Fréttablaðið - 23.07.2015, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 23.07.2015, Blaðsíða 44
LÍFIÐ 23. júlí 2015 FIMMTUDAGUR Hin eina sanna Queen-heiðurshljóm- sveit, sem ber titillinn Queen Extra- vaganza, er á leið hingað til lands en sveitin var hugsuð og sköpuð sér- staklega til að koma lögum hljóm- sveitarinnar Queen til nýrra og gamalla aðdáenda alls staðar í heim- inum. Meðlimir sveitarinnar voru sér valdir af Roger Taylor, trommu- leikara Queen, og Brian May, gítar- leikara Queen. „Þessi hljómsveit var sett saman árið 2011 og hún kom fyrst fram í American Idol árið 2012. Við settum saman þessa hljómsveit sem eins konar mótefni gegn mörgum öðrum Queen-heið- urshljómsveitum, því margar þeirra eru ekki eins góðar og við hefðum viljað,“ segir Roger Taylor, trommu- leikari Queen, spurður út í upphaf Queen Extravaganza. Trommar- inn var ekkert of hrifinn af þeim Queen-heiðurshljómsveitum sem hann hafði séð og heyrt af. „Queen Extravaganza á ekki að bregða sér í líki Queen heldur á hún að syngja og spila tónlistina okkar vel og fallega. Að sjá þessa hljómsveit á tónleikum er upplifun sem ég mæli með.“ Taylor og May fundu réttu aðilana í hljómsveitina með heljarinnar leit sem fram fór í gegnum netið. Fólk alls staðar að úr heiminum sendi inn kynningarmyndbönd af sjálfu sér í von um að komast í hljómsveit- ina. Söngvari Queen Extravaganza, Marc Martel, sendi inn kynning- armyndband og er það komið með nærri 10 milljón áhorf á Youtube. Mikið er til af svokölluðum heið- urshljómsveitum sem leika tónlist annarra hljómsveita en hvað hefur Taylor að segja um slíkar hljóm- sveitir, er of mikið til af svona heið- urssveitum? „Eins mikill heiður og hrós það er að hafa hljómsveitir sem spila lögin manns þá finnst mér vera of mikið af þeim. Það eru of margar hljómsveitir, of margar hljómsveitir sem eru að villa á sér heimildir og oft ekki nógu mikil gæði í tónlistinni hjá þeim,“ segir Taylor. Hin eina sanna Queen-heiðurs- sveit hefur farið um allan heim og hafa tónleikar hennar fengið frá- bæra dóma. Þegar hún var stofn- uð voru Taylor og May þó talsvert í kringum sveitina enda sveitin þeirra hugmynd. „Ég tek meira þátt í starfsemi sveitarinnar í dag held- ur en Brian því hans tími fer mest í það að bjarga loðnum dýrum,“ segir Taylor léttur í lundu. „Upphaflega hannaði ég prógramm fyrir sveitina en nú eru þeir mun sjálfstæðari og vita alveg hvað aðdáendurnir vilja heyra. Þeir vinna líka með Spike Edney, sem spilaði mikið með okkur og var tónlistarstjóri okkar, við að velja lög til að spila.“ Taylor og May hafa báðir spilað með hljómsveitinni því þeir komu fram með henni í American Idol á sínum tíma til þess að kynna hana með glæsibrag. Um þessar mund- ir eru þessar tvær goðsagnir úr rokksögunni enn að túra um heim- inn með sinni hljómsveit, Queen. „Við erum að fara í tónleikaferða- lag með Adam Lambert með okkur, um Suður-Ameríku í september. Við erum nýkomnir úr tónleikaferð um Bandaríkin, Evrópu, Ástralíu og Asíu,“ segir Taylor. Spurður út í Ísland segist Taylor hlakka mikið til að heimsækja Ísland. „Ég hlakka mikið til að koma til Íslands, ég stefni á að koma þang- að í framtíðinni. Því miður komumst hvorki ég né Brian með til landsins núna,“ segir Taylor, en hvað segir hann um íslenska tónlist? „Ég hef hitt marga spennandi og frjóa tón- listarmenn frá Íslandi. Hljómsveitin Sigur Rós er í uppáhaldi hjá mér,“ segir Taylor. Það eru eflaust ansi margir Íslendingar sem væru til í að fá hina einu sönnu Queen til að halda tón- leika hér á landi. Er einhver séns á að Queen komi fram á tónleikum á Íslandi? „Það er ekkert ómögulegt en það er samt ekkert planað eins og er. Ég myndi allavega vilja koma!“ Tónleikar Queen Extravaganza fara fram í Eldborgarsal Hörpu þann 15. og 16. ágúst. Uppselt er á fyrri tónleikana en til eru miðar á þá seinni. Eins mikill heiður og hrós það er að hafa hljómsveitir sem spila lögin manns þá finnst mér vera of mikið af þeim. Það eru of margar hljómsveitir, of margar hljómsveitir sem eru að villa á sér heimildir og oft ekki nógu mikil tónlistarleg gæði hjá þeim. Gunnar Leó Pálsson gunnarleo@frettabladid.is Þeir bestu settir saman í hljómsveit Roger Taylor og Brian May, meðlimir Queen, völdu einstaklinga í hljómsveitina Queen Extravaganza. Fréttablaðið talaði við Taylor um tónlistina. QUEEN EXTRAVAGANZA Sveitin var sett saman sem eins konar mótefni gegn mörgum öðrum Queen-heiðurshljómsveitum, því margar þeirra voru ekki eins góðar og Taylor og May hefðu viljað. MIKIL UPP- LIFUN Roger Taylor, trommu- leikari Queen, segir það mikla upplifun að sjá Queen Extra vaganza og mælir með henni. ÞRUSU ÞRENNA Söngvarinn Adam Lambert hefur verið að túra með Queen að undanförnu. Hér er hann ásamt gítarleikaranum Brian May og Roger Taylor. TROMMAR Roger Taylor er enn að spila á fullu um allan heim með Queen. Ef eitthvað er að marka tískulínur stóru tísku- húsanna fyrir haustið þá verður vínrauður aðallitur- inn. Það er ekki svo langt síðan vínrautt var í tísku en eins og flestir vita fer tískan í hring, mishratt þó. TREND VÍNRAUTT Í HAUST MYNDIR/GETTY GLÆSILEG Þessi stællega kona var glæsi- leg á tísku- vikunni í París og tók vínrauða litinn alla leið í dragt og bol í litnum. RAUTT Í HAUST Vínrauður hefur verið áberandi á pöll- unum fyrir haustið. VÍNRAUÐ DRAGT Vínrauðar buxna- dragtir sáust á tískupöllunum fyrir haustið enda smart samsetning. GIVENCHY Ricc ardo Tisci er einn af hönnuð- unum sem notuðu vínrauða litinn mikið fyrir haustlínuna. KENDALL JENNER Klæddist fallegum vínrauðum kjól í vikunni. N O RD ICPH O TO S/G ETTY 2 2 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 8 9 -D 7 9 C 1 5 8 9 -D 6 6 0 1 5 8 9 -D 5 2 4 1 5 8 9 -D 3 E 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.