Ský - 01.08.2007, Page 63
ský 63
Næsta skrefið í þessari stefnubreytingu var tekið þegar
Lífeyrissjóður Norðurlands fjárfesti í félaginu árið 2001. Um leið og
það gerðist fór boltinn að rúlla og félagið hefur vaxið ört síðan.
Nú um stundir eru flestir af stærstu lífeyrissjóðum á Íslandi á
meðal viðskiptavina, auk fjölda annarra fagfjárfesta, fyrirtækja og
einstaklinga.“
Í hverju er þjónusta félagsins fólgin?
„Meginmarkmið félagsins er að ávaxta fjármuni viðskiptavina þannig
að samband árangurs og áhættu sé hámarkað. Við leggjum einnig
mikla áherslu á uppbyggingu trúnaðarsambanda og góða, trausta og
persónulega þjónustu.
Íslensk verðbréf bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu á öllum
helstu sviðum verðbréfaviðskipta, svo sem á sviði fjárvörslu,
eignastýringar, verðbréfamiðlunar, sjóðastýringar og almennrar
ráðgjafar við val á ávöxtunarleiðum.
Eignastýringin felur í sér bæði fjárfestingu í verðbréfasjóðum en
einnig stýrum við sérgreindum verðbréfasöfnum fyrir fjárfesta sem
vilja klæðskerasniðnar lausnir. Hver fjárfestir er skráður eigandi
bréfanna á hverjum tíma en felur okkur stýringu þeirra samkvæmt
fyrirfram mótaðri fjárfestingarstefnu. Við höfum sniðið ýmsar
leiðir sem uppfylla kröfur viðskiptavina okkar. Þeim sem hafa
sértækari kröfur er stýrt sérstaklega. Félagið býr yfir mjög öflugu
upplýsingakerfi sem heldur utan um söfn hvers og eins, enda eru þau
mörg og ólík að uppbyggingu.
Stærsti viðskiptavinir ÍV eru fagfjárfestar á borð við lífeyrissjóði,
fjármálastofnanir, sveitarfélög og stærri fyrirtæki. Þar fyrir utan eru
mörg þúsund einstaklingar viðskiptavinir félagsins. Það er rétt að
leggja áherslu á að sömu aðilar innan Íslenskra verðbréfa hf. stýra
eignum fagfjárfesta og einstaklinga þannig að einstaklingar fá ekki
síðri þjónustu eða árangur en aðrir. Lögð er áhersla á teymisvinnu
sem skilar sér í upplýstari ákvörðunum að okkar mati.“
Persónuleg þjónusta höfð að leiðarljósi
„Við höfum nýlega látið kanna hug viðskiptavina til félagsins, bæði
einstaklinga og fagfjárfesta, og þar kom í ljós að Íslensk verðbréf hf.
er þekkt af framúrskarandi þjónustu sem meðal annars felst í stuttum
svartíma við fyrirspurnum og snöggri úrlausn þeirra mála sem upp
hafa komið.
Við leggjum ákaflega mikið upp úr persónulegri þjónustu.
Fyrirspurnum viðskiptavina er svarað fljótt auk þess sem starfsmenn
hafa frumkvæði að samskiptum við þá. Við leysum vandamál eins
fljótt og við mögulega getum og gætum þess að viðskiptavinir
hafi ávallt gott aðgengi að starfsfólki. Þá stefnu höfum við haft að
leiðarljósi frá upphafi og fengið ákaflega jákvæð viðbrögð við henni.
Viðskiptavinir eru mjög ánægðir með þjónustuna samanborið við
önnur fjármálafyrirtæki.
Við höfum náð að festa okkur í sessi sem eina sérhæfða,
óháða eignastýringarfyrirtækið á Íslandi. Viðskiptavinir vita að við
fjárfestum ekki í einstökum verðbréfum fyrir eigin reikning en það er
einmitt ein af þeim gagnrýnisröddum sem hafa heyrst í tengslum við
fjármálafyrirtæki hérlendis. Hættan er sú að þegar takmarkað magn
af verðbréfum á hagstæðu verði stendur til boða vilja málin stundum
þróast á þann veg að bankarnir kaupa bréfin fyrir eigin reikning.
Margir eru orðnir pirraðir á þess háttar árekstrum og leita þá til
Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa
hf., segir fyrirtækið leggja mikla áherslu á uppbyggingu
trúnaðarsambanda og góða, trausta og persónulega þjónustu.
okkar. Hjá okkur eru engir slíkir hagsmunaárekstrar og við finnum
sterkt fyrir því að viðskiptavinir kunna að meta slíkt.“
Er Íslensk verðbréf hf. á einhvern hátt frábrugðið öðrum íslenskum
fjármálafyrirtækjum?
„Það er óhætt að segja það. Það eru aðallega þrjú atriði sem
skera okkur úr; við erum óháð stóru bönkunum á Íslandi, við
fjárfestum ekki í einstökum verðbréfum fyrir eigin reikning og við
sinnum einungis eignastýringu. Öll uppbygging félagsins styður við
eignastýringuna og hún er okkar sérhæfing. Jafnframt viljum við
meina að við bjóðum persónulegri þjónustu en gengur og gerist.“
Mannauðurinn - verðmætasta eignin
Hjá Íslenskum verðbréfum starfa 18 manns með víðtæka
sérfræðiþekkingu og reynslu af störfum á fjármálamarkaði. Um er
að ræða vel menntað fólk sem þekkir vel til á markaðinum og er í
samvinnu við aðra sem gerþekkja aðstæður á fjarlægari mörkuðum.
„Kjarni starfsmanna fyrirtækisins hefur starfað hjá því í tíu ár
eða lengur og breytingar á starfsfólki hafa verið fátíðar. Við finnum
greinilega að viðskiptavinum líkar það mjög vel - þeir finna að okkur
er annt um þá. Verðmætasta eign félagsins er því sá mannauður sem
það hefur eignast á undanförnum 20 árum.“ sky,
M
yn
d:
G
ei
r
Ó
la
fs
so
n.