Fréttablaðið - 09.10.2015, Side 8
150 manns á vinnustað á framkvæmdatíma
l Áætlað er að hefja framkvæmdir á fyrirhuguðu virkjunarsvæði vorið 2016
og að þær standi yfir til miðs árs 2018.
l Á síðari hluta ársins 2016 má gera ráð fyrir um 100 starfsmönnum á virkj-
unarsvæðinu. Allt árið 2017 og fyrri hluta árs 2018 er gert ráð fyrir allt að
150 starfsmönnum á svæðinu.
l Áætlaður heildarkostnaður er 13-15 milljarðar íslenskra króna (vélbúnaður
er 40% af heildarkostnaði).
l Ráðgert er að gangsetja stækkaða virkjun í apríl 2018.
l Verkís sér um hönnun virkjunarinnar og er sú vinna þegar hafin.
l Óskað verður eftir tilboðum í vél- og rafbúnað vegna stækkunarinnar á
næstu dögum. Efnt var til forvals meðal hugsanlegra bjóðenda og þeim
bjóðendum sem uppfylltu skilyrði forvalsins verður gefinn kostur á þátt-
töku í útboðinu. Gert er ráð fyrir að tilboð verði opnuð í byrjun desember
og að gengið verði til samninga í byrjun árs 2016.
l Byggingarvinna tengd stækkuninni verður boðin út í nóvember.
Landsvirkjun hefur tekið ákvörðun um
að ráðast í stækkun Búrfellsvirkjunar.
Stækkunin nemur 100 megavöttum
(MW) í uppsettu afli og er áætlað að
framkvæmdir hefjist á vormánuðum.
Stækkunin mun nýta vatn sem í dag
rennur fram hjá núverandi stöð og er
áætlaður kostnaður við framkvæmdir
og kaup á vélum og öllum öðrum bún-
aði 13 til 15 milljarðar króna.
Lengi á teikniborðinu
Langt er síðan stækkun Búrfellsvirkj-
unar, sem nú verður ráðist í, var fyrst
ámálguð. Í raun lá það alltaf fyrir að
stækkun væri góður kostur, eða allt frá
því að gamla virkjunin var fullbyggð
árið 1972. Þá strax var ljóst að gamla
virkjunin fullnýtir ekki nema um 86%
af því vatni sem rennur fram hjá henni.
Stækkuð Búrfellsvirkjun mun bæta nýt-
ingu á því rennsli. Þeim áformum var
hins vegar slegið á frest þegar ákvörðun
var tekin um að auka afl núverandi Búr-
fellsstöðvar úr 210 MW í 280 MW með
endurnýjun búnaðar á árunum 1997-
1999. Þess utan er stækkun virkjunar-
innar söguleg fyrir Landsvirkjun því
fyrirtækið var stofnað um upphaflegu
virkjunina árið 1965 samhliða því að
álverið í Straumsvík var reist.
Svara þarf eftirspurn
Ástæðan fyrir því að ráðist er í þessa
virkjun nú segir Hörður Arnarson,
forstjóri Landsvirkjunar, að sé aukin
eftirspurn frá smærri iðnfyrirtækjum,
gagnaverum, ferðaþjónustunni og fleir-
um. Hörður segir jafnframt að það sem
er óvenjulegt við þessa framkvæmd sé
að umhverfisáhrifin eru óvenjulega lítil.
„Það sem er í raun óhjákvæmi-
legt með okkar framkvæmdir er að
umhverfissporið er stórt, sérstaklega í
vatnsaflsvirkjunum. Stór lón valda þar
mestum umhverfisáhrifum en hér er
verið að nýta núverandi uppistöðulón
og því til viðbótar var ákveðið að stað-
setja stöðvarhúsið inni í fjallinu þannig
að sjónræn áhrif eru í lágmarki,“ segir
Hörður en mest áberandi mannvirkin
verða aðrennslisskurður, frárennslis-
skurður og inntaksmannvirki virkjun-
arinnar. Þess má geta að sá möguleiki
var skoðaður að hafa stöðvarhúsið
ofanjarðar en kostnaður var áþekkur
og umhverfissjónarmið látin ráða því
hvaða leið var valin, en stöðvarhús
neðanjarðar er talið öruggara í tilliti
til náttúruvár – jarðskjálfta og eldsum-
brota.
Landsvirkjun er að hans sögn að
skoða fleiri sambærileg verkefni. Mögu-
leikar til að nýta virkjunarsvæði fyrir-
tækisins betur eru fyrir hendi, og nefnir
Ráðist í stækkun Búrfellsvirkjunar
Landsvirkjun ræðst í stækkun Búrfellsvirkjunar um 100 MW. Fjárfest verður fyrir 13 til 15 milljarða. Stækkun Búrfellsvirkjunar og fram-
kvæmdir á Þeistareykjum hafa ekki áhrif á ákvarðanatöku varðandi Hvammsvirkjun í Þjórsá. Sambærileg verkefni eru til athugunar.
Búrfellsvirkjun var fyrsta stórframkvæmd Landsvirkjunar og var fyrirtækið stofnað um þá framkvæmd fyrir 50 árum. Helstu umhverfisáhrif nýrrar virkjunar eru að-
rennslisskurður, frárennslisskurður og inntaksmannvirki virkjunarinnar. Stöðvarhúsið verður staðsett neðanjarðar í Sámsstaðaklifi. mynd/LandSvirkjun
Hörður Blönduvirkjun í því sambandi.
Þá eru möguleikar fyrir hendi á að
stækka Búrfellsvirkjun enn, eða um 40
MW með því að bæta við annarri aflvél
síðar í stöðvarhúsinu í Sámsstaða klifi.
Léttir álaginu af þeirri gömlu
Gunnar Guðni Tómasson, fram-
kvæmdastjóri framkvæmda-
sviðs, segir að framhjárennslið sé
aðallega yfir sumarið og muni stækk-
unin því aðeins framleiða orku hluta
ársins. Afl virkjunarinnar muni hins
vegar nýtast allt árið um kring til að
auka rekstraröryggi og sveigjanleika
raforkukerfisins. Annað sem græðist
er að létta álaginu af núverandi Búr-
fellsstöð sem hefur verið keyrð á
yfirálagi langtímum saman, og sinna
viðhaldi sem er löngu tímabært.
Hvað næst?
Eins og kunnugt er eru framkvæmdir
hafnar við jarðhitavirkjun á Þeista-
reykjum á vegum Landsvirkjunar.
Fyrri áfanga, sem er 45 MW, á að vera
lokið í október 2017 en síðari áfanga
í apríl 2018, eða á mjög svipuðum
tíma og stækkun Búrfellsvirkjunar
kemst í gagnið.
Tvö verkefni verða því í gangi á
sama tíma, en frá sjónarhóli Lands-
virkjunar, staðfestir Hörður, eru
verkefnin það lítil að þau hafa engin
áhrif á ákvarðanatöku fyrirtækisins
um hugsanlegar framkvæmdir við
Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár
á næstu árum, eða verði niðurstaða
Skipulagsstofnunar sú að ekki sé þörf
á nýju umhverfismati en ákvörðunar
um það er að vænta von bráðar.
Umhverfisáhrif talin lítil
l Landsvirkjun tilkynnti Skipulagsstofnun um fyrirhugaðar framkvæmdir
við stækkun Búrfellsvirkjunar í maí 2013.
l Niðurstaða Skipulagsstofnunar er að stækkun virkjunarinnar um allt að
140 MW sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfis-
áhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
l Þar sem um stækkun virkjunar er að ræða, sem ekki skal háð mati á
umhverfisáhrifum, fellur framkvæmdin ekki undir verndar- og orku-
nýtingaráætlun – rammaáætlun.
Svavar Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Það sem er í raun
óhjákvæmilegt með
okkar framkvæmdir er að
umhverfissporið er stórt,
sérstaklega í vatnsaflsvirkj-
unum. Stór lón valda þar
mestum umhverfisáhrifum
en hér er verið að nýta
núverandi uppistöðulón og
því til viðbótar var ákveðið
að staðsetja stöðvarhúsið
inni í fjallinu
þannig að
sjónræn áhrif
eru í lág-
marki.
Hörður Arnarson,
forstjóri Landsvirkjunar
Kringlukast gildir frá 8. okt., til og með 12. okt. eða meðan birgðir endast. Birt með fyrirvara um prentvillur og myndabrengl.
Kringlan - Bankastræti
Púðaver - 8 myndir í boði
Tilboðsverð: 6.899.-
Fullt verð: 9.199.-
Ennisband -
Kanínuskinn
Tilboðsverð: 4.597.-
Fullt verð: 6.129.-
Mokkalúffur
Tilboðsverð: 4.079.-
Fullt verð: 5.439.-
Mokkahanskar
Tilboðsverð: 4.447.-
Fullt verð: 5.929.-
KRINGLUKAST
8 - 12. október
25%
afsláttur
25%
afsláttur
25%
afsláttur
25%
afsláttur
dómsmál Landeigendafélagi Geysis
var óheimilt að innheimta aðgöngu-
gjald að Geysissvæðinu. Þetta er
niður staða Hæstaréttar. Þá hafi rík-
inu verið heimilt að leggja lögbann
við gjaldtöku félagsins.
Hæstiréttur segir að inn á Geysis-
svæðinu sé spilda sem tilheyri
íslenska ríkinu einu. Um það svæði
gildi óskráðar reglur íslensks réttar
um sérstaka sameign, þar á meðal
um hvernig ákvörðun verði tekin um
nýtingu þess en þar þurfi samþykki
allra landeigenda.
„Breyting þessi var meiri háttar
þegar þess er gætt að með henni var
stefnt að því að mynda tekjur af sam-
eigninni, ekki aðeins til að standa
straum af kostnaði af henni heldur
einnig til arðs fyrir eigendurna, í
stað þess að landsvæðið stæði öllum
opið án endurgjalds,“ segir í niður-
stöðu dómsins. Í yfirlýsingu landeig-
enda eftir dóminn segir að þeir hafi
ítrekað leitað samstarfs við ríkið um
verndun og uppbyggingu svæðisins.
Til að leiða ágreininginn til lykta hafi
þeir boðist til að kaupa hlut ríkisins.
Dómur Hæstaréttar leysi á engan hátt
úr þessum ágreiningi. – jóe
Máttu ekki rukka á Geysi
Landeigendur rukkuðu fyrir aðgang að Geysi um stutta hríð. FréttaBLaðið/Pjetur
9 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F Ö s t U d A G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
3
-D
9
D
0
1
6
C
3
-D
8
9
4
1
6
C
3
-D
7
5
8
1
6
C
3
-D
6
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K