Ský - 01.08.2007, Síða 62
62 ský
Öflugt eignastýringarfyrirtæki
fyrir fagfjárfesta og einstaklinga
Starfsmenn Íslenskra verðbréfa hf. á 20 ára afmælinu. Frá vinstri: Sigurbjörg, Þorvaldur, Sveinn Torfi, Ottó, Ásgeir, Valdimar,
Arne Vagn, Hafsteinn, Erla, Guðmundur, Jón Helgi, Unnur, Sævar, Sigurvin, Guðrún og Björn Snær. Á myndina vantar Björn G,
Stefán og Kristínu.
Blaðamaður Skýja hitti að máli Sævar Helgason, framkvæmdastjóra Íslenskra verðbréfa hf., sem segir frá tilurð félagsins:
„Íslensk verðbréf hf. varð til að frumkvæði Kaupþings sem þá
var fimm ára gamalt. Að stofnun þess komu einnig Akureyrarbær
og nokkrir sparisjóðir. Hugmyndin var að bjóða upp á ýmsar
leiðir við ávöxtun sparifjár og strax í upphafi var lögð áhersla á
einstaklingsráðgjöf og verðbréfamiðlun.
Á þessum tíma voru viðskipti með verðbréf ekki algeng hér á
landi en íslenskur verðbréfamarkaður tók síðan að þróast og vaxa ört
á 10. áratugnum. Árið 1999 keypti Sparisjóður Norðlendinga ásamt
fleirum hlut Kaupþings í félaginu og var nafni þess þá breytt í Íslensk
verðbréf hf. Um leið voru öll tengsl við Kaupþing rofin.
Í kringum aldamótin var mörkuð sú stefna að félagið yrði fyrst og
fremst sérhæft fjármálafyrirtæki á sviði eignastýringar. Fagfjárfestar
á borð við lífeyrissjóði höfðu m.a. rekið sig á þá staðreynd að
eignastýringarfyrirtækin sem þeir skiptu við erlendis voru langoftast
sérhæfð eignastýringarfyrirtæki. Ekkert slíkt fyrirtæki var starfandi
hérlendis og eignastýring var alfarið bundin við deildir innan
bankanna.
Íslensk verðbréf hf.
Íslensk verðbréf eru öflugt eignastýringarfyrirtæki sem stýrir rúmlega 90
milljörðum króna fyrir hönd viðskiptavina sinna. fyrirtækið var stofnað
vorið 1987 og fagnaði 20 ára starfsafmæli sínu fyrr á þessu ári.
Kynning: Hrund Hauksdóttir