Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 64
6 ský
Ingunn Elín Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri neytendasviðs N1, er viðskiptafræðingur að mennt og hefur sinnt ýmsum stjórnunarstöðum. Hún hefur yfirumsjón með öllum
þjónustustöðvum og verkstæðum þessa tíunda stærsta fyrirtækis
landsins.
Að sögn Ingunnar vakti það mikla athygli þegar vörumerkið
N1 var kynnt til sögunnar á vormánuðum við sameiningu
Olíufélagsins, Bílanausts og fleiri félaga í bílatengdri þjónustu.
Hún segir að breytingar og sameining fyrirtækjanna sem mynduðu
N1 hafi heppnast mjög vel: „Við lögðum upp með mjög skýra
sýn; að mynda öflugt þjónustufyrirtæki í kringum þarfir fólks sem
er á ferðinni og sækja þannig fram á við. Bílaþjónusta er alltaf að
verða mikilvægari, bæði fyrir fjölskyldur og fyrirtæki, og þar hafði
ekki orðið sú samþjöppun sem við sjáum annars staðar, til dæmis í
bankaviðskiptum og í matvörugeiranum. Fyrstu misserin lofa góðu
og við erum viss um að framtíðin sé björt fyrir þá sem geta boðið
fjölbreytta þjónustu undir einu merki - sem fólk treystir.“
Með fleiri útsölustaði og þjónustustöðvar en
nokkur annar
Einn helsti styrkur N1 felst í þéttriðnu neti þjónustustaða um
land allt: „Við erum á um 120 stöðum á landinu þar sem fólk og
fyrirtæki geta fengið þjónustu hjá okkur. Kjörorð okkar, „Meira í
leiðinni“, endurspeglar þetta á tvennan hátt. N1 er annars vegar
aldrei mikið úr leið og hins vegar bjóðum við fjölþættari þjónustu
en önnur fyrirtæki í skyldum rekstri. Það kann að hljóma eins
og klisja en okkar sérstaða felst í heildarlausnum. Við erum
með langvíðtækustu þjónustuna fyrir fyrir bíleigandann með
þjónustustöðvum okkar, verslun með varahlutum og svo mætti
lengi telja.“
Ingunn Elín Sveinsdóttir,
framkvæmdastjóri neytendasviðs
N1, stendur í ströngu við að kynna
fyrir fólki ávinninginn af því að fá alla
bílatengda þjónustu hjá N1.
meira í leiðinni
Kynning: Hrund Hauksdóttir Myndir: Páll Kjartansson