Ský - 01.08.2007, Page 57
ský 57
Hvert liggja flugleiðir í haust og vetur?
„Við fljúgum til hvorki meira né minna en 18 borga í haust og
vetur. Haustið er mjög skemmtilegur tími til ferðalaga og margir
sem velja að fara í styttri borgarferðir. Flestir kjósa að heimsækja
gamlar og rótgrónar borgir Evrópu eins og Stokkhólm, London eða
Kaupmannahöfn. Haustið er líka tíminn til að njóta rómantískra
stunda í París eða að upplifa fjölbreytt menningarlíf í Amsterdam.
Helsinki hefur að undanförnu slegið í gegn hjá viðskiptavinum okkar
og þangað hyggjumst við fljúga í allan vetur. Við verðum með flug
til Berlínar út októbermánuð og hefjum svo aftur flug þangað í
mars. Einnig má geta þess að í vetur verður Icelandair með beint flug
til Salzburg, frá 19. janúar til 3. mars, sem þjónar ört stækkandi
skíðamarkaðnum.
Að sjálfsögðu fljúgum við svo líka til helstu áfangastaða
Bandaríkjanna sem fyrr og að þessu sinni fljúgum við í allan vetur til
New York, Boston, Baltimore/Washington og Orlando í Flórída.“
Eru einhverjar spennandi
sérferðir á döfinni?
„Já, svo sannarlega. Hópferð verður
farin á þakkargjörðarhátíðina í
Boston í nóvember en það er
afar vinsælt og við verðum líka
með sérferð til St. Pétursborgar,
verslunarferð seint í nóvember
til Glasgow og förum á Bikefest í
Flórída. Svo má nefna spennandi
ferðir eins og „Leyndardóma New
York“, sem rannsakaðir verða með Hauki Inga Jónssyni, og ferð á
hina sólríku og seiðandi eyju Costa Rica.
Við bjóðum einnig upp á golfferðir í hæsta gæðaflokki til
Skotlands, Flórída og víðar þar sem íþróttin er stunduð við bestu
hugsanlegar aðstæður allt árið. Í tengslum við þessar ferðir leggjum
við áherslu á gistingu á framúrskarandi hótelum. Þess má geta að við
munum bjóða upp á sérferð á Arnold Palmer´s Bay Hill í Orlando
13.–21. nóvember, þar sem jafnvel má rekast á sjálfan meistarann,
Arnold Palmer, spila golf.
Nú er enski boltinn farinn að rúlla aftur og við verðum með úrval
ferða á leikina. Okkur er sérstök ánægja að bjóða ferðir á heimaleiki West
Ham í vetur og ráðleggjum áhugasömum að fylgjast vel með því.“
Hver er ávinningurinn af nýjum fargjaldaflokkum fyrir
ferðamenn?
„Með nýju fargjaldaflokkunum, sem kynntir voru nýlega til leiks,
lögum við okkur betur að þörfum viðskiptavinanna með auknum
k
Y
n
n
in
G
icelandair
nýir fargjaldaflokkar
– aukinn sveigjanleiki
Haustið
er líka tíminn til að
njóta rómantískra
stunda í París eða
upplifa fjölbreytt
menningarlíf í
Amsterdam.
Þorvarður Guðlaugsson svæðisstjóri Icelandair segir haustin
mjög skemmtilegan tíma til ferðalaga.
sveigjanleika, gagnsæi og meiri samkeppnishæfni. Stærsta nýjungin í
þessu er tilkoma annarrar leiðar fargjalda á alla okkar áfangastaði.
nýju fargjöldin skiptast í fimm flokka:
saga Class (viðskiptafarrými)
eConoMY FleX
eConoMY
Best PrICe
sPeCIal oFFers
Þessu er þannig háttað að viðskiptavinurinn getur bókað flugfar
aðeins aðra leiðina og því keypt flug hina leiðina í mismunandi
fargjaldaflokkum. Þannig lagar hver og einn ferðina og verðið að
sínum þörfum.“ sky,
Texti: Atli Bollason
Hrund Hauksdóttir ræddi við Þorvarð Guðlaugsson svæðisstjóra Icelandair um flugáætlun haustsins.