Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 09.10.2015, Blaðsíða 20
1 4 3 2 5 8 6 7 4 9 9 Höskuldur Gunnlaugsson mark 2 og 4 Arnþór A. Atlason mark 3 og 7 Arnór Sveinn Aðalsteinsson mark 5 Jonathan Glenn mark 6 Atli Sigurjónsson mark 8 Andri Rafn Yeoman mark 9 Stoðsending Mark ✿ Svona voru níu stoðsendingar Blikans Kristins Jónssonar í Pepsi-deild karla sumarið 2015 Guðjón P. Lýðsson mark 1 Kristinn tvöfaldaði stoðsendingar sínar frá því á síðasta tímabili Kristinn Jónsson sneri aftur í Pepsi-deildina í sumar eftir ársdvöl hjá sænska liðinu IF Brommapojkarna. Kristinn gaf meira en tvöfalt fleiri stoðsendingar í sumar en þegar hann lék síðast í deildinni sumarið 2013 og var enn fremur með fleiri stoðsendingar í sumar heldur en hann var með samanlagt sumrin 2012 og 2013. Í dag Olís-deild karla ÍBV FH 31-22 Markahæstir: Theodór Sigurbjörnsson 10, Hákon Daði Styrmisson 3 - Einar Rafn Eiðsson 10/3, Þorgeir Björnsson 4. Eyjamenn unnu sinn fimmta leik í röð gegn slökum FH-ingum sem hafa ekki byrjað tímabilið vel. Theodór Sigurbjörnsson var enn og aftur í banastuði í liði ÍBV og skoraði tíu mörk. Valur Afturelding 25-22 Markahæstir: Guðmundur Hólmar Helgason 8, Ómar Ingi Magnússon 4/1 - Árni Bragi Eyjólfsson 9/3, Ágúst Birgisson 3, Jóhann Jóhannsson 3. Valur reyndist sterkari á lokasprettinum gegn Mosfellingum. Staðan var jöfn, 20-20, þegar tíu mínútur voru eftir en Valsmenn unnu lokakafla leiksins 5-2. Fram Grótta 23-22 Markahæstir: Garðar B. Sigurjónsson 7/4, Sigurður Örn Þorsteinsson 4 - Finnur Ingi Stefánsson 13/3, Þráinn Orri Jónsson 2. Arnar Snær Magnússon tryggði Fram mikilvægan sigur á Gróttu með marki þremur sekúndum fyrir leikslok. Fram leiddi með sjö mörkum um miðjan seinni hálfleik en Seltirningar unnu þann mun upp og náðu að jafna. Það dugði þó ekki til. 18.45 England - Eistland Sport 2 18.45 Spánn - Lúxemborg Sport 3 18.45 Svartfj.land - Austurríki Sport 00.00 Presidents Cup Golfstöðin 19.30 Haukar - ÍR Schenker-höllin Nýjast Patrekur til VeszPrém? Patrekur Jóhannesson, þjálfari austurríska handboltalandsliðsins, er einn þeirra sem koma til greina sem næsti þjálfari ungverska stórliðsins MKB Veszprém, sem landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson leikur með. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur framkvæmdastjóri Veszprém haft samband við Patrek sem gerði Hauka að Íslandsmeisturum síðasta vor. Veszprém, sem hefur orðið ungverskur meistari undanfarin átta ár, er án þjálfara eftir að Carlos Ortega var sagt upp störfum fyrir tveimur vikum. Undankeppni EM 2016 Frakkland Ísland 27-17 Markahæstar: Rut Jónsdóttir 3, Arna Sif Pálsdóttir 3, Karen Knútsdóttir 3/3. Ísland hélt í við franska liðið framan af leik en þremur mörkum munaði á liðunum í hálfleik, 11-8. Seinni hálfleikurinn var hins vegar mjög slakur og Frakkar bættu jafnt og þétt við forskotið og unnu að lokum tíu marka sigur. Undankeppni EM U-21 árs landsliða 2017 Úkraína Ísland 0-1 0-1 Árni Vilhjálmsson (71.). Árni Vilhjálmsson tryggði íslenska landsliðinu skipuðu leikmönnum 21 árs og yngri frábæran útisigur á Úkraínu. Árni kom inn á sem varamaður á 65. mínútu og skoraði sigurmarkið sex mínútum síðar. Ísland er komið með tíu stig eftir fjóra leiki í riðli 3. FótBOlti Kristinn Jónsson, leik- maður ársins í Fréttablaðinu, spil- aði ekki bara í bestu vörn deildar- innar heldur var hann einnig mest skapandi leikmaður Pepsi-deildar- innar í sumar. Kristinn gaf 9 stoð- sendingar á félaga sína í Blikaliðinu. Undirritaður hefur tekið saman stoðsendingar frá árinu 1992 og er þetta í fyrsta sinn sem bakvörður leggur upp flest mörk. Tveir höfðu náð öðru sætinu Sam Tillen komst einna næst því sumarið 2013 þegar hann gaf 10 stoðsendingar á félaga sína í FH og endaði í 2. sæti á eftir liðsfélaga sínum Ólafi Páli Snorrasyni. Tillen gaf þá sjö af sínum tíu stoðsending- um úr hornspyrnum en allar stoð- sendingar Kristins í sumar komu hins vegar eftir spil úti á velli. Kristinn hafði einu sinni verið í öðru sæti á listanum en það var Íslandsmeistarasumar Blika árið 2010 þegar Kristinn gaf átta stoð- sendingar eða einni færri en stoð- sendingakóngur þess sumars sem var Óskar Örn Hauksson. Kristinn hefur nú gefið 32 stoðsendingar úr bakvarðar- stöðunni á ferli sínum í úrvals- deild karla. Kristinn er einnig fyrsti Blikinn sem verður stoð- sendingahæstur á þessum 24 árum sem stoðsendingar hafa verið teknar saman í efstu deild karla. Hann endaði líka fjögurra ára einokun FH-inga á stoðsend- ingatitlinum en und- anfarin ár höfðu FH- ingarnir Ólafur Páll Snorrason og Atli Guðnason skipst á að gefa flestar stoðsendingar. Sigursendingin í uppbótartíma Kristinn gaf einni stoðsendingu meira en Leiknismaðurinn Hilmar Árni Halldórsson en í 3. sætinu voru síðan FH-ingurinn Atli Guðnason, KR-ingurinn Jacob Schoop og Skaga- maðurinn Jón Vilhelm Ákason sem allir gáfu sjö stoðsendingar hver. Kristinn Jónsson tryggði sér efsta sætið á síðustu stundu, eða í upp- bótartíma í lokaleiknum. Sú stoðsending sem tryggði honum sigurinn skar sig líka úr af þessum níu því þetta var bæði eina stoðsendingin sem Kristinn gaf hægra megin á vellinum og eina stoðsend- ingin sem hann gaf á útivelli. Kópavogsvöllurinn var vissulega leiksvið Kristins í Pepsi-deildinni í sumar. Hann spilaði þar 11 leiki, skoraði þar bæði mörkin sín og gaf 8 af 9 stoðsendingum sínum. Kristinn var með 7,0 í meðaleinkunn í leikj- um Blika í Kópavoginum þar sem hann var hreinlega óstöðvandi í hlaupum sínum upp vinstri vænginn. Leiknismaðurinn Hilmar Árni Halldórsson var allt í öllu í sóknarleik nýliða Leiknis og stóð sig mjög vel á sínu fyrsta ári í Pepsi- deildinni. H i l m a r Á r n i gaf sína áttundu stoðsendingu á móti Fjölni í 19. umferð og var einn á toppnum þar til að Kristinn jafnaði hann í 21. umferð. Kristinn tók síðan titilinn með því að gefa stoðsendingu á fimmtu mínútu í uppbótartíma í sigri Blika á Fjölni í lokaumferðinni. Með því að gefa átta stoðsendingar þá átti Hilmar Árni stoðsending- una á bak við 40 prósent marka Leiknis liðsins í sumar en alls kom hann með beinum hætti að 16 af 20 mörkum Leiknis í sumar. Kristinn og Hilmar Árni fóru ólíkt að við að gefa stoðsendingar sínar. Allar níu stoðsendingar Kristins komu í opnum leik en Hilmar Árni gaf sex af átta stoðsendingum sínum beint úr hornspyrnum. Þrír komu að tólf mörkum Þrír leikmenn slá þeim Kristni og Hilmari þó við þegar kemur að því að taka þátt í undirbúningi marka en þar eru taldar saman stoðsend- ingar og sendingar sem eiga stóran þátt í undirbúningi marka án þess að vera síðasta sending. Blikinn Guðjón Pétur Lýðsson og FH-ing- arnir Atli Guðnason og Þórarinn Ingi Valdimarsson komu þannig að undirbúningi tólf marka sinna liða í sumar en Kristinn, Hilmar Árni og Valsmaðurinn Kristinn Freyr Sig- urðsson voru þar allir einu marki á eftir. ooj@frettabladid.is Bakvörður efstur í fyrsta sinn Blikinn Kristinn Jónsson lagði upp flest mörk í Pepsi-deild karla í sumar en vinstri bakvörðurinn úr Kópa- vogi gaf einni stoðsendingu meira en Leiknismaðurinn Hilmar Árni Halldórsson. Flestar stoðsendingar í Pepsi- deild karla sumarið 2015: Kristinn Jónsson, Breiðabliki 9 Hilmar Árni Halldórsson, Leikni 8 Jón Vilhelm Ákason, ÍA 7 Atli Guðnason, FH 7 Jacob Schoop, KR 7 Guðjón Pétur Lýðsson, Breiðabliki 6 Heiðar Ægisson, Stjörnunni 6 Þórarinn Ingi Valdimarsson, FH 6 Kristinn Freyr Sigurðsson, Val 5 Patrick Pedersen, Val 5 Almarr Ormarsson, KR 5 Ásgeir Marteinsson, ÍA 5 Davíð Örn Atlason, Víkingi 5 Sigurður Egill Lárusson, Val 5 Ólafur Karl Finsen, Stjörnunni 4 Böðvar Böðvarsson, FH 4 Guðmundur Karl Guðmunds, Fjölni 4 Sören Frederiksen, KR 4 Bjarni Gunnarsson, ÍBV 4 Jeremy Serwy, FH 4 Aron Sigurðarson, Fjölni 4 Andrés Már Jóhannesson, Fylki 4 Bjarni Ólafur Eiríksson, Val 4 Gary Martin, KR 4 Atli Sigurjónsson, Breiðabliki 4 Þáttur í undirbúningi marka: Guðjón Pétur Lýðsson, Breiðabliki 12 Atli Guðnason, FH 12 Þórarinn Ingi Valdimarsson, FH 12 Hilmar Árni Halldórsson, Leikni 11 Kristinn Jónsson, Breiðabliki 11 Kristinn Freyr Sigurðsson , Val 11 Jón Vilhelm Ákason, ÍA 10 Jacob Schoop, KR 10 Ásgeir Marteinsson, ÍA 10 Hilmar Árni Halldórsson gaf 8 stoðsendingar á sínu fyrsta tímabili. 8 af 9 Kristinn Jónsson gaf stoðsendingum sínum í sumar á Kópavogsvelli. 9 . O K t ó B E r 2 0 1 5 F Ö S t U D A G U r20 S P O r t ∙ F r É t t A B l A ð i ð sPort 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 2 -E 7 E 0 1 6 C 2 -E 6 A 4 1 6 C 2 -E 5 6 8 1 6 C 2 -E 4 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 8 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.