Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 60
9 Það eru margir farnir að vekja athygli á matarsóun og reyna að sporna gegn henni og breyta þessari þróun,“ segir Steinunn Jónsdóttir, önnur söngkona hljómsveitarinnar AmabAdama. Lagið, sem kemur út í dag og hefur ekki enn hlotið nafn, er gert í samstarfi við Kvenfélagasamband Íslands sem hafði samband við hljómsveitina og bað þau um aðstoð við að vekja athygli á málefninu en þriðjungur þess matar sem ætlaður er til manneldis í heiminum endar í tunnunni og það eru um 1,3 millj- arðar tonna á ári. „Við sögðum bara já. Þetta er alveg eitthvað sem liggur okkur á hjarta. Við ákváðum að semja þetta lag svolítið út frá okkur. Við erum alveg þessi kynslóð sem er svolítið gjörn á að kaupa bara nýtt í staðinn fyrir að nýta afganga. Þannig að þetta var líka vakning fyrir okkur að temja okkur betri siði.“ Hún segir þau í hljómsveitinni leggja áherslu á að tónlistin búi yfir einhvers konar boðskap enda tón- listin kjörin miðill til þess að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri líkt og fjöldi tónlistarmanna hefur nýtt sér í aldanna rás. „Til dæmis er Gaia lag sem fjallar um að við þurf- um að fara betur með náttúruna. Við erum samt ekkert að predika lög og reglur yfir fólki en við reynum að semja lög með einhverjum boðskap sem liggur okkur á hjarta og hefur vonandi einhver áhrif.“ Lagið er samið af Gnúsa Yones og hann og Steinunn sömdu text- ann í sameiningu. Steinunn segir lagið halda í reggístemninguna sem hljómsveitin er þekkt fyrir og söngvararnir þrír skipti á milli sín erindum í laginu, líkt og í smell- inum Hossa hossa sem kom út í fyrrasumar. Hún segir verkefnið vissulega hafa vakið þau til umhugsunar um matarsóun og hversu stórt vandamál hún er. „Maður kaupir oft of mikið inn. Við fórum kannski og gerðum stórinnkaup einu sinni í viku og svo rann fullt út áður en við náðum að klára það. Við erum bara lítil fjöl- skylda með tveggja ára strák sem fær morgunmat á leikskólanum þannig að það hentar okkur kannski ekkert að vera að gera einhver risainnkaup einu sinni í viku,“ segir Steinunn að lokum. gydaloa@frettabladid.is Vaknaði upp við vondan draum í þarsíðustu viku langaði í gott salat en átti ekki papriku stóð í frekar langan tíma algjörlega ráðþrota þar til ég ákvað að skoða í skápana hvað þar mætti nota. Ætti kannski út í búð að hlaupa, þar sem allt má kaupa hún er opin bæði nótt og dag. Nei! um að gera að nýta afganga ofan í maga svanga bætum með því okkar neyslu háttalag. Ég á alveg frekar auðvelt með að leyfa mér að gleyma, að margt það sem ég eyði í var ekki ræktað hérna heima. Heldur hefur það kannski ferðast mörg hundruð kílómetra ég kaupi það en klára ekki því mig langar í eitthvað betra. Best að labba út í búð og kaupa bara það sem að maður þarf og það sem að maður þarf verður það sem ofan í magann hvarf á bágt með að horfa á fulla ruslafötuna mína af mat vil helst takmarka ruslið við mylsnurnar á borðinu þar sem ég sat. Watagwan mann, gemmér ljóta bananann, þó hann líti illa út þá er hann algjört namminamm, stundum mat mann nota kann sem að í gær útrann ef hann lyktar vel þá gerir hann mann ekki sjúkan og getur verið algjört nammmm. Við skulum ekki sóa matnum, veitum athygli öllu því sem hefur verið sagt um áhrif þess á jörðina sem að okkur er svo annt um verum meðvitaðri um það sem er að ské. Ég pæli stundum í því að þegar að amma mín var ung át fólk reiktan sviðakjamma og súrsaðan hrútspung fékk epli einu sinni á ári og naut hvers einasta munnbita. Ætli sá matinn frekar klári sem að þarf fyrir honum að strita? Fleira fólk og meiri neysla hraðari framleiðsla fylgjum því sem stendur umbúðunum á en það má alveg draga stimpilinn í efa um að gera að opna og þefa og með því kannski komast sóun hjá. Því það er glatað, hversu mörg landsvæði á jörðinni maðurinn hefur skaðað, til að rækta meir en er ekki nú úr meira en nóg að hafa? Ættum að taka höndum saman og temja okkur meiri aga, nýta matinn betur, henda minna og vandamálið laga. AmabAdamA matarsóun Um þriðjungur þess matar sem ætlaður er til manneldis í heiminum endar í ruslinu. Hljómsveitin AmabAdamA leggur sitt lóð á vogarskálarnar og gefur út lag í dag sem ætlað er að vekja fólk til umhugsunar um málefnið. Við ákVáðum Að semjA þettA lAg sVolítið út frá okkur. Við erum AlVeg þessi kynslóð sem er sVolítið gjörn á Að kAupA bArA nýtt í stAðinn fyrir Að nýtA AfgAngA. texti lagsins 9 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F Ö S t U D A G U r36 L í F i ð ∙ F r É t t A b L A ð i ð 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 3 -0 F 6 0 1 6 C 3 -0 E 2 4 1 6 C 3 -0 C E 8 1 6 C 3 -0 B A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 8 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.