Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 12
hafði samráð við lögfræðing Alþingis um það. Ég var ekki að vinna fyrir þetta fyrirtæki eftir að ég varð ráð- herra. Hitt er hins vegar og það eru fjölmörg dæmi um það að þingmenn hafa verið að vinna samhliða sinni þingmennsku, meira að segja fyrir opinberar stofnanir og einkafyrirtæki. En það getur aldrei verið svo sem ráð- herra og það hefur ekki verið þannig hjá mér.“ Hverjar voru launagreiðslurnar? Um hvaða upphæðir er að ræða? „Menn geta séð það í tekjublöðum sem eru gefin út, þar sem mín laun og margra annarra eru birt. Þeir vita hver þingmennskulaunin eru. Ég ítreka það að öll þau störf sem þarna voru unnin voru unnin erlendis. Þetta fyrirtæki, eftir því sem ég best veit, hefur enga hagsmuni hér heima. Það er ekki íslenskt fjármagn inni í þessu fyrirtæki, það hefur enga starfsemi hér. Hvað varðar spurningarnar um launa- greiðslurnar: Ég var að ljúka þessum störfum og koma aftur til þingsins. Ég var að vinna þarna þegar ég var utan þings, ég bendi bara á þetta, menn geta séð þessar tölur inni í öllum þessum tekjublöðum, og geta reiknað út hvaða laun ég hef haft annars staðar og svo framvegis. Meira vil ég ekkert segja um það mál. Þetta eru opinber gögn.“ Málið kom upp eftir þátttöku Orku Energy í ferð Illuga til Kína í lok mars. Fréttir birtust af því að fulltrúar frá Orku Energy hefðu verið í íslensku sendinefndinni sem fór til Kína. Upphaflega var aðkoma fyrirtækis- ins kynnt þannig, stóð það einhvern tímann til? „Nei, það stóð ekki til. Orka Energy var ekki í þessari sendinefnd. Sendinefndin var skipuð mér sem ráðherra, embættismönnum frá ráðu- neytinu, síðan voru rektorar þriggja háskóla, HÍ, HR og LHÍ, og síðan for- stjóri Rannís. Þetta endurspeglar áherslurnar í þessari ferð og þetta sem ég hef séð haldið fram í umræðu að ég hafi farið sérstaklega í þessa ferð á vegum þessa fyrirtækis eða fyrir þetta fyrirtæki til Kína er fráleitt. Þessi sendinefnd var svona samansett því við vorum að funda með háskólum, háskólastofnunum og með vísinda- stofnunum. Síðan ráðherrum mennta- mála, menningarmála og vísinda ásamt öðrum. Það var aldrei hugsunin að fulltrúar frá Orku Energy eða Marel ættu að vera í sendinefndinni, en full- trúar þessara fyrirtækja voru staddir í Peking á þessum tíma. Og það gleymist líka alltaf í umræðunni, að Marel var þarna líka.“ Einn af nánustu vinunum Eruð þið Haukur Harðarson, stjórnar- formaður Orku Energy, vinir? „Já, hann er einn af mínum nánustu vinum. Það er ekkert óeðlilegt að það sé spurt að þessu, en já, það er svo. Þess vegna var ég ekkert að selja Orku Energy íbúðina okkar hjóna. Ég seldi þessum vini mínum, hann keypti hana og ég afhenti í staðinn þessa eign. Síðan var gerður með okkur samningur um húsaleiguna. Sá samningur nær til ára- móta núna. Og nú erum við hjónin að leita okkur að nýrri íbúð til að kaupa. Og þið ætlið ekkert að kaupa gömlu íbúðina aftur? „Nei, þó okkur langi um margt til þess. Okkur líður vel þarna og stelpan okkar þekkir ekkert annað. En ég verð að segja alveg eins og er að það er komið óbragð í munninn á manni með þetta mál allt saman, svo það hentar ágætlega að skipta um stað. Við erum ekki stór fjölskylda og þurfum ekki mikið pláss.“ Telurðu tengsl þín við Hauk Harðar- son á einhvern hátt óheppileg fyrir þig í þinni stöðu? „Nei, ég er ekki þeirrar skoðunar. Þetta fyrirtæki hefur enga starfsemi á Íslandi eftir því sem ég kemst næst. Ég seldi manni húsnæðið mitt og leigi það tímabundið – út þetta ár. Auðvitað í okkar fámenna samfé- lagi þekkist fólk fram og til baka. Menn geta átt skólavinskap, persónulegan vinskap og þar fram eftir götunum. Síðasta ríkisstjórn studdi á sama hátt við þessa vinnu. Það er ástæðan fyrir að Jóhanna Sigurðardóttir er búin að vera á fundum með þessu fyrirtæki, það er ástæðan fyrir að Össur Skarp- héðinsson hefur verið á fundum með þessu fyrirtæki og fleiri. Menn hafa verið að gera þetta og það nákvæmlega sama gildir um mig. Þetta er mikilvægt fyrir íslenska hagsmuni. Þarna eru miklir peningar og tækifæri í húfi sem er ekkert sjálfgefið að Íslendingar fái að njóta góðs af.“ Illugi hefur einnig verið spurður út í veiðiferð sem hann fór í Vatnsdalsá í fyrrasumar þar sem Haukur Harðar- son var einnig. Hver greiddi fyrir leyfið? „Þeir sem höfðu átt þennan veiðitíma í ánni for- fölluðust en, eins og ég skil það, höfðu greitt inn á. Þó að mér finnist gaman að veiða þá finnst mér það ekki það gaman að ég sé tilbúinn að borga 200 þúsund fyrir það, eins og mér skilst að uppsett verð sé á þeim tíma sem við veiddum þarna. En ég er með kvittun fyrir minni greiðslu þannig að við borguðum fyrir okkur í þessari ferð, hún var ekki löng.“ Hver var með þér í ferðinni? „Ég gef fjölmiðlum ekki upp um ferðir annarra manna, hvar þeir hafa verið og hvar þeir hafa ekki verið. En spurn- ingin snýr fyrst og fremst að þessu, hvort ég hafi greitt fyrir mig, við höfum kvittun fyrir okkar. Það kostaði sko ekki 200 þúsund.“ Sast þú í stjórnum fyrirtækja eða félaga á síðasta kjörtímabili eða á yfirstandi kjörtímabili? „Ég sat ekki í neinum stjórnum á vegum Orku Energy og hef aldrei gert. Hvað varðar stjórnarsetu í öðrum fyrirtækjum á síðasta kjörtímabili, þá var það ekki fyrir utan að ég sat í stjórn listahá- tíðarinnar Djúpið. Sú stjórnarseta var á síðasta kjörtímabili og náði inn á þetta kjörtímabil. Eðlilega sagði ég mig úr þeirri stjórn, ég var orðinn menntamálaráðherra og það passaði ekki. Ég er reyndar enn þá varamaður í sóknarnefnd Dómkirkjunnar. Hvað varðar önnur fyrirtæki þá er það ekki svo að ég sitji í stjórnum.“ Hvað varst þú að gera í Kína í júní 2013? „Þá komum við aftur að svona prinsippatriði, sem er þetta – ber mönnum að gera grein fyrir ferðum sínum sem þeir fara á einkavegum? Ég veit það ekki. Þegar ég var úti í námi í London átti ég vini frá Singapúr, og á enn – mikið af vinum í Asíu. En ég ætla að draga þessa línu, ég ætla ekki að gera grein fyrir þeim ferðum opin- berlega sem ég fer í einkaerindum í lífinu. Ekki núna og ekki seinna.“ En með því að láta ekki ná í þig, svara ekki fyrirspurnum fjölmiðla – gerir þetta þig ekki grunsamlegan? „Ég skil vel þessa skoðun en ég bið líka menn að hafa það í huga að stundum gerist það í fjölmiðlaumfjölluninni að þau sjónarmið sem koma fram týnast. Mér fannst ég vera farinn að búa til fréttir með því að svara sömu spurningunum aftur. Ég er að ræða þetta opinberlega núna með þessum hætti, meðal annars vegna þess að þetta hefur komist aftur í hámæli. En ég geri mér heldur engar væntingar um að umræðunni sé hér með lokið.“ Ætlar ekki að segja af sér Ætlarðu að segja af þér? „Nei, auðvitað ekki. Ég held það sé ekkert í þessu máli sem kallar á það. Það má alveg segja það um mig eins og þið hafið bent á hér að það er kallað eftir meiri skýr- ingum af minni hálfu. Ég tel það að ég hafi selt íbúðina mína með þinglýstu afsali geta ekki gert það að verkum að þarna hafi eitthvað gerst sem kallar á afsögn. En ég er ekkert að biðjast undan þessari umræðu og veit að það er vel hægt að gera ýmislegt tortryggi- legt. Það hefur verið gert en þetta eru mínar skýringar.“ Sérðu fyrir þér að þú munir halda áfram í stjórnmálum? „Já, ég á ekki von á öðru. Reyndar er það svo að ég hef alla tíð í minni stjórnmálaþátttöku haft það mjög hugfast að það er ekkert sorglegra en stjórnmálamenn sem líta á stjórnmál sem upphaf og endi alls. Ég hef verið starfandi í stjórnmálum innan gæsalappa sem atvinnumaður frá því ég kom heim úr námi frá Eng- landi árið 2000.“ visir.is Viðtalið má hlusta á í lengri útgáfu á Vísir.is, í hlaðvarp- inu Föstudagsviðtalið. Hann segist ekki vera að íhuga að skipta um starfsvettvang. „Ég hef ekki í huga að breyta um starfsvettvang en hef þetta alltaf hugfast að eiginlega allir eru ekki í stjórnmálum ef svo má að orði komast. 99 komma eitthvað prósent Íslendinga eru ekki í stjórn- málum og fólk lifir innihaldsríku og skemmtilegu lífi þar sem það er að fást við krefjandi og spennandi verkefni sem eru ekki pólitík. Ég held að allir stjórnmálamenn eigi að hafa það hug- fast að hugsa ekki með sér að það eina sem menn geti gert í lífinu sé að vera í stjórnmálum. Það er liðin tíð.“ Bætir ekki mína stöðu Hann sér ekki fyrir sér að vera í stjórnmálum á gamals aldri. „Nei, það myndi mér nú þykja dapurlegt, hreint út sagt,“ segir Illugi og hlær. „Það sem hefur breyst í stjórnmálum frá því sem áður var er að líftími fólks í stjórnmálum er styttri heldur en var hér á tímum Bjarna Ben, Ólafs Thors og þessara manna. Fjarlægð þeirra frá kjósendum, umræðunni og öllu slíku var miklu meiri. Fjölmiðlun var fábreyttari og alls ekki jafn aðgangs- hörð og hún er í dag. Flokksblöðin voru að rífast, en þessir menn voru ekki á sjónvarpsskjáum landsmanna á hverju kvöldi og svo framvegis. Þeir gátu setið lengur. Annars er það alltaf  undir kjós- endum komið hvort maður haldi áfram í stjórnmálum. Það er þangað sem menn leita eftir trausti. Og leggja sín verk í dóm. Ég hef verið að vinna í menntamálunum, íþróttamálunum og menningarmálunum á þessu kjör- tímabili. Er að gera heilmiklar breyt- ingar í menntamálunum sérstaklega og ég mun ganga óhræddur til þess að kynna og leggja fram mín verk fyrir kjósendur hvort sem er í prófkjöri eða kosningum.“ Heldurðu að Orku Energy-málið muni draga dilk á eftir sér? „Það er örugglega ekki til þess fallið að bæta mína stöðu. Augljóst má það vera. Þetta gerðist. Við því er ekkert að segja annað. Ég hef núna sett fram mínar skýringar og hafði reyndar áður sett fram stóran hluta þeirra. Ég á ekkert von á því að það mál hverfi eftir þetta samtal okkar hér. Ég tel mig hafa gengið nokkuð langt í því að upplýsa um mín persónulegu fjármál, ástæðu þess að við seldum íbúð okkar, leigu- greiðslur og annað slíkt. Ég hef síðan vitnað til ummæla fræðimanna og annarra um þennan gjörning. En fyrst og síðast hef ég verið að benda á að menn ættu að skoða hver tildrög ferðar minnar til Kína voru, í boði kínverskra stjórnvalda, hverjir voru með í þeirri ferð, með hverjum var verið að funda, hverjar voru áherslur þeirra ferðar og þá sjá menn auðvitað að þetta var ekki lagt upp fyrir eitthvert einkafyrirtæki. Hvorki Orku Energy né Marel sem var í sömu stöðu og Orka var í þessari ferð. Út á það gengur þetta mál.“ Þú munt þá gefa kost á þér í næstu alþingiskosningum? Ég er orðinn það sjóaður í þessum málum að ég læt nú bara það svar duga að ég ætla mér að halda áfram í stjórnmálum. Enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Ef ég stend frammi fyrir því að það eru einhverir aðrir spennandi hlutir sem mig langar til að gera þá auðvitað horfi ég til þess. Menn eiga að vera tilbúnir að horfa til allra átta hvað þetta varðar.“ Illugi segist ekki ætla að hætta í stjórnmálum í bráð og hefur ekki íhugað afsögn vegna málsins. FréttaBlaðIð/anton BrInk Ég skal játa það að fárviðrið varð svo mikið að það var eiginlega alveg sama hverju ég svaraði – sömu spurningarnar komu upp aftur, urðu þá tilefni nýrra frétta og nýrra fyrir- sagna. Mér leið þannig þegar mestur hamagangurinn var að það hefði nákvæmlega ekkert upp á sig að segja nokkuð. Ég er ekki að fara að opna heimabank- ann minn, eða mitt heimilis- bókhald fyrir blaðamönn- um. Það þýðir ekki endilega að fólk hafi eitthvað að fela. 9 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F Ö S t U D A G U r12 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 3 -0 F 6 0 1 6 C 3 -0 E 2 4 1 6 C 3 -0 C E 8 1 6 C 3 -0 B A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 8 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.