Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 12
hafði samráð við lögfræðing Alþingis
um það. Ég var ekki að vinna fyrir
þetta fyrirtæki eftir að ég varð ráð-
herra. Hitt er hins vegar og það eru
fjölmörg dæmi um það að þingmenn
hafa verið að vinna samhliða sinni
þingmennsku, meira að segja fyrir
opinberar stofnanir og einkafyrirtæki.
En það getur aldrei verið svo sem ráð-
herra og það hefur ekki verið þannig
hjá mér.“
Hverjar voru launagreiðslurnar?
Um hvaða upphæðir er að ræða?
„Menn geta séð það í tekjublöðum
sem eru gefin út, þar sem mín laun
og margra annarra eru birt. Þeir vita
hver þingmennskulaunin eru. Ég
ítreka það að öll þau störf sem þarna
voru unnin voru unnin erlendis. Þetta
fyrirtæki, eftir því sem ég best veit,
hefur enga hagsmuni hér heima. Það
er ekki íslenskt fjármagn inni í þessu
fyrirtæki, það hefur enga starfsemi hér.
Hvað varðar spurningarnar um launa-
greiðslurnar: Ég var að ljúka þessum
störfum og koma aftur til þingsins. Ég
var að vinna þarna þegar ég var utan
þings, ég bendi bara á þetta, menn geta
séð þessar tölur inni í öllum þessum
tekjublöðum, og geta reiknað út hvaða
laun ég hef haft annars staðar og svo
framvegis. Meira vil ég ekkert segja um
það mál. Þetta eru opinber gögn.“
Málið kom upp eftir þátttöku Orku
Energy í ferð Illuga til Kína í lok mars.
Fréttir birtust af því að fulltrúar frá
Orku Energy hefðu verið í íslensku
sendinefndinni sem fór til Kína.
Upphaflega var aðkoma fyrirtækis-
ins kynnt þannig, stóð það einhvern
tímann til? „Nei, það stóð ekki til. Orka
Energy var ekki í þessari sendinefnd.
Sendinefndin var skipuð mér sem
ráðherra, embættismönnum frá ráðu-
neytinu, síðan voru rektorar þriggja
háskóla, HÍ, HR og LHÍ, og síðan for-
stjóri Rannís. Þetta endurspeglar
áherslurnar í þessari ferð og þetta
sem ég hef séð haldið fram í umræðu
að ég hafi farið sérstaklega í þessa ferð
á vegum þessa fyrirtækis eða fyrir
þetta fyrirtæki til Kína er fráleitt. Þessi
sendinefnd var svona samansett því
við vorum að funda með háskólum,
háskólastofnunum og með vísinda-
stofnunum. Síðan ráðherrum mennta-
mála, menningarmála og vísinda
ásamt öðrum. Það var aldrei hugsunin
að fulltrúar frá Orku Energy eða Marel
ættu að vera í sendinefndinni, en full-
trúar þessara fyrirtækja voru staddir í
Peking á þessum tíma. Og það gleymist
líka alltaf í umræðunni, að Marel var
þarna líka.“
Einn af nánustu vinunum
Eruð þið Haukur Harðarson, stjórnar-
formaður Orku Energy, vinir? „Já, hann
er einn af mínum nánustu vinum. Það
er ekkert óeðlilegt að það sé spurt að
þessu, en já, það er svo. Þess vegna
var ég ekkert að selja Orku Energy
íbúðina okkar hjóna. Ég seldi þessum
vini mínum, hann keypti hana og ég
afhenti í staðinn þessa eign. Síðan
var gerður með okkur samningur um
húsaleiguna. Sá samningur nær til ára-
móta núna. Og nú erum við hjónin að
leita okkur að nýrri íbúð til að kaupa.
Og þið ætlið ekkert að kaupa gömlu
íbúðina aftur? „Nei, þó okkur langi um
margt til þess. Okkur líður vel þarna og
stelpan okkar þekkir ekkert annað. En
ég verð að segja alveg eins og er að það
er komið óbragð í munninn á manni
með þetta mál allt saman, svo það
hentar ágætlega að skipta um stað. Við
erum ekki stór fjölskylda og þurfum
ekki mikið pláss.“
Telurðu tengsl þín við Hauk Harðar-
son á einhvern hátt óheppileg fyrir þig
í þinni stöðu? „Nei, ég er ekki þeirrar
skoðunar. Þetta fyrirtæki hefur enga
starfsemi á Íslandi eftir því sem ég
kemst næst. Ég seldi manni húsnæðið
mitt og leigi það tímabundið – út þetta
ár. Auðvitað í okkar fámenna samfé-
lagi þekkist fólk fram og til baka. Menn
geta átt skólavinskap, persónulegan
vinskap og þar fram eftir götunum.
Síðasta ríkisstjórn studdi á sama
hátt við þessa vinnu. Það er ástæðan
fyrir að Jóhanna Sigurðardóttir er búin
að vera á fundum með þessu fyrirtæki,
það er ástæðan fyrir að Össur Skarp-
héðinsson hefur verið á fundum með
þessu fyrirtæki og fleiri. Menn hafa
verið að gera þetta og það nákvæmlega
sama gildir um mig. Þetta er mikilvægt
fyrir íslenska hagsmuni. Þarna eru
miklir peningar og tækifæri í húfi sem
er ekkert sjálfgefið að Íslendingar fái
að njóta góðs af.“
Illugi hefur einnig verið spurður út
í veiðiferð sem hann fór í Vatnsdalsá í
fyrrasumar þar sem Haukur Harðar-
son var einnig.
Hver greiddi fyrir leyfið? „Þeir sem
höfðu átt þennan veiðitíma í ánni for-
fölluðust en, eins og ég skil það, höfðu
greitt inn á. Þó að mér finnist gaman
að veiða þá finnst mér það ekki það
gaman að ég sé tilbúinn að borga 200
þúsund fyrir það, eins og mér skilst að
uppsett verð sé á þeim tíma sem við
veiddum þarna. En ég er með kvittun
fyrir minni greiðslu þannig að við
borguðum fyrir okkur í þessari ferð,
hún var ekki löng.“
Hver var með þér í ferðinni? „Ég
gef fjölmiðlum ekki upp um ferðir
annarra manna, hvar þeir hafa verið
og hvar þeir hafa ekki verið. En spurn-
ingin snýr fyrst og fremst að þessu,
hvort ég hafi greitt fyrir mig, við höfum
kvittun fyrir okkar. Það kostaði sko
ekki 200 þúsund.“
Sast þú í stjórnum fyrirtækja eða
félaga á síðasta kjörtímabili eða á
yfirstandi kjörtímabili? „Ég sat ekki
í neinum stjórnum á vegum Orku
Energy og hef aldrei gert. Hvað varðar
stjórnarsetu í öðrum fyrirtækjum á
síðasta kjörtímabili, þá var það ekki
fyrir utan að ég sat í stjórn listahá-
tíðarinnar Djúpið. Sú stjórnarseta
var á síðasta kjörtímabili og náði inn
á þetta kjörtímabil. Eðlilega sagði
ég mig úr þeirri stjórn, ég var orðinn
menntamálaráðherra og það passaði
ekki. Ég er reyndar enn þá varamaður
í sóknarnefnd Dómkirkjunnar. Hvað
varðar önnur fyrirtæki þá er það ekki
svo að ég sitji í stjórnum.“
Hvað varst þú að gera í Kína í júní
2013? „Þá komum við aftur að svona
prinsippatriði, sem er þetta – ber
mönnum að gera grein fyrir ferðum
sínum sem þeir fara á einkavegum? Ég
veit það ekki. Þegar ég var úti í námi
í London átti ég vini frá Singapúr, og
á enn – mikið af vinum í Asíu. En ég
ætla að draga þessa línu, ég ætla ekki
að gera grein fyrir þeim ferðum opin-
berlega sem ég fer í einkaerindum í
lífinu. Ekki núna og ekki seinna.“
En með því að láta ekki ná í þig, svara
ekki fyrirspurnum fjölmiðla – gerir
þetta þig ekki grunsamlegan? „Ég skil
vel þessa skoðun en ég bið líka menn
að hafa það í huga að stundum gerist
það í fjölmiðlaumfjölluninni að þau
sjónarmið sem koma fram týnast. Mér
fannst ég vera farinn að búa til fréttir
með því að svara sömu spurningunum
aftur. Ég er að ræða þetta opinberlega
núna með þessum hætti, meðal annars
vegna þess að þetta hefur komist aftur
í hámæli. En ég geri mér heldur engar
væntingar um að umræðunni sé hér
með lokið.“
Ætlar ekki að segja af sér
Ætlarðu að segja af þér? „Nei, auðvitað
ekki. Ég held það sé ekkert í þessu máli
sem kallar á það. Það má alveg segja
það um mig eins og þið hafið bent á
hér að það er kallað eftir meiri skýr-
ingum af minni hálfu. Ég tel það að ég
hafi selt íbúðina mína með þinglýstu
afsali geta ekki gert það að verkum að
þarna hafi eitthvað gerst sem kallar
á afsögn. En ég er ekkert að biðjast
undan þessari umræðu og veit að það
er vel hægt að gera ýmislegt tortryggi-
legt. Það hefur verið gert en þetta eru
mínar skýringar.“
Sérðu fyrir þér að þú munir halda
áfram í stjórnmálum? „Já, ég á ekki
von á öðru. Reyndar er það svo að ég
hef alla tíð í minni stjórnmálaþátttöku
haft það mjög hugfast að það er ekkert
sorglegra en stjórnmálamenn sem líta
á stjórnmál sem upphaf og endi alls.
Ég hef verið starfandi í stjórnmálum
innan gæsalappa sem atvinnumaður
frá því ég kom heim úr námi frá Eng-
landi árið 2000.“
visir.is Viðtalið má hlusta á
í lengri útgáfu á Vísir.is, í hlaðvarp-
inu Föstudagsviðtalið.
Hann segist ekki vera að íhuga að
skipta um starfsvettvang. „Ég hef ekki
í huga að breyta um starfsvettvang en
hef þetta alltaf hugfast að eiginlega
allir eru ekki í stjórnmálum ef svo má
að orði komast. 99 komma eitthvað
prósent Íslendinga eru ekki í stjórn-
málum og fólk lifir innihaldsríku og
skemmtilegu lífi þar sem það er að fást
við krefjandi og spennandi verkefni
sem eru ekki pólitík. Ég held að allir
stjórnmálamenn eigi að hafa það hug-
fast að hugsa ekki með sér að það eina
sem menn geti gert í lífinu sé að vera í
stjórnmálum. Það er liðin tíð.“
Bætir ekki mína stöðu
Hann sér ekki fyrir sér að vera í
stjórnmálum á gamals aldri. „Nei,
það myndi mér nú þykja dapurlegt,
hreint út sagt,“ segir Illugi og hlær.
„Það sem hefur breyst í stjórnmálum
frá því sem áður var er að líftími fólks
í stjórnmálum er styttri heldur en var
hér á tímum Bjarna Ben, Ólafs Thors
og þessara manna. Fjarlægð þeirra
frá kjósendum, umræðunni og öllu
slíku var miklu meiri. Fjölmiðlun var
fábreyttari og alls ekki jafn aðgangs-
hörð og hún er í dag. Flokksblöðin
voru að rífast, en þessir menn voru
ekki á sjónvarpsskjáum landsmanna
á hverju kvöldi og svo framvegis. Þeir
gátu setið lengur.
Annars er það alltaf undir kjós-
endum komið hvort maður haldi
áfram í stjórnmálum. Það er þangað
sem menn leita eftir trausti. Og leggja
sín verk í dóm. Ég hef verið að vinna
í menntamálunum, íþróttamálunum
og menningarmálunum á þessu kjör-
tímabili. Er að gera heilmiklar breyt-
ingar í menntamálunum sérstaklega
og ég mun ganga óhræddur til þess að
kynna og leggja fram mín verk fyrir
kjósendur hvort sem er í prófkjöri eða
kosningum.“
Heldurðu að Orku Energy-málið
muni draga dilk á eftir sér? „Það er
örugglega ekki til þess fallið að bæta
mína stöðu. Augljóst má það vera.
Þetta gerðist. Við því er ekkert að segja
annað. Ég hef núna sett fram mínar
skýringar og hafði reyndar áður sett
fram stóran hluta þeirra. Ég á ekkert
von á því að það mál hverfi eftir þetta
samtal okkar hér. Ég tel mig hafa
gengið nokkuð langt í því að upplýsa
um mín persónulegu fjármál, ástæðu
þess að við seldum íbúð okkar, leigu-
greiðslur og annað slíkt. Ég hef síðan
vitnað til ummæla fræðimanna og
annarra um þennan gjörning. En fyrst
og síðast hef ég verið að benda á að
menn ættu að skoða hver tildrög ferðar
minnar til Kína voru, í boði kínverskra
stjórnvalda, hverjir voru með í þeirri
ferð, með hverjum var verið að funda,
hverjar voru áherslur þeirra ferðar og
þá sjá menn auðvitað að þetta var ekki
lagt upp fyrir eitthvert einkafyrirtæki.
Hvorki Orku Energy né Marel sem var
í sömu stöðu og Orka var í þessari ferð.
Út á það gengur þetta mál.“
Þú munt þá gefa kost á þér í næstu
alþingiskosningum? Ég er orðinn það
sjóaður í þessum málum að ég læt nú
bara það svar duga að ég ætla mér að
halda áfram í stjórnmálum. Enginn
veit sína ævi fyrr en öll er. Ef ég stend
frammi fyrir því að það eru einhverir
aðrir spennandi hlutir sem mig langar
til að gera þá auðvitað horfi ég til þess.
Menn eiga að vera tilbúnir að horfa til
allra átta hvað þetta varðar.“
Illugi segist ekki ætla að hætta í stjórnmálum í bráð og hefur ekki íhugað afsögn vegna málsins. FréttaBlaðIð/anton BrInk
Ég skal játa það að
fárviðrið varð svo
mikið að það var eiginlega
alveg sama hverju ég svaraði
– sömu spurningarnar komu
upp aftur, urðu þá tilefni
nýrra frétta og nýrra fyrir-
sagna. Mér leið þannig þegar
mestur hamagangurinn var
að það hefði nákvæmlega
ekkert upp á sig að segja
nokkuð.
Ég er ekki að fara að
opna heimabank-
ann minn, eða mitt heimilis-
bókhald fyrir blaðamönn-
um. Það þýðir ekki endilega
að fólk hafi eitthvað að fela.
9 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F Ö S t U D A G U r12 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
3
-0
F
6
0
1
6
C
3
-0
E
2
4
1
6
C
3
-0
C
E
8
1
6
C
3
-0
B
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K