Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 6
NATO Endurskipulagning og stór- aukin geta herafla Atlantshafs- bandalagsins (NATO) er að stærstum hluta til komin sem viðbrögð við aðgerðum og yfirgangi Rússa. Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Jens Stolten berg, framkvæmdastjóra NATO, er hann kynnti blaðamönnum niðurstöður fundar varnarmálaráð- herra NATO-ríkjanna í Brussel í gær. Þegar Stoltenberg var spurður hvort Rússar myndu ekki túlka auk- inn viðbúnað bandalagsins, svo sem í ríkjum Eystrasaltsins, sem ógnandi tilburði vesturveldanna, sagði hann aðgerðir NATO viðbragð við fram- ferði Rússa. „Svo sem í Úkraínu, á Krímskaga, en einnig í Georgíu þar sem Rússar halda núna georgísku landsvæði.“ Ekki verði horft upp á slíkan yfir- gang án viðbragða. „Við bregðumst því við með því að auka getu banda- lagsins til að flytja til herafla, aukum um leið viðveru okkar í austri með herliði staðsettu þar og með því að auka varnargetu Eystrasaltsríkjanna og starfa með þeim.“ Skilaboðin séu þau að NATO standi sterkt að baki aðildarríkjum sínum og hafi bæði getu og vilja til að koma þeim til verndar gegn hvers konar ógn. „Allt sem NATO gerir er gert í varnarskyni, í réttu hlutfalli og það er algjörlega í takt við skuldbinding- ar okkar. NATO verður að bregðast við þegar við sjáum aðgerðaglaðara Rússland haga sér á þann hátt sem Rússar hafa gert síðasta árið.“ Einnig kom fram í máli Stolten- bergs í gær að NATO stæði frammi fyrir margvíslegum áskorunum. „Stríðsátök, óstöðugleiki og óör- yggi, auk flóttamannavanda sem er hörmuleg afleiðing þess óróa sem við sjáum suður af okkur. Við þessu bregst NATO,“ sagði hann. Verið væri að koma á mestu aukn- ingu sameiginlegra varna banda- lagsins frá lokum kalda stríðsins. Komið hafi verið á fót sameiginlegu viðbragðsherliði sem brugðist geti við með mjög stuttum fyrirvara og komið hafi verið upp smærri stjórn- stöðvum í Austur-Evrópu. Ráðherra- fundurinn samþykkti að bæta við tveimur slíkum í Ungverjalandi og Slóvakíu, til viðbótar við þær sem í síðasta mánuði voru virkjaðar í Búlg- aríu, Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Póllandi og Rúmeníu. Um leið áréttaði Stoltenberg að lausn mála í Sýrlandi þyrfti að vera á sviði stjórnmálanna. „Til lengri tíma leysir hernaður engan vanda í landinu. Bardaga þarf að stöðva og pólitíska lausn verður að finna.“ Áhyggjuefni væri að her Rússa, sem látið hefur til sín taka í landinu, beini spjótum sínum ekki aðallega að stríðsmönnum Íslamska ríkisins (ISIS), heldur ráðist hann á hópa stjórnarandstæðinga og styðji sitjandi stjórn Sýrlands. „Framferði Rússa er ekki gagnlegt,“ sagði Stoltenberg og biðlaði til lands- ins um að leika fremur uppbyggilegt hlutverk og vinna með öðrum þjóð- um í baráttunni við ISIS. Stuðningur við Assad væri ekki uppbyggilegt framlag til friðsamlegrar og varan- legrar pólitískrar lausnar í Sýrlandi. Skilaboðin eru um vernd aðildarríkja Varnarmálaráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) samþykktu í gær fleiri aðgerðastöðvar í austanverðri Evrópu. Stór- aukinn viðbúnaður er viðbragð við framferði Rússa, segir framkvæmdastjóri NATO. Biðlað til Rússa að hætta að styðja Sýrlandsforseta. Telur Rússa verða fyrir mannfalli Tveir Frank og einn Casper NATO verður að bregðast við þegar við sjáum aðgerðaglaðara Rússland haga sér á þann hátt sem Rússar hafa gert síðasta árið. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO NATO Ashton Carter, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, segir Rússa á leið síaukinnar einangrunar í alþjóðasamfélaginu, með aðgerðum sínum í öðrum löndum. „Rússar hafa ákveðið að vefja sig klæðum einangrunar. Því getur eng- inn snúið við annar en stjórnvöld í Rússlandi,“ sagði Carter á blaða- mannafundi í höfuðstöðvum NATO í Brussel í gær. Vísaði hann meðal annars til brota á fullveldi Georgíu og hvatti Rússa til að taka til baka viðurkenningu sína á héruðunum Suður-Ossetíu og Abkasíu sem sjálf- stæðum ríkjum. Sama kom svo fram í sameiginlegri ályktun varnarmála- ráðherra NATO. Þá sagði Carter Rússa á kolrangri leið í Sýrlandi með stuðningi sínum við Assad Sýrlandsforseta og líkti því við að þeir hefðu hlekkjað sig við sökkvandi skip. Í aðgerðum þeirra þar hafi endurtekið sig þekkt saga þar sem mikill munur hafi verið á orðum og athöfnum Rússa. Þeir hafi lýst því yfir að þeir ætluðu að leggja lið baráttunni við ISIS, en ráðist svo á andstæðinga Assads í landinu. „Afstaða Rússa kemur til með að lengja stríðsátök í landinu,“ sagði hann og kvað Bandaríkjamenn ekki myndu starfa með Rússum á meðan þeir viðhalda sömu stefnu í Sýrlandi, þar sem hegðan þeirra verði sífellt óábyrgari. „Ég spái því að á komandi dögum verði mannfall í liði Rússa í Sýrlandi,“ sagði Ashton Carter. – óká Óli Kristján Ármannson frá Brussel olikr@frettabladid.is HVOR ER HVAÐ? „Við elskum Ísland. Sérstaklega af því að Íslendingar tóku okkur svo vel strax frá upphafi,“ segir Casper Christensen, aðalleikari dönsku gamanmyndarinnar Klovn Forever sem var frumsýnd í Háskólabíói í gærkvöldi. Íslenskur tvífari Franks Hvam, hins aðalleikara myndar- innar, var á staðnum og átti fólk erfitt með að þekkja þá í sundur. „Myndin er jú góð, en ekki jafn góð og fyrri Klovn-myndin,“ segir réttur Frank og hlær. FréttaBlaðið/anton Brink 9 . O k T ó b e r 2 0 1 5 F Ö S T U D A G U r6 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 3 -3 6 E 0 1 6 C 3 -3 5 A 4 1 6 C 3 -3 4 6 8 1 6 C 3 -3 3 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 8 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.