Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 38
Í síðasta þætti af Matargleði lagði Eva áherslu á rétti sem tilvalið er að bera fram í saumaklúbbnum eða þá þegar vinahópurinn hittist. Antipasti-platti með heimabök- uðu foc accia-brauði og ljúffeng gúllas súpa sem yljar á köldum dögum og hittir alltaf í mark. Forréttur eða smáréttur sem til- valið er að bera fram þegar þið fáið gesti í mat, einfalt og fljót- legt að setja saman. Sitt lítið af hverju, eitthvað fyrir alla. Antipasti-platti Hráskinka Þistilhjörtu Ólífur, svartar og grænar Pestó Ofnbakaður camembert með pekanhnetum og hunangi Primadonna eða annar góður ostur Góð sulta, t.d. rifsberja með ost- unum Focaccia með hvítlauk og rós- maríni Góð ólífuolía Maldon-salt Focaccia með hvítlauk og rós- maríni 900 g hveiti 2 msk. hunang ½ tsk. salt 100 g smjör 500 ml mjólk 4 tsk. þurrger 3–4 msk. ólífuolía 4 hvítlauksrif, smátt skorin 2 msk. rósmarín, smátt saxað Hitið mjólkina í potti við vægan hita (mjólkin á að vera volg). Bætið þurrgeri og 2 msk. af hun- angi út í mjólkina og látið standa í 4–5 mínútur. Bræðið smjör við vægan hita. Blandið öllu saman og hnoðið deigið vel eða þar til það er slétt og sprungulaust. Þá er deigið látið hefast undir viskastykki þar til það hefur tvöfaldast að stærð eða í um það bil 50–60 mínútur. Því næst er ofnskúffa smurð með ólífuolíu, deigið sett í skúffuna og því þrýst jafnt út í alla kanta. Viskastykki lagt yfir og látið hef- ast í um það bil 30 mínútur til viðbótar. Þegar brauðið hefur lyft sér er fingri stungið í brauðið og mynd- aðar holur á nokkrum stöðum. Því næst stingið þið hvítlauksrifjum í Ljúffengur pLatti sem gleður Ljúffeng gúllassúpa, heimabakað focaccia-brauð og antipasti-platti eru tilvaldir réttir þegar vinirnir koma í heimsókn. Girnilegir réttir og fallega bornir fram. deigið og sáldrið bæði ólífuolíu og söxuðu rósmaríni yfir deig- ið. Það er líka mjög gott að setja gróft sjávarsalt yfir í lokin. Bakið brauðið við 200°C í 15-20 mínútur eða þar til brauðið er orðið gullinbrúnt. Berið fram með góðri ólífuolíu. Bakaður camembert með pekanhnetum og hunangi 1 camembert handfylli pekanhnetur 1–2 msk. hunang Fersk bláber Opnið umbúðirnar á ostinum, stingið nokkur göt í ostinn svo hann opnist betur. Setjið hand- fylli af hnetunum yfir og bakið við 180°C í nokkrar mínútur eða þar til osturinn byrjar að bráðna. Setjið 1–2 msk. af hunangi yfir í lokin og sáldrið ferskum bláberj- um yfir. Gúllassúpa 600–700 g nautagúllas 2 msk. ólífuolía 3 hvítlauksrif, marin 1 meðalstór laukur, smátt skorinn 2 rauðar paprikur, smátt skornar 2 gulrætur, smátt skornar 1 sellerístöng, smátt skorin 1 msk. fersk söxuð steinselja 5 beikonsneiðar, smátt skornar 1 ½ l vatn 2–3 nautakraftsteningar 1 dós niðursoðnir tómatar 1 msk. tómatpúrra 1 meðalstór rófa, skorin í litla bita 5–6 kartöflur, skrældar og niður- skornar Salt og pipar, magn eftir smekk 1 tsk. kummin 1 tsk. paprikuduft Hitið olíu við vægan hita í potti, mýkið hvítlauk og lauk í smá- stund. Bætið nautakjötinu, papr- ikum, gulrótum, sellerí, steinselju og beikoni saman við og brúnið í 5–7 mínútur. Bætið vatninu og teningum saman við, hrærið vel í. Setj- ið tómatana, tómatpúrru, rófu og kartöflur ofan í súpuna. Krydd- ið til með salti, pipar, papriku- kryddi og kummin. Leyfið súp- unni að malla í 40–60 mín. við vægan hita. Berið súpuna fram með brauði og ef til vill smá sýrðum rjóma. FÁRÁNLEGA FLOTTUR PAKKI Aðeins 310 kr. á dag SKEMMTIPAKKINN Vandað sjónvarpsefni og fjarskipti á frábæru verði 365.is Sími 1817 Með Skemmtipakkanum fylgja sex sjónvarpsstöðvar. Spennandi íslenskir og erlendir þættir, kvikmyndir og vandað talsett barnaefni. Að auki fá áskrifendur internet, heimasíma, Stöð 2 Maraþon og aðild að Vild.* Með því að greiða 1.990 kr. aukalega færðu endalaust tal og 1 GB í GSM. *20 GB í interneti og 100 mín. í heimasíma á 0 kr. Greitt er 9,7 kr. upphafsgjald þegar hringt er úr heimasíma. Nánari upplýsingar á 365.is FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT á 365.is Matarvísir 8 • LÍFIÐ 9. OKtóBer 2015 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 3 -9 4 B 0 1 6 C 3 -9 3 7 4 1 6 C 3 -9 2 3 8 1 6 C 3 -9 0 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 8 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.