Fréttablaðið - 09.10.2015, Side 14
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Á hverjum
degi vaka
sendiráð
okkar og
viðskiptafull-
trúarnir yfir
hagsmunum
íslenskra
fyrirtækja
sem af áræði
og dugnaði
reyna að
hasla sér
völl á nýjum
mörkuðum.
Nýlega birtust fregnir af því að í hillum verslana í New York væri nú aftur að finna íslenska bjórinn Einstök sem þaðan hafði horfið tímabundið eftir bráðræðis-
lega ákvarðanatöku í ráðhúsinu við Tjörnina.
Á komandi aðventu verður alíslenskum pylsuvagni komið
fyrir í Tókýó og í Finnlandi eru þarlendir orðnir heimsins
mestu aðdáendur íslenska skyrsins sem selst þar í tvöfalt
meira magni en í upprunalandinu. Austur í Moskvu gæða
gestir virtustu veitingahúsanna sér á lambakjöti, Japanir
dásama íslenskar æðardúnssængur og á síðustu árum hafa
Kínverjar kynnst gæðum grásleppunnar okkar.
Hvað eiga þessi mál sameiginlegt fyrir utan það að þessar
gæðavörur eru framleiddar úr íslenskum hráefnum og
markaðssettar af kraftmiklum íslenskum fyrirtækjum? Um
öll þessi mál og aragrúa annarra liggja þræðir til viðskipta-
fulltrúa sem starfa við sendiráð Íslands en þessir fulltrúar eru
þjónustuarmur útflutningsþjónustu utanríkisráðuneytisins
og Íslandsstofu erlendis.
Á hverjum degi vaka sendiráð okkar og viðskiptafull-
trúarnir yfir hagsmunum íslenskra fyrirtækja sem af áræði
og dugnaði reyna að hasla sér völl á nýjum mörkuðum. Við-
skiptafulltrúarnir sýna frumkvæði við að þjónusta fyrirtæki,
eygja ný tækifæri og greiða viðskiptaaðilum leiðina í gegnum
frumskóg skrifræðis og reglugerða og beita til þess ómældri
útsjónarsemi. Þá geta þeir brugðist skjótt við vályndum
veðrum sem gera oft fyrirvaralaust vart við sig erlendis.
Það liggur í hlutarins eðli að kjötútflutningur til Japans,
sala sjávarafurða á Kínamarkað og stríður ferðamanna-
straumur til Íslands gerist ekki af sjálfu sér og í mörgum tilfell-
um þarf aðkomu hins opinbera. Viðskiptafulltrúarnir okkar
eru staðsettir í sendiráðum Íslands í Kaupmannahöfn, Berlín,
Moskvu, Nýju-Delí, Peking, Tókýó, Ósló, Helsinki, New York
og London og búa þeir yfir ómældri reynslu og þekkingu á
staðháttum, hafa mikilvægt tengslanet og sambönd bæði í
gistiríkjunum og í umdæmislöndum sendiráðanna. Óhætt er
að fullyrða að viðskiptafulltrúarnir eru ómetanlegur hlekkur
í keðju utanríkisþjónustunnar og Íslandsstofu við að greiða
leið íslenskra fyrirtækja, hugvitsfólks og aðila á sviði lista og
menningar á erlendum mörkuðum, eins og dæmin sanna.
Pylsuvagn á aðventu í Tókýó
Gunnar Bragi
Sveinsson
utanríkisráðherra
Fáðu þér áskrift í síma 1817 eða á 365.is
*Gildir fyrir eina áskrift. Viðskiptavinir sem taka þessu tilboði fyrir 1. nóvember halda þessum kjörum í eitt ár.
STÖÐ 3
+ENDALAUST TAL
+1 GB Í GSM
1.990 kr.
til 1. nóvember*
HEILL HELLINGUR
AF NÝJUM ÞÁTTUM
Á STÖÐ 3
FÁÐU STÖÐ 3
Á BETRA VERÐI
Í HAUST
Mannréttindi fólks með þroskahömlun eru skert á Íslandi. Sjálfræði þeirra er takmarkað og forræðishyggja nær til flestra þátta daglegs lífs. Rannsókn þriggja dósenta við Háskóla Íslands sem
framkvæmd var á árunum 2011 til 2015 leiddi þetta í
ljós. Í rannsókninni kom fram að enn þann dag í dag
eru framkvæmdar ófrjósemisaðgerðir á þroskahöml-
uðum konum eftir þrýsting frá fjölskyldum þeirra.
Aðgerðirnar eru framkvæmdar á konum áður en þær
verða 25 ára gamlar, en slíkt er ólöglegt. Auk þess gerðu
konurnar sér ekki grein fyrir hvað aðgerðirnar þýddu
fyrir þær í raun og veru. Að þær væru óafturkræfar.
Konurnar fá ekki kynfræðslu eða upplýsingar um aðra
kosti eins og getnaðarvarnir. Í fræðunum hefur verið
haldið fram að þessi aðgerð sé gerð til að halda konum
frá kynferðislegu ofbeldi. Þó höfðu margar af konunum
í rannsókninni orðið fyrir slíku ofbeldi eða áreiti og eitt
af því sem varð til þess var vitneskja hins brotlega um
það að konurnar hefðu undirgengist slíka aðgerð.
Rannsóknin sýndi fleiri sláandi staðreyndir í lífi
þessa hóps. Sjálfræði þeirra til allra daglegra athafna var
verulega skert, fjármálin, hvar þau búa, hvað þau borða,
tómstundir og frítími. Mannréttindabrot gegn þroska-
hömluðum eru þannig daglegt brauð. „Forræðis hyggja
og skert sjálfsræði er því miður daglegur veruleiki hjá
alltof mörgum einstaklingum með þroskahömlun,“
sagði Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroska-
hjálpar, í samtali við Fréttablaðið í fyrradag.
Halldór Halldórsson, formaður Sambands sveitar-
félaga, en sveitarfélögin fara með málefni fatlaðra, segir
rekstrarhalla þeirra vegna þjónustu sem þau veita
fötluðum hafa verið 1,1 milljarð króna í fyrra og má
ætla að hallinn hafi aukist á þessu ári. Sveitarfélögin
tóku við málaflokknum af ríkinu árið 2011 en fjármagn
hefur ekki fylgt honum eftir þörfum.
Ísland undirritaði árið 2007 samning Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Markmið hans er
að efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi og
grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra.
Af þeim 157 ríkjum sem undirrituðu samninginn
hefur 151 fullgilt hann. Alþingi samþykkti í júní 2012
framkvæmdaáætlun um málefni fatlaðs fólks og hefur
innanríkisráðuneytið unnið að undirbúningi full-
gildingar síðan. Ísland hefur hins vegar ekki enn fullgilt
samninginn.
Það er skelfileg tilhugsun að fá ekki að ráða sér
sjálfur. Sjálfsákvörðunarrétturinn er flestum svo sjálf-
sagður að þeir leiða aldrei hugann að honum – hvað
þeir borða, hvar og hvernig þeir búa og hvort þeir
gangist undir óafturkræfar aðgerðir. Ríki sem kennir
sig við mannréttindi og mannúð kemur ekki svona
fram við þegna sína. Þrettán stjórnarandstöðuþing-
menn hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að
samningurinn verði fullgiltur. Það er löngu tímabært
að íslensk stjórnvöld standi við skuldbindingar sínar.
Enn tímabærara er að þessum málaflokki sé sinnt
sómasamlega af bæði ríki og sveitarfélögum. Þar verða
menn að hysja upp um sig.
Þau eiga sig sjálf
Sjálfsákvörð-
unarrétturinn
er flestum svo
sjálfsagður að
þeir leiða
aldrei hugann
að honum
– hvað þeir
borða, hvar
og hvernig
þeir búa og
hvort þeir
gangist undir
óafturkræfar
aðgerðir.
Starfsmaður mánaðarins
Össur Skarphéðinsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, vekur grá
glettinn athygli á því á Facebook
síðu sinni að stofnun Stjórn
stöðvar ferðamála sé rækilegur
brilljans af hálfu Ragnheiðar Elínar
Árnadóttur ráðherra ferðamála.
Nú sé búið að stofna tvær ríkis
stofnanir utan um ferðamannamál
á Íslandi. „Ég geri að tillögu minni
að landsfundurinn verðlauni
Ragnheiði Elínu með því að kjósa
hana „starfsmann mánaðarins“ þó
ekki væri nema fyrir að hafa sýnt í
verki hvað Sjálfstæðisflokkurinn á
við með slagorðinu „Báknið burt“,
skrifar Össur.
Ósnertanlegur meirihluti?
Viðskiptablaðið birti í gær skoð
anakönnun um fylgi stjórnmála
flokkanna í borgarstjórn Reykja
víkur. Ýmislegt kemur á óvart og
annað ekki. Það kemur vafalaust
fáum á óvart að Píratar eru nú
stærsti flokkurinn í borginni, sem
fylgir sömu straumum og í lands
málunum. Það sem kemur ef til vill
meira á óvart er að Samfylkingin
skuli enn vera stærri en Sjálfstæðis
flokkurinn í borginni þrátt fyrir að
báðir flokkar tapi fylgi. Sjálfstæðis
menn gagnrýndu meirihlutann
harkalega í Ísraelsdeilunni miklu
og fengu mikla athygli í fjölmiðlum
fyrir vikið. Gagnrýni sjálfstæðis
manna virðist ekki hafa fallið í
kramið hjá kjósendum því meiri
hlutinn hefur aukið fylgi sitt upp í
72 prósent. stefanrafn@frettablaðið.is
9 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F Ö S t U D A G U r14 S k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
2
-6
7
8
0
1
6
C
2
-6
6
4
4
1
6
C
2
-6
5
0
8
1
6
C
2
-6
3
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K