský Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fer fram í fjórða sinn dagana 27. september til 7. október. Á skömmum tíma hefur hátíðin fest sig í sessi sem höfuðvígi alþjóðlegrar kvikmyndagerðar hér á landi og jákvæð umfjöllun í erlendum miðlum hefur borið hróður hátíðarinnar langt. Dagblaðið Boston Pheonix sagði dagskrána í fyrra eina þá „bestu á jörðunni“ og vefsíðan Stylus Magazine kallaði hátíðina „best geymda leyndarmálið á hátíðarúntinum.“ Aðstandendur hátíðarinnar eiga von á um 200 gestum erlendis frá; leikstjórum, kvikmyndaframleiðendum, fjölmiðlum, og sjálfboðaliðum sem hafa boðist til að starfa á hátíðinni, auk fjölda ferðamanna. Þessi mikli áhugi kemur kannski ekki á óvart í ljósi þess hversu metnaðarfull dagskrá hátíðarinnar er. Alls eru um 80 kvikmyndir á dagskránni og það vekur sérstaka athygli að nær allar þeirra, sem ekki eru sýndar sem hluti af yfirliti yfir feril ákveðins leikstjóra, eru frá þessu ári – 2007. Enda segist hátíðin leggja áherslu á glænýjar kvikmyndir og unga og upprennandi leikstjóra. Vitranir Keppnisflokkur hátíðarinnar er einungis skipaður myndum sem eru fyrstu eða önnur verk leikstjóra og í ár keppa fjórtán myndir um aðalverðlaun hátíðarinnar: Gullna lundann. Meðal áhugaverðra mynda í keppninni eru danska kvikmyndin Listin að gráta í kór (Kunsten at græde í kor) sem fjallar um hinn ellefu ára gamla Allan sem er að vaxa úr grasi í Danmörku á áttunda áratugnum. Önnur mynd sem gerist á áttunda áratugnum er enska kvikmyndin Stjórn (Control) sem er ævisaga söngvarans Ians Curtis sem gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Joy Division. Curtis stytti sér aldur einungis 23 ára að aldri og er fyrir löngu orðinn að hálfgerðri goðsagnaveru í rokkheiminum. Athygli vekur að tvær myndir í keppninni eru frá Ísrael (Japan Japan og Heimsókn hljómsveitarinnar), en einnig eru fulltrúar frá Íran, Argentínu, Grikklandi, Tékklandi og Bandaríkjunum svo fátt eitt sé nefnt. Nýju fötin keisarans? Heimildarmyndir setja nú sterkari svip á hátíðina en undanfarin ár. Fjórar myndir eru tileinkaðar stríðinu í Írak og fjalla um það frá ólíkum hliðum, auk þess sem sérstakt málþing um ástandið þar ytra mun fara fram. En myndirnar koma úr öllum áttum: Mynd um sérstakar rokk-sumarbúðir handa stúlkum – Stelpur rokka! (Girls Rock!) – grípur augað strax, og sömuleiðis Á elleftu stundu (The 11th Hour) þar sem Leonardo DiCaprio segir áhorfendum frá umhverfisástandi heimsins og reynir að leita lausna. Ætli DiCaprio ætli sér að fara fram í stjórnmálum? Saga hinnar fjögurra ára gömlu Mörlu Olmstead sem er rakin í Krakkinn minn gæti málað þetta! (My Kid Could Paint That) er einnig áhugaverð, en sú litla skaust upp á stjörnuhimininn fyrir myndir sem hún málaði og þóttu minna á verk Jacksons Pollocks og Picassos. Sjálfur dregur leikstjórinn enga ályktun, en myndin er gott innlegg í umræðuna um hvort nútímalist sé kannski ekkert nema nýju fötin keisarans. Schygulla og Kaurismäki Heiðursgestir hátíðarinnar eru tveir, þýska leikkonan Hanna Schygulla sem lék í fjöldamörgum myndum R.W. Fassbinders, og finnski leikstjórinn Aki Kaurismäki sem þykir með bestu leikstjórum Evrópu um þessar mundir. Sá síðarnefndi er tíður gestur á kvikmyndahátíðinni í Cannes og hefur einnig verið tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir myndina Maður án fortíðar. Kaurismäki lét sig að vísu vanta á verðlaunaafhendinguna í mótmælaskyni við Íraksstríðið og hefur lagt bann við því að nýjustu myndir hans séu sendar sem framlag Finna til verðlaunanna. Hann vill miklu frekar koma til Reykjavíkur, en hér verða honum veitt verðlaun fyrir framúrskarandi listræna kvikmyndasýn. Svonefndur Finnlands-þríleikur Kaurismäkis verður sýndur á hátíðinni í tilefni af komu hans. Schygulla verður einnig heiðruð fyrir ævistarf sitt og í þakkarskyni mun hún halda tónleika fyrir íslenska áhorfendur þar sem hún flytur lög sem snertu hana á lífsleiðinni – hvort sem lögin voru eftir Schubert, Brecht eða Dylan. Dagskrá Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar er alltof umfangsmikil til að hægt sé með góðu móti að gera grein fyrir henni hér og því viljum við benda áhugasömum lesendum á vefsíðu hátíðarinnar: www.riff.is. Metnaðarfull sky , dagskrá Texti: Atli Bollason

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.