Ský - 01.08.2007, Blaðsíða 65
ský 65
Keyptu lag með Queen
Kynningin á N1 vakti mikla athygli og landsmenn fengu gamla
Queen slagarann „Don’t Stop Me Now“ á heilann. „Já, við
lögðum mikla vinnu í undirbúning sameiningar félaganna í N1.
Á þeim tíma kom fram sú hugmynd að nota þetta fræga lag í
auglýsingar. Það féllu allir fyrir því á stundinni því okkur fannst
lagið endurspegla svo vel það sem við erum að gera. Það fjallar
um það að vera staðráðinn í að njóta lífsins og láta ekkert stöðva
sig. Það lýsir okkur mjög vel,“ segir Ingunn. „Við ákváðum því
að leggja drjúga fjárhæð í að kaupa afnotaréttinn á laginu í
upprunalegri útgáfu og sjáum alls ekki eftir þeirri fjárfestingu.
Lagið sló hreinlega aftur í gegn og var til dæmis mikið spilað í
útvarpinu eftir að við byrjuðum að nota það í auglýsingarnar
okkar.“
Höfum verið dugleg að kynna nýjungar
En hvernig hafa viðskiptavinir fundið fyrir tilkomu N1?
„Viðskiptavinir okkar hafa tekið vel eftir því hvernig breytingarnar
skila sér í betri þjónustu í öllu sem tengist einkabílnum og fjölbreyttara
vöruúrvali. Þá hefur Safnkortið mætt tvíeflt til leiks og viðskiptavinir
safna punktum af öllum viðskiptum sínum við N1, hvort sem fólk
kaupir eldspýtustokk eða eldsneyti. Hver punktur jafngildir einni
krónu sem hægt er að nota í viðskiptum við okkur og svo bjóðum við
oft sérstök tilboð þar sem fólki gefst kostur á að margfalda punktana.
Einnig kynntum við Greiðslulykilinn til sögunnar, agnarsmátt tæki
sem menn festa við lyklakippuna og nota til að borga fyrir alla vöru
og þjónustu hjá N1 á einfaldan hátt. Þá höfum við verið fyrst til að
bjóða þriggja ára ábyrgð á bílavarahlutum. Þetta eru aðeins nokkur af
þeim trompum sem við höfum spilað út eftir tilkomu N1.“
60 þúsund N1 Vegabréf í umferð
„Við sjáum líka af þátttökunni í Vegabréfleik N1 í sumar að við
náum til fólks, en leikurinn felst í því að fólk nælir sér í N1 Vegabréf
á þjónustustöðvum og safnar svo stimplum í það á ferðum sínum um
landið. Við lögðum líka land undir fót og vorum til dæmis áberandi
á öllum helstu bæjarhátíðunum um allt land í sumar og tókum þátt í
þeirri góðu stemmningu sem myndast á slíkum uppákomum. Ætli það
h a f i
ekki verið um 60
þúsund Vegabréf í gangi í sumar og það styttist í að
aðalvinningurinn, ársafnot af Nissan Pathfinder ásamt tryggingum,
verði dreginn út handa heppnum þátttakanda.“
Vetrardekkin færa fólki Safnkortspunkta
Hvaða verkefni blasa við framkvæmdastjóra neytendasviðs N1?
„Við höldum áfram að kynna fólki okkar sérstöðu og þann ávinning
sem fólk fær af því að beina sem mestu af sínum bílatengdu viðskiptum
til okkar. Til dæmis getur fólk nú fengið Safnkortspunkta þegar það
lætur setja vetrardekkin undir bílinn á N1 hjólbarðaverkstæðunum.
Við munum einnig kynna betur fyrir fólki kosti Greiðslulykilsins en
með honum getur fólk sparað verulega og aukið punktasöfnunina
enn frekar. Fólk er að átta sig á því hagræði og mikla ávinningi sem
„Viðskiptavinir okkar hafa tekið
vel eftir því hvernig breytingarnar
skila sér í betri þjónustu í öllu
sem tengist einkabílnum og
fjölbreyttara vöruúrvali.“
sky
,