Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 34
Geðhvarfahópur hittist á kl. 20 á fimmtudögum. Sveinn Rúnar Hauksson lækn-ir hefur verið í geðhvarfahóp frá því hann var stofnaður 14. október 1999. „Fundirnir voru fyrst kl. 21 á fimmtudagskvöldum. Við fengum inni í húsnæði Geð- hjálpar og höfum notið þeirrar vel- vildar alla tíð síðan,“ segir Sveinn Rúnar. „Fundirnir hafa núna færst fram og eru kl. 20. Þeir eru haldn- ir í húsnæði Geðhjálpar í Borgar- túni 30,“ segir hann. „Að taka þátt í sjálfshjálparhóp fyrir þá sem greinst hafa með geð- hvörf hefur gefið mér geysimik- ið. Þarna er gætt nafnleyndar og trúnaðar í hvívetna og þess vegna er hægt að tala algerlega opið um reynslusögu sína og líðan hverju sinni. Að deila reynslu, styrk og vonum með öðrum er ómetanlegt. Það er alveg sama hvort við erum tvö eða sjö á fundinum, þá ríkir einlægni og hlýja sem veitir manni styrk,“ segir Sveinn og bætir við: „Svo finnst mér þetta virka sem kompás. Ég átta mig betur á því hvar ég stend, hvort sem ég er í þyngri kantinum eða öfugt. Fund- irnir minna mig á hvernig komið var fyrir mér þegar erfiðast var og hvað hefur áunnist. Mér líður alltaf betur eftir hvern fund.“ „Fundirnir ganga ekki beint út á ráðgjöf, heldur að deila reynslu. En það er oft spjallað saman eftir fundinn, og þá gjarnan skipst á góðum ráðum, eða kannski mis- góðum eftir atvikum. En alltaf skal maður finna að maður stend- ur ekki einn,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson. Ómetanlegt að deila reynslu með öðrum Sveinn Rúnar Hauksson segir að það hafi gefið sér mikið að sækja fundi geðhvarfa- hóps. MYND/VILHELM Óli Laursen er búsettur á Blönduósi. Hann hefur sótt fundi hjá tilveruhóp um nokkurra mánaða skeið. Það gerir hann í gegnum Skype í tölvunni. Fundirnir eru kl. 19.30 á þriðjudögum. Mér hafði lengi liðið eins og ég væri einn í heimin-um, ég var mikið búinn að velta því fyrir mér hvað ég gæti gert til að styrkja og efla sjálfan mig,“ segir Óli. „Þar sem engin þjónusta var í boði hér setti ég mig í samband við Geðhjálp og viðr- aði þá hugmynd hvort ekki væri möguleiki fyrir mig að taka þátt í hópastarfi í gegnum Skype. Það var tekið vel í það hjá Geðhjálp og í kjölfarið var ákveðið að gera til- raun með þetta og hefur það bara gengið mjög vel,“ segir Óli enn fremur. „Nú hef ég stundað fundi hjá til- veruhópnum um nokkurra mán- aða skeið og verð að segja að það hefur hjálpað mér mikið. Þetta hefur orðið til þess að ég er far- inn að taka mun meiri ábyrgð á mínum sjúkdómi og er mun með- vitaðri um hann í dag en ég var áður. Fundirnir fara þannig fram að það er lesinn upp inngangur og áhersla lögð á það að algjör trún- aður ríki, síðan er farinn einn hringur þar sem hver og einn fær að tjá sig um það sem hann vill og lögð er áhersla á það að fólk fái að tjá sig án þess að verið sé að grípa fram í. Eftir að búið er að fara einn hring og allir hafa fengið að tjá sig er farinn annar hringur þar sem fólk reynir að enda fundinn á jákvæðum nótum,“ útskýrir Óli. „Mér fannst alveg frábært hvað fólk er að gera stórkostlega hluti og lætur ekki veikindi aftra sér frá því að takast á við hin ýmsu verkefni. Eftir að ég byrj- aði í þessum hóp hefur mér farið mikið fram, ég er orðinn sáttari við mig og mínir eigin fordómar í garð sjúkdómsins hafa minnkað mikið. Ég er ekki lengur hrædd- ur við að tjá mig um veikindi mín. Mín reynsla af þessum hóp er bara góð og ég mæli hiklaust með honum við alla þá sem vilja efla sig og styrkja,“ Óli er far- inn að skrifa svolítið um veikindi sín á samfélagsmiðlum. „Ég vona að það nýtist einhverjum,“ segir hann. Ekki lengur einn í heiminum Óli Laursen hefur sótt tilverufundi í gegnum Skype með góðum árangri. Sjálfshjálparhópar góð leið til bata Sjálfshjálparhópar eru starfandi í húsakynnum Geðhjálpar í Borgartúni 30. Þeir sem sækja fundi hjá sjálfshjálparhópunum fá mikla hvatningu og stuðning í veikindum sínum. Gætt er fyllsta trúnaðar, trausts, nafnleyndar og samkenndar í jákvæðu umhverfi. Þátttakan er ókeypis og allir eru velkomnir. OK-fundir eru fyrir þá sem greindir eru með kvíðaröskun og/eða þunglyndi og hafa náð 20 ára aldri. Aðgangur er ókeypis en fundir fara fram alla miðvikudaga kl. 20. Sigríður Rúna Sigurðardótt-ir var greind með ofsakv-íða (e. panic disorder) fyrir nokkrum árum. Hún segir að það hafi verið á miklu álagstímabili í lífi sínu. Sigríður mætti á fyrsta fundinn í vor þegar hún frétti af OK-hópnum. „Ég hef verið alsæl síðan þá,“ segir hún. „Þegar ég mætti á fyrsta fundinn var ég auðvitað ansi kvíðin. Fyrir mér voru þetta ókunnugar aðstæð- ur. Ég hlustaði agndofa á fólkið í hópnum. Þetta fólk var einfald- lega að segja mína reynslusögu, alveg niður í smáatriði. Það var alveg magnað að heyra frásagnir sem gætu svo auðveldlega verið mínar eigin,“ segir Sigríður. Hvað hefur þátttakan gefið þér? „Ég brosti allan hringinn þegar ég gekk út af fundinum því þarna fann ég loksins and- legt fóður og næringu fyrir mína sársvöngu sál. Á næsta fundi fékk ég svo staðfestingu á því að þessi hópur væri „ættbálkur- inn“ minn sem ég hafði svo lengi leitað að. Þarna fann ég samleið með ókunnugu fólki sem skildi og þekkti líðan mína. Þarna fann ég loksins langþráðan skilning og mikla samkennd. Það eitt og sér hefur ótrúlega heilandi áhrif. Einnig það að geta deilt reynslu minni og fengið fróð- leik, stuðning og hvatningu frá öðrum. Að mæta á fundina er hluti af mínu bataferli, ég ein- set mér að mæta óháð því hvern- ig mér líður þann daginn. Ég er mjög þakklát fyrir að þessi vett- vangur sé til staðar fyrir fólk með kvíðaraskanir,“ segir Sig- ríður og bætir við að fundirn- ir séu með nokkuð óformlegu sniði, fundar stjóri leiði þó um- ræðuna hverju sinni. „Þetta er sjálfshjálparhópur þar sem fólk deilir reynslusögum með bata- miðaðri nálgun. Markmiðið er að þátttakendur fái hvatningu til að sigrast á veikindum sínum í öruggu umhverfi. Fundirnir eru byggðir á jafningjagrund- velli, þar ríkir trúnaður, traust, nafnleynd, samkennd og jákvætt hugarfar.“ OK-hópurinn er með síðu á Face book, Felmtursröskun-Ofs- akvíði. Þar eru umræður, fyrir- spurnir og ýmis fróðleikur. Góð hvatning og stuðningur til að sigrast á veikindum Sigríður Rúna segir að sjálfshjálparhópurinn hafi gert henni mjög gott. „Þetta fólk var ein- faldlega að segja mína reynslusögu, alveg niður í smáatriði. Það var alveg magnað að heyra frásagnir sem gætu svo auðveldlega verið mínar eigin,“ segir Sigríður. MYND/VILHELM Ég brosti allan hringinn þegar ég gekk út af fundinum því þarna fann ég loksins andlegt fóður og næringu fyrir mína sársvöngu sál. Ég er ekki lengur hræddur við að tjá mig um veikindi mín. Mín reynsla af þessum hóp er bara góð og ég mæli hiklaust með honum við alla þá sem vilja efla sig og styrkja. Að deila reynslu, styrk og vonum með öðrum er ómetanlegt. KOMDU Í FÓTBOLTA 9. október 2015 FÖSTUDAGUR6 l Geðhjálp 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 2 -3 6 2 0 1 6 C 2 -3 4 E 4 1 6 C 2 -3 3 A 8 1 6 C 2 -3 2 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 8 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.