Ský - 01.08.2007, Síða 61
ský 61
á fót og afleiðumarkaði eins og ég nefndi.
Jafnframt hefur erlendum kauphallaraðilum
(alþjóðleg fjármálafyrirtæki sem geta átt
viðskipti í Kauphöllinni) fjölgað verulega frá
því sameiningarferlið hófst fyrir tæpu ári. Á
þeim tíma voru þau aðeins tvö en nú eru þau
átta og fimm að auki í sjónmáli. Ég á von á að
þessi fjölgun leiði til umtalsverðrar þátttöku
alþjóðlegra fjármálafyrirtækja á markaðnum
hér á landi á næstu misserum.“
Hvað um áhuga Nasdaq og Dubai á að
eignast OMX?
„Ég er þeirrar skoðunar að sameining
OMX og Nasdaq feli í sér tækifæri til að efla
íslenska markaðinn enn frekar. Með slíkri
sameiningu fengist ný vídd í starfsemina;
greiðari aðgangur að bandaríska markaðnum
og miklir möguleikar í þróun þjónustu og
skilvirkni. Kostirnir við Dubai eru ekki
eins augljósir út frá hagsmunum íslenska
markaðarins.“
Þú nefndir First North markaðinn
- geturðu lýst honum nánar ?
„First North er hliðarmarkaður fyrir félög
í vexti, félög sem þurfa betri aðgang að
fjármagni en eru ekki reiðubúin að stíga
skrefið á aðalmarkað. Á First North gilda
vægari skráningarskilyrði og upplýsinga-
skylda er ekki eins víðtæk. Einnig gerir
markaðurinn kröfu um að félag leiti
þjónustu viðurkennds ráðgjafa (e. Certified
Advisor) við undirbúning skráningar og
meðan hún varir. Þetta er sameiginlegur
markaður fyrir OMX, þ.e. Norðurlöndin
(fyrir utan Noreg) og baltnesku löndin. First
North markaðurinn hefur gengið ákaflega
vel. Nú eru 118 félög á markaðnum og
hefur þeim fjölgað um tæplega 40 á árinu.
Einungis þrjú fyritæki hafa verið tekin til
viðskipta á First North á Íslandi og því
eigum við verk fyrir höndum að byggja upp
markaðinn hér. Við teljum að mörg félög
geti blómstrað á First North eins og þau hafa
gert á aðalmarkaðnum á liðnum árum.“
Hvað er framundan - fer að hægjast um?
„Þegar horft er um öxl hafa undanfarin ár
óneitanlega verið viðburðarík og ekki verður
annað séð en að framhaldið verði jafnvel enn
meira spennandi. Í því sambandi ber hæst
hvernig yfirstandandi sameiningartilraunum
lyktar. Við bætist að nýta tækifærin sem
sameiningin við OMX býður upp á, svo sem
með því að efla viðskipti erlendra fjárfesta,
hleypa lífi í afleiðumarkaðinn og koma First
North almennilega í gang. Þá þarf að ljúka
TÖLULEGAR UPPLÝSINGAR UM
MARKAðINN
því verkefni að gera íslenska markaðinn
þannig úr garði að hann verði að allri gerð
eins og algengast er erlendis, bæði með tilliti
til framkvæmdar viðskipta í Kauphöllinni
og uppgjörs og frágangs þeirra. Við erum
komin langt í því efni en smiðshöggið
vantar. Loks má nefna að nokkur félög eru
í þann veginn að færa hlutafé sitt í evrur
- það kann að vera að stór hluti markaðarins
verði innan tíðar í evrum. Við teljum því
að verðbréfamarkaðurinn muni halda
áfram að þróast hratt. Breytingar á löggjöf,
sameiningar á heimsvísu og ör tækniþróun
mun gera það að verkum að kauphallir
þurfa að bregðast við síbreytilegum kröfum
viðskiptavina og öðrum breytingum í
umhverfinu.“
„First North
hefur gengið
ákaflega vel. Nú
eru 118 félög á
markaðnum og
hefur fjölgað
um ríflega 30 á
árinu.“
sky
,
Fjöldi nýskráninga til júní 2007
0
10
20
30
40
50
60
1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007
Félög eftir atvinnugeira
0,0
5,0
10,0
15,0
20,0
25,0
30,0
35,0
40,0
Ne
ys
luv
ör
ur
Ne
yte
nd
av
ör
ur
Or
ku
vin
ns
la
Fj
ár
m
ála
jón
us
ta
He
ilb
rig
isg
eir
i
I
na
ur
Up
pl
sin
ga
tæ
kn
i
Hr
áv
ör
ur
Fj
ar
sk
ipt
i
Ve
itu
r
%
Fjöldi
félaga
Markaðs-
virði