Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 58
58 ský
Það er fallegur haustdagur við Eyjafjörð, sólin skín og Vaðlaheiðin speglast í Pollinum á leiðinni frá flugvellinum og inn í miðbæ Akureyrar. Í hjarta bæjarins stendur hið
virðulega, gamla rauða hús sem hýsir einn ástsælasta veitingastað
landsins: Bautann. Þar er tekið vel á móti hungruðum ferðalöngunum
sem gæða sér á ljúffengum, grilluðum silungi með möndlum og
vínberjum.
Einn elsti veitingastaður landsins
Guðmundur Karl Tryggvason, sem oftast kennir sig við Mýri í
Bárðardal, tekur glaður í bragði á móti gestum og segir að Bautinn
sé fyrir löngu orðinn eitt af kennileitum Akureyrar, auk kirkjunnar
og KEA.
„Já, fólk man varla ekki eftir öðru en Bautanum í þessu húsi, enda
var hann stofnaður 1971 og er einn elsti veitingastaður landsins.
Það fer vel á því að hann skuli vera í þessu húsi, svona gömlu og
virðulegu, það gefur honum góðan blæ.
Á 35 ára afmælisdegi staðarins í fyrra buðum við gestum upp á
rétti af fyrsta matseðli staðarins, á því verði sem þá var í gangi. Gestir
tóku þessu framtaki okkar mjög vel og var fullt út úr dyrum allan
daginn. Taldist okkur til að um 1000 manns hefðu heimsótt okkur
þennan dag. Greinilegt var að margir vildu upplifa gömlu dagana
aftur,“ segir Guðmundur og brosir kankvíslega.
Lífið er yndislegt
Ítalskur veitingastaður, La Vita é Bella, er rekinn í sama húsi og
Bautinn. „Árið 1999 opnuðum við La Vita é Bella en áður rákum
við Smiðjuna í þeim hluta hússins. Okkur langaði að breyta til og
komumst að því að Akureyri vantaði veitingastað sem byði upp á
mat frá Miðjarðarhafinu og varð ítölsk matargerð því fyrir valinu. Ég
myndi segja að þetta væri þægilegur fjölskyldustaður og hin suðrænu
áhrif matarins hafa alveg slegið í gegn. Enda eru einkunnarorðin „La
Vita é Bella“ eða lífið er yndislegt!“
Ekkert of smátt né stórt
„Í raun höfum við alltaf verið duglegir að finna okkur skemmtileg
verkefni. Veisluþjónusta Bautans er líklega það veigamesta í
rekstrinum. Við tökum t.d. að okkur fermingar- og brúðkaupsveislur
Bautinn í 36 ár:
Galdurinn við langlífi
Texti: Hrund Hauksdóttir Myndir: Geir Ólafsson
Guðmundur Tryggvason, veitingamaður á Bautanum: „Mottó veisluþjónustunnar okkar er að engin veisla sé of lítil eða of stór.“