Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 39
Skvísurnar í ZikZak bjóða frábæra þjónustu, Berglind Ásgeirsdóttir, Sigríður Ómarsdóttir, Guðný Sigurðardóttir og Ólöf Bjarnadóttir. MYND/VILHELM NÝJASTA HAUSTTÍSKA Á KRINGLUKASTI Það verður mikið um að vera í versluninni ZikZak í Kringlunni um helgina. Kringlukast stendur yfir og fjöldi góðra afslátta er í boði. Þá verður tískusýning á morgun þar sem Helga Braga, Brynja Valdís og fleiri skvísur sýna nýja haustlínu ZikZak. „Við erum með fulla búð af nýjum og fallegum haustfatnaði. Auk þess vorum við að taka upp stórglæsilega sendingu af vetrarskóm frá hinu vin- sæla merki JessiGirl. Margar konur hafa beðið eftir þessum skóm en þeir eru eftirsóknarverðir vegna þess að þeir eru á rosalega góðu verði, frá 5.990 til 11.990 króna,“ segir Berglind Ásgeirsdóttir, einn af eigendum ZikZak, og bætir við að starfsmenn verslunarinnar séu ákaf- lega glaðir þessa dagana með að mátunarklefum hefur verið fjölgað í versluninni. „Það hefur verið mjög mikið að gera hjá okkur undanfarið og það var leiðinlegt að sjá að við- skiptavinir okkar þyrftu að bíða til þess að komast í mátunarklefann. Nú höfum við bætt úr því,“ segir Berglind glöð. ZikZak hefur í þrjú ár í röð feng- ið verðlaun fyrir framúrskarandi þjónustu meðal verslana í Kringl- unni. „Við erum ákaflega stoltar af þessum verðlaunum, en það voru óháðir aðilar á vegum Kringlunnar sem voru fengnir í að meta þjón- ustuna,“ segir Berglind enn frem- ur. „Við leggjum mikla áherslu á að veita mjög góða þjónustu.“ Um helgina verður margt að ger- ast. „Við verðum með tískusýningu fyrir framan verslunina á morgun kl. 14 og plötusnúður hitar upp með góðri tónlist. Þar munum við sýna nýju haustlínuna okkar, kjóla, spari- toppa, túnikur, jakka, úlpur og fleira áhugavert. Helga Braga, Brynja Valdís og fleiri skvísur sýna haust- tískuna okkar sem er fyrir konur á öllum aldri í stærðum frá 36-56. Hingað eru allar konur velkomn- ar og skiptir stærð eða aldur ekki máli, við hjálpum þeim að finna réttu fötin, hvort sem það eru vinnuföt eða sparifatnaður. Við erum ekki bara þekktar fyrir góða þjónustu og gott úrval heldur einnig rosalega gott verð. Hér er hægt að fá kjóla frá 2.990 krónum. Við verðum með fullt af frábærum tilboðum í versluninni. Afsláttur verður 20-50% af völdum vörum,“ segir Berglind. Einnig verð- ur í gangi happdrætti en nokkrar heppnar fá að launum dress úr nýju haustlínunni okkar. Dregið verður á þriðjudag. ZikZak er með Facebook-síðu undir heitinu Tískuhús ZikZak en þar verður einnig í gangi leikur um helgina. „Við erum með mjög virka síðu á Facebook þar sem við setj- um stöðugt inn nýjar myndir af vör- unum okkur, viðskiptavinir okkar utan af landi eru mjög duglegir við að skoða það nýjasta og panta símleiðis, við munum einnig vera til þjónustu reiðubúnar á Kringlu- kasti,“ segir Berglind og býður alla velkomna á Kringlukast um helgina. Kjóll 7.990 kr. Kjóll 5.990 kr. Túnika 4.990 kr. Kjóll 5.990 kr. Áður 5.990 kr. Kjóll á tilboði 2.990 kr. Mikið úrval af fallegum skóm á frábæru verði. Skór 8.990 kr. Skór 11.990 kr. AUGLÝSING/ZIKZAK KyNNIR Skór 9.990 kr. 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 3 -F C 6 0 1 6 C 3 -F B 2 4 1 6 C 3 -F 9 E 8 1 6 C 3 -F 8 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 8 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.