Fréttablaðið - 09.10.2015, Qupperneq 60
9
Það eru margir farnir að vekja athygli á matarsóun og reyna að sporna gegn henni og breyta þessari þróun,“ segir
Steinunn Jónsdóttir, önnur söngkona
hljómsveitarinnar AmabAdama.
Lagið, sem kemur út í dag og
hefur ekki enn hlotið nafn, er gert
í samstarfi við Kvenfélagasamband
Íslands sem hafði samband við
hljómsveitina og bað þau um aðstoð
við að vekja athygli á málefninu en
þriðjungur þess matar sem ætlaður
er til manneldis í heiminum endar
í tunnunni og það eru um 1,3 millj-
arðar tonna á ári.
„Við sögðum bara já. Þetta er alveg
eitthvað sem liggur okkur á hjarta.
Við ákváðum að semja þetta lag
svolítið út frá okkur. Við erum alveg
þessi kynslóð sem er svolítið gjörn
á að kaupa bara nýtt í staðinn fyrir
að nýta afganga. Þannig að þetta var
líka vakning fyrir okkur að temja
okkur betri siði.“
Hún segir þau í hljómsveitinni
leggja áherslu á að tónlistin búi yfir
einhvers konar boðskap enda tón-
listin kjörin miðill til þess að koma
ákveðnum skilaboðum á framfæri
líkt og fjöldi tónlistarmanna hefur
nýtt sér í aldanna rás. „Til dæmis er
Gaia lag sem fjallar um að við þurf-
um að fara betur með náttúruna. Við
erum samt ekkert að predika lög og
reglur yfir fólki en við reynum að
semja lög með einhverjum boðskap
sem liggur okkur á hjarta og hefur
vonandi einhver áhrif.“
Lagið er samið af Gnúsa Yones
og hann og Steinunn sömdu text-
ann í sameiningu. Steinunn segir
lagið halda í reggístemninguna
sem hljómsveitin er þekkt fyrir og
söngvararnir þrír skipti á milli sín
erindum í laginu, líkt og í smell-
inum Hossa hossa sem kom út í
fyrrasumar.
Hún segir verkefnið vissulega
hafa vakið þau til umhugsunar um
matarsóun og hversu stórt vandamál
hún er. „Maður kaupir oft of mikið
inn. Við fórum kannski og gerðum
stórinnkaup einu sinni í viku og svo
rann fullt út áður en við náðum að
klára það. Við erum bara lítil fjöl-
skylda með tveggja ára strák sem fær
morgunmat á leikskólanum þannig
að það hentar okkur kannski ekkert
að vera að gera einhver risainnkaup
einu sinni í viku,“ segir Steinunn að
lokum. gydaloa@frettabladid.is
Vaknaði upp við vondan draum í þarsíðustu viku
langaði í gott salat en átti ekki papriku
stóð í frekar langan tíma algjörlega ráðþrota
þar til ég ákvað að skoða í skápana hvað þar mætti nota.
Ætti kannski út í búð að hlaupa,
þar sem allt má kaupa
hún er opin bæði nótt og dag.
Nei! um að gera að nýta afganga
ofan í maga svanga
bætum með því okkar neyslu háttalag.
Ég á alveg frekar auðvelt með að leyfa mér að gleyma,
að margt það sem ég eyði í var ekki ræktað hérna heima.
Heldur hefur það kannski ferðast mörg hundruð kílómetra
ég kaupi það en klára ekki því mig langar í eitthvað betra.
Best að labba út í búð og kaupa bara það sem að maður þarf
og það sem að maður þarf verður það sem ofan í magann
hvarf
á bágt með að horfa á fulla ruslafötuna mína af mat
vil helst takmarka ruslið við mylsnurnar á borðinu þar sem
ég sat.
Watagwan mann,
gemmér ljóta bananann,
þó hann líti illa út þá er hann algjört namminamm,
stundum mat mann nota kann sem að í gær útrann
ef hann lyktar vel þá gerir hann mann ekki sjúkan
og getur verið algjört nammmm.
Við skulum ekki sóa matnum,
veitum athygli öllu því sem hefur verið sagt um
áhrif þess á jörðina sem að okkur er svo annt um
verum meðvitaðri um það sem er að ské.
Ég pæli stundum í því að þegar að amma mín var ung
át fólk reiktan sviðakjamma og súrsaðan hrútspung
fékk epli einu sinni á ári og naut hvers einasta munnbita.
Ætli sá matinn frekar klári sem að þarf fyrir honum að
strita?
Fleira fólk og meiri neysla
hraðari framleiðsla
fylgjum því sem stendur umbúðunum á
en það má alveg draga stimpilinn í efa
um að gera að opna og þefa
og með því kannski komast sóun hjá.
Því það er glatað,
hversu mörg landsvæði á jörðinni maðurinn hefur skaðað,
til að rækta meir en er ekki nú úr meira en nóg að hafa?
Ættum að taka höndum saman og temja okkur meiri aga,
nýta matinn betur, henda minna og vandamálið laga.
AmabAdamA
matarsóun
Um þriðjungur þess matar sem ætlaður er
til manneldis í heiminum endar í ruslinu.
Hljómsveitin AmabAdamA leggur sitt lóð
á vogarskálarnar og gefur út lag í dag sem
ætlað er að vekja fólk til umhugsunar um
málefnið.
Við ákVáðum
Að semjA þettA lAg sVolítið
út frá okkur. Við erum
AlVeg þessi kynslóð sem er
sVolítið gjörn á Að kAupA
bArA nýtt í stAðinn fyrir
Að nýtA AfgAngA.
texti lagsins
9 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F Ö S t U D A G U r36 L í F i ð ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
3
-0
F
6
0
1
6
C
3
-0
E
2
4
1
6
C
3
-0
C
E
8
1
6
C
3
-0
B
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K