Fréttablaðið - 23.07.2015, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 23.07.2015, Blaðsíða 50
23. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| SPORT | 42 VERÐLAUNAHAFARNIR Í gær voru veittar viðurkenningar fyrir fyrri umferð Pepsi- deildar kvenna í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar. Topplið Breiðabliks hlaut flestar viðurkenningar en Blikar áttu fimm leikmenn í úrvalsliði fyrri umferðarinnar: Sonný Láru Þráinsdóttur, Málfríði Ernu Sigurðardóttur, Hallberu Gísladóttur, Guðrúnu Arnardóttur og Fanndísi Friðriksdóttur sem var jafnframt útnefnd besti leikmaður fyrri umferðarinnar. Besti þjálfarinn kom einnig úr röðum Breiðabliks (Þorsteinn Halldórsson) og þá áttu Blikar bestu stuðningsmennina. Bríet Bragadóttir var valin besti dómarinn. Selfoss og Stjarnan áttu tvo fulltrúa hvort í úrvalsliðinu og Valur og Fylkir einn. Viðtöl við verðlaunahafa má finna á Vísir.is. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Þátttöku íslenskra liða í Evrópukeppnum gæti lokið í kvöld en bæði FH og KR eru einu marki undir fyrir leiki kvöldsins. KR mætir norska stórveldinu Rosen- borg en FH mætir Inter Baku í Aserbaídsjan. Lið FH sem ferðað- ist til Aserbaídsjan er vængbrot- ið en Róbert Örn Óskarsson er í leikbanni og verður því hinn 44 árs gamli Kristján Finnbogason í markinu hjá FH . Þá verða Steven Lennon, Guð- mann Þórisson og Atli Viðar Björnsson fjarverandi. Heimir viðurkenndi að ekki væri um óska- undirbúning að ræða. „Sem betur fer eru allir aðrir klárir, þetta er ákveðin prófraun á aðra leikmenn. Þeir eru sterkari á heimavelli en við sáum í fyrri leiknum að við eigum möguleika ef við eigum góðan leik,“ sagði Heim- ir sem var viss um að hinn 44 ára gamli Kristján myndi standa sig í markinu. „Hann er ótrúlegur, hann er búinn að vera frábær á æfingum. Hann er í toppstandi og virðist bara verða betri með aldrinum.“ Í Þrándheimi mæta KR-ingar til leiks eftir 0-1 tap á heimavelli. KR- ingar áttu ágætis rispur í leiknum en til þess að stríða norska stór- veldinu þurfa þeir að eiga toppleik. „Það er smá óvissa með Þor- stein Má en annars eru allir klár- ir í slaginn. Við getum spilað betur en í síðasta leik en við vitum það að þeir eru með ógnarsterkt lið og munu eflaust spila betur en í fyrri leiknum. Þetta er það stórt lið og kröfur eru gerðar til spilamennsk- unar þannig að við verðum að eiga toppleik til að eiga séns á að kom- ast áfram, til að byrja með þurfum við að halda hreinu og við reynum að vinna út frá því,“ sagði Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR. - kpt Þetta er prófraun á leikmennina Vængbrotið lið FH mætir Inter Baku en á sama tíma leikur KR gegn Rosenborg. PRÓFRAUN Heimir vonar að aðrir leikmenn stígi upp í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR GOLF Það má búast við galopnu Íslandsmóti í höggleik á Garða- velli á Akranesi en mótið hefst í dag og lýkur á sunnudag. Þetta er í 74. sinn sem Íslandsmótið í högg- leik er haldið og fer það nú fram á Garðavelli í annað sinn. Allir okkar sterkustu kylfingar eru með fyrir utan Birgi Leif Haf- þórsson sem valdi frekar að spila á sterku móti í Áskorendamótaröð Evrópu í Frakklandi um helgina. „Hann hefur líklega aldrei spil- að betur á ferlinum en nú,“ sagði landsliðsþjálfarinn Úlfar Jónsson sem styður ákvörðun Birgis Leifs. „Það er um að gera fyrir hann að taka þátt í jafn sterku móti og þessu.“ Birgir Leifur hefur, rétt eins og Úlfar og Björgvin Þorsteinsson, unnið sex Íslandsmeistaratitla en þarf að bíða eftir þeim sjöunda. Úlfar getur reyndar aftur tekið fram úr þeim Birgi Leifi og Björg- vini með sigri um helgina. „Ég hef reyndar ekki mikl- ar væntingar til þess en það er gaman að vera með. Völlurinn er flottur,“ sagði Úlfar í léttum dúr. Atvinnukylfingarnir með Atvinnukylfingarnir Ólafía Þór- unn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir taka þátt í mótinu en þær hafa staðið sig vel á LET Access-mótaröðinni í Evrópu í sumar. Ólafía Þórunn er ríkjandi meistari og á sínu fyrsta ári í atvinnumennskunni. Hún segir að því fylgi líklega meiri pressa að keppa á Íslandsmótinu sem atvinnumaður en áhugakylfingur. „Ég er mjög ánægð með sumar- ið. Þetta hefur verið mikil og góð reynsla fyrir mig,“ segir hún. „Ég hef lært mikið um hvernig maður á að hugsa úti á vellinum sjálf- um og fyrir mót. Vonandi held ég áfram að bæta mig í því.“ Hún á von á harðri baráttu enda alls sex keppendur á mótinu sem hafa orðið Íslandsmeistarar áður. „Ég á von á því að skorið verði mjög gott,“ segir hún. Guðrún Brá Björgvinsdóttir á skráða lægstu forgjöf allra kepp- enda í kvennaflokki [-1,5] en á þó enn eftir að vinna Íslandsmeist- aratitilinn. „Ég hef stefnt að því að vinna þetta mót í mörg ár. Það er draum- urinn að verða Íslandsmeistari,“ segir Guðrún Brá. „Ég held að þetta muni ráðast af púttunum og ég á ágæta möguleika í þeirri bar- áttu. Ég mun spila til sigurs eins og í öllum mótum,“ segir hún. Reikna má með því að Heiða Guðnadóttir, sem hefur heldur ekki orðið Íslandsmeistari á sínum ferli, blandi sér einnig í barátt- una af fullum krafti en hún varð Íslandsmeistari í holukeppni fyrr í sumar og er efst að loknum fjór- um af sex mótum Eimskipsmótar- aðarinnar. Nálgast markmið sín Keppni verður einnig hörð í karla- flokki. Kristján Þór Einarsson er efstur á stigalistanum á Eimskips- mótaröðinni og vann gull á Smá- þjóðaleikunum með miklum yfir- burðum. Axel Bóasson vann hins vegar langþráðan Íslandsmeistara- titil í höggleik og mætir til leiks með fullt sjálfstraust. „Ég er hægt og rólega að nálg- ast mín markmið eftir að gengið í byrjun sumars var upp og ofan,“ segir Axel. „En það er frábært að sjá hversu margir sterkir kylfing- ar eru með og eiga möguleika í ár. Við viljum hafa það þannig.“ eirikur@frettabladid.is Ræðst af púttunum Íslandsmótið í höggleik hefst á Garðavelli á Akranesi í dag. Birgir Leifur Hafþórs- son er ekki með en að honum undanskildum eru allir bestu kylfi ngar landsins með. Landsliðsþjálfarinn Úlfar Jónsson tekur nú þátt í fyrsta sinn síðan 2011. SKOTIÐ ÚT Á HAF Kylfingarnir sýndu listir sínar í gær þegar þeir slógu af Selfossi við Reykjavíkurhöfn á litla eyju sem búið var að koma fyrir úti á hafi, með mis- góðum árangri. Hér slær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Ásmundur Arnarsson, sem rekinn var frá Fylki í Pepsi-deild karla í fótbolta í sumar, var í gær ráðinn þjálfari ÍBV út tímabilið. Honum er gert að bjarga Eyjamönnum frá falli, en liðið er í tíunda sæti með ellefu stig eftir tólf umferðir. Jóhannes Harðarson, þjálfari ÍBV, heldur áfram í leyfi vegna persónulegra ástæðan, en hann snýr ekki aftur á þessu tímabili. Ingi Sigurðsson hefur stýrt Eyjamönnum í fjarveru Jóhannesar og unnið alla þrjá leiki sína; tvo í deild og einn í bikar. Ásmundur stýrði Fylkisliðinu í þrjú og hálft ár, en dapurt gengi liðsins á tímabilinu eftir öflug leikmannakaup urðu honum að falli í Árbænum. Hermann Hreiðarsson tók við starfi hans og byrjaði á því að ná í fjögur stig í útileikjum gegn FH og Breiðabliki. Fyrsti leikur Ásmundar verður gegn Stjörnunni á Samsung- vellinum á sunnudaginn. Ásmundur stýrir ÍBV út tímabilið FÓTBOLTI Skotlandsmeistarar Celtic unnu Íslandsmeistara Stjörnunnar, 4-1, í seinni leik liðanna í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarin- anr á Samsung-vellinum í gærkvöldi. Ólafur Karl Finsen hleypti vel upp í leiknum þegar hann kom Stjörnunni yfir, 1-0, á sjöundu mínútu. Ólafur Karl hefur nú skorað sex mörk í tíu Evrópuleikjum. Áður en yfir lauk skoruðu Skotarnir fjögur mörk og unnu samanlagt, 6-1. Jöfnunarmark þeirra var þó kolólög- legt. - tom Skosku meistaranir auðveldlega áfram MARKASKORARI Ólafur Karl Finsen skoraði fyrir Stjörnuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ SPORT 2 2 -0 7 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 8 9 -F A 2 C 1 5 8 9 -F 8 F 0 1 5 8 9 -F 7 B 4 1 5 8 9 -F 6 7 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.