Fréttablaðið - 23.07.2015, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 23.07.2015, Blaðsíða 42
23. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 34 Kvikmyndin Webcam var frum- sýnd á miðvikudaginn í síðustu viku. Myndin fjallar um Rósalind, unga stúlku sem fer að vinna fyrir sér með því að fækka fötum fyrir framan vefmyndavél, og hvaða áhrif það hefur á sambönd henn- ar við vini, fjölskyldu og kærasta. Sigurður Anton Friðþjófsson leikstýrir myndinni og skrif- ar jafnframt handritið. Er þetta önnur kvikmynd hans í fullri lengd en hann hafði lengi stefnt á að starfa við kvikmyndagerð. Sjálflærður í kvikmyndagerð „Ég er sjálflærður og hef ekki verið að gera neitt annað núna í rúmlega þrjú ár. Þetta er það sem mig hefur langað til þess að gera síðan ég man eftir mér, semja og leikstýra,“ segir Sigurður en hann hefur haft gaman af því að skrifa frá unga aldri. „Alveg síðan ég man eftir mér, frá því ég lærði að skrifa,“ segir hann og hlær. Sigurður skrifar mikið og situr við tímunum saman og segir við- veruna skipta máli og skila sér. „Ég skrifa á hverjum einasta degi, öll kvöld og fleiri klukkutíma oft. Oftast kemur ekkert, eða bara eitthvert drasl og maður verður bara að halda áfram að skrifa,“ segir hann og bætir glaðlega við að vissulega komi eitthvað not- hæft út úr skrifunum endrum og eins. Saga af ást og vináttu Við handritaskrifin lagðist Sig- urður einnig í heimildarvinnu og kynnti sér heim þeirra stúlkna sem starfa sem „camgirls“, líkt og Rósalind gerir í myndinni. Stúlk- unum, sem voru allar útlensk- ar, hafði hann upp á á netinu og spjallaði meðal annars við þær í gegnum vefsíðuna Tumblr þar sem hægt var að senda spurning- ar beint til stúlknanna. „Ég var með einhverja pínu fordóma fyrst en þetta voru alltaf ótrúlega eðli- legar stelpur sem komu frá eðli- legum fjölskyldum og fundu þetta og voru að vinna við það,“ segir hann. „Þó þetta sé svona „hook- ið“ þá er þetta bara hluti af mynd- inni, hún er fyrst og fremst ástar- og vináttu saga.“ Sigurður íhugaði leiklist áður en hann ákvað að kvikmyndagerð væri það sem hann vildi starfa við. „Þegar ég var krakki lang- aði mig til þess að verða leikari en um leið og ég vissi hvað leik- stjórn var og að það væri einhver sem réði öllu og stjórnaði fattaði ég að það var það sem mig lang- aði til þess að gera,“ segir Sigurð- ur og bætir hlæjandi við að kvik- myndagerðin sé eina sviðið þar sem hann vilji fá að stjórna. Sextán tökudagar „Hún var tekin upp í kringum síðustu áramót, í desember og janúar. Það voru sextán tökudag- ar sem er mjög lítið og fólk varð mjög hissa þegar við sögðum frá því,“ segir Sigurður og bætir við að tökurnar hafi gengið framar vonum. „Það var mjög sjaldan eitthvert stress og meira að segja slatti af „down-time“ og svona.“ Hann segir ástæður þess hve vel gekk hafi verið þær að vel hafi verið æft og planað, einnig hafi spilað stóran þátt hversu vel allir á bak við myndavélarnar þekkt- ust. „Við þekkjumst rosalega vel og vitum hvað við viljum og erum að stefna að. Við höfum gert jóla- dagatal sem fór á netið 2013 og aðra mynd í fullri lengd sem var sýnd einu sinni í BíóiParadís.“ Með ákveðna leikara í huga Aðstandendur myndarinnar hafa margir hverjir unnið áður saman í öðrum verkefnum og segir Sig- urður það enga tilviljun, hann reyni að halda í fólk sem honum líkar vel við og þyki gott að vinna með. „Það er mjög gott að ímynda sér einhvern vera að leika hlut- verkið þegar maður er að skrifa það,“ segir hann en öll hlutverk- in í myndinni skrifaði hann með ákveðna leikara í huga, fyrir utan hlutverk Rósalindar sem leikin er af Önnu Hafþórsdóttur. „Ég kynntist henni bara tveimur mánuðum áður en æfingar hóf- ust og eftir það kom engin önnur til greina.“ Bestu vinkonu Rósa- lindar, Agú, leikur Telma Huld Jóhannesdóttir og önnur hlutverk eru í höndum Ævars Más Ágústs- sonar, Gunnars Helgasonar, Júlís Heiðars Halldórssonar og Magn- úsar Thoroddsen Ívarssonar sem einnig framleiðir myndina. Hættir ekki að brosa Spurður út í næstu verkefni segir hann ekkert komið á hreint með þau enn sem komið er. „Ég er að reyna að skrifa á hverjum degi en mér dettur ekkert í hug af því ég er svo hamingjusamur með við- tökurnar að ég hugsa ekki um neitt annað, það kemst ekkert annað að,“ segir hann glaður í bragði en myndin hefur fengið góðar við- tökur og eru Sigurður og aðstand- endur myndarinnar að vonum ánægðir með það. „Ég er bara í skýjunum.“ Myndin var frum- sýnd í síðustu viku og neitar hann ekki að það hafi óneitanlega verið örlítið stress í kringum frumsýn- inguna. „Það var rosalega mikið stress en líka rosalega mikil ham- ingja. Ég er kominn með verk í kinnarnar af því að ég bara hætti ekki að brosa,“ segir hann alsæll að lokum. gydaloa@frettabladid.is Búinn að brosa síðan á forsýningunni Leikstjóri og handritshöfundur Webcam, Sigurður Anton Friðþjófsson, er sjálfl ærður í kvikmyndagerð og hefur skrifað frá unga aldri. ÁNÆGÐUR Sigurður Anton hefur ekki hætt að brosa síðan á forsýningu myndarinnar og er kominn með verk í kinnarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANDRIMARINÓ WEBCAM Á veggspjaldi myndarinnar má sjá aðalleikkonurnar, þær Önnu Hafþórsdóttur og Telmu Huld Jóhannes- dóttur. Þegar ég var krakki langaði mig til þess að verða leikari en um leið og ég vissi hvað leikstjórn var og að það væri einhver sem réði öllu og stjórnaði fattaði ég að það var það sem mig langaði til þess að gera. BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS FRUMSÝNINGAR 8/10 97% 26 ára Daniel Radcliffe, leikari Þekktastur fyrir: Harry Potter Leikkonan Cate Blanchett mun leik- stýra nýrri ástralskri sjónvarpsþátta- röð sem heitir Stateless. Þáttaröðin fjallar um sögu Corneliu Rau sem var ranglega haldið fanginni sem ólöglegum innflytjanda í Ástralíu. Þetta verður í fyrsta sinn sem Blanchett spreytir sig bak við myndavélina en hún hefur leikið í fjölda þekktra kvikmynda á borð við The Lord of the Rings, Blue Jasmine og Elizabeth. Leikstýrir þáttaröð Amy Heimildarmynd Fram koma: Amy Winehouse, Yasiin Bey, Mark Ronson, Pete Doherty, Mitch Winehouse Frumsýnd: 29. júlí Mission Impossible: Rogue Nation Hasarmynd Aðalhlutverk: Tom Cruise, Simon Pegg, Alec Baldwin, Rebecca Fergu- son og Jeremy Renner Frumsýnd: 29. júlí Southpaw Hasar- og dramamynd Aðalhlutverk: Jake Gyllenhaal, Rachel McAdams, Forest Whitaker og 50 Cent. Frumsýnd: 12. ágúst 8,4/10 71% 2 2 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 8 9 -C 8 C C 1 5 8 9 -C 7 9 0 1 5 8 9 -C 6 5 4 1 5 8 9 -C 5 1 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.