Fréttablaðið - 09.10.2015, Síða 15
Almannatenglar eru sannleikan-um eins og engisprettufaraldur er gróðri. Í Bandaríkjunum starfa
næstum fimm sinnum fleiri almanna-
tenglar en blaðamenn. Svo mikil plága
þykja þessir flór-mokandi afstæðispré-
dikarar að alfræðiritið Wikipedia sker
nú upp herör gegn spuna þeirra. Jimmy
Wales, stofnandi Wikipedia, óskaði í
vikunni eftir fleiri sjálfboðaliðum til
að berjast gegn sveimi almannatengla
sem herjar á vefritið. Öllum er frjálst að
skrifa á Wikipedia. Óprúttnir almanna-
tenglar misnota fyrirkomulagið og
lauma þar inn áróðri í því skyni að láta
skjólstæðinga sína – fyrirtæki, stjórn-
málamenn, fræga fólkið og jafnvel ríkis-
stjórnir – líta vel út.
En ekki frekar en annarra sem vinna
við að moka flór er starf almannatengl-
anna öfundsvert. Stundum vorkennir
maður þeim næstum því. En bara
næstum því.
Aðstandendur eins heitasta nætur-
klúbbs Lundúnaborgar eru í djúpum
skít. Í síðustu viku fóru fram mótmæli
við klúbbinn DSTRKT sem sagður er
vinsæll meðal alþjóðlegra stórstjarna á
borð við Jay Z og Rihönnu. Aðdragandi
málsins sem komst í alla helstu frétta-
tíma í Bretlandi og gerði allt brjálað
á samfélagsmiðlum var sakleysisleg
heimsókn fjögurra vinkvenna á klúbb-
inn um þar síðustu helgi. Ein þeirra
hafði fengið boð um að heimsækja
skemmtistaðinn. Þegar vinkonurnar
mættu var þeim hins vegar sagt að
aðeins tvær stúlknanna fengju að koma
inn. Ástæðan olli því að Rósa nokkur
Parks sneri sér í gröf sinni. Hinar tvær
stúlknanna voru sagðar „of svartar“
fyrir staðinn.
Í fyrstu voru viðbrögð klúbbsins
við ásökunum um rasisma þögn. „No
comment.“ Mótmæli hófust fyrir utan
samkomuhúsið og tónlistarmenn sem
áttu að koma þar fram tóku að afbóka
sig. Forsvarsmenn staðarins yrðu að
svara fyrir sig. En hvað? Hvað gátu
þeir sagt? Starfsmaðurinn sem boðið
hafði stelpunum á klúbbinn reið á
vaðið. Hann fullyrti að kynþáttafor-
dómar hefðu ekki átt neinn þátt í því að
tveimur stúlknanna var ekki hleypt inn.
Einu ástæðurnar sem gætu leitt til þess
að stelpum væri meinaður aðgangur að
skemmtistaðnum væru tvær: a) ef þær
væru of feitar b) ef þær væru í ljótum
fötum.
Svo djúpt var skemmtistaðurinn
sokkinn í flórinn að ákveðið var að
spinna málið með því að varpa á það
lyktarsprengju til að breiða yfir fnykinn
af skítlegu, og hugsanlega glæpsam-
legu, hátterni starfsmanna hans. En það
virkaði auðvitað ekki. Því skítafýlan
af fordómum er megnari en önnur
lykt. Alveg eins og þjóðkirkja okkar
Íslendinga fær nú að finna fyrir.
Þvermóðska „forpokapresta“
Það er eins og sjálfseyðingarhvöt sé
drifkraftur þjóðkirkjunnar um þessar
mundir, eins og forsprökkum hennar
finnist ekki nóg af tómum sætum í
sunnudagsmessunum og þeir séu stað-
ráðnir í að gera betur. Krafa prestastétt-
arinnar um að halda í frelsið til að sýna
fordóma sína í verki og gefa ekki saman í
hjónaband tvo einstaklinga af sama kyni
séu þeir ekki í stuði til þess undirstrikar
hve lítið erindi kirkjan á við samtímann.
Þessi þvermóðska er jafnmikið í takt við
tímann og ef kirkjan hygðist endurvekja
spænska rannsóknarréttinn, skikka alla
presta til að fá sér sítt að aftan, berjast
fyrir því að andasæringar og blóðtaka
leystu af hólmi Landspítalann, kross-
festingar kæmu í staðinn fyrir fangelsis-
refsingar og að Ólafur Skúlason yrði
tekinn í dýrlingatölu.
Mörgum þykir ótækt að prestar
ríkiskirkju skuli telja sig mega hunsa
mannréttindi og gera upp á milli fólks
út frá kynhneigð. Sumir hafa lagt til að
þessir forpokuðu pokaprestar, forpoka-
prestar, hypjuðu sig úr þjóðkirkjunni og
stofnuðu sinn eigin söfnuð þar sem þeir
gætu stundað í friði og á eigin kostnað
allt það sem var normið árið sautján-
hundruð og súrkál. Aðrir vilja ganga
lengra og einfaldlega skilja að ríki og
kirkju og þá geti prestarnir hagað sínum
málum að vild.
Hvorug lausnin er þó 21. öldinni sam-
boðin.
Kærleikurinn kostar ekkert
Það skiptir ekki máli hvort trúfélag
nýtur fjárstuðnings ríkis eða ekki. Ekki
undir nokkrum kringumstæðum ætti
hópi manna að leyfast að veita ekki
fólki þjónustu vegna kynhneigðar
þess. Heitasta næturklúbbi Lundúna-
borgar leyfist ekki að meina þeldökku
fólki inngöngu þótt um sé að ræða
einkaframtak. Af hverju ættu einhver
önnur lögmál að ríkja um trúfélög en
skemmtistaði, verslanir eða líkams-
ræktarstöðvar?
Kirkjan reynir nú að losna úr þeim
ógöngum sem hún er komin í með
aðferðafræði almannatengla. Hún
gefur fordómum sínum ógildishlaðin
nöfn á borð við samviskufrelsi og segir
að þetta sé ekki prestunum að kenna
heldur Biblíunni. En slíkt orðagjálfur
nægir ekki til að lofta út skítafýlunni
af sleggjudómum forpokapresta úr
kirkjum landsins.
Öllum trúfélögum ætti að vera skylt
að virða mannréttindi, þjóðkirkjunni
sem og öðrum. Ef prestar þjóðkirkj-
unnar og aðrir forstöðumenn trúfélaga
sem hafa fengið heimild ríkisvaldsins
til að gefa fólk saman í hjónaband
neita einstaklingum um þá þjónustu
vegna kynhneigðar þeirra á ríkisvaldið
einfaldlega að taka þá hjónavígslu-
heimild af þeim.
Trúfélögum til heilla er vandamálið
auðleysanlegt. Það kostar ekkert, ekki
einu sinni þóknun fyrir almannatengil.
Það eina sem trúfélög landsins þurfa
að gera til að stíga inn í 21. öldina er að
tileinka sér meiri mannkærleik. Á kær-
leikurinn ekki einmitt að heita sérsvið
kirkjunnar?
Frelsið til að sýna fordóma í verki
Allt frá því orkan fór að streyma frá Hellisheiðarvirkjun, haust-ið 2006, hefur fólk getað sótt
hana heim og séð með eigin augum
hvernig jarðhitanýtingin fer fram og
í hvað þessi mikla orka undir niðri
nýtist okkur. Jarðhitasýning þar sem
þessum upplýsingum og þekkingu er
miðlað var nefnilega hluti af virkjun-
inni frá upphafi. Þessi vinsæla sýning,
sem kostaði talsvert fé að setja upp,
var til umfjöllunar hér í blaðinu í
gær og það er rétt að halda nokkrum
atriðum til haga í umræðu um hana.
Þegar eigum fyrirtækis í opinberri
eigu er ráðstafað til einkaaðila þarf
að vanda sig og ljóst þarf að vera að
afnotin eru tímabundin. Eftir fjögur
ár í rekstri OR var leiga á sýningar-
rýminu og því sem í því var boðið
út til tiltekins tíma með hugsanlegri
tímabundinni framlengingu. Í fram-
haldinu var samið við hæstbjóðanda
og framlengingarákvæðið var nýtt.
OR hefur kostað endurbætur á sýn-
ingunni á leigutímanum og bætt við
hana upplýsingum, einkum sem snúa
að hitaveitunni og heitavatnsfram-
leiðslunni í Hellisheiðarvirkjun. Frá
upphafi leigutímans var ljóst að hann
tæki enda og hvenær það yrði. Leigj-
endum var því ekki sagt upp þegar
Orka náttúrunnar tók við rekstrinum
nú á dögunum heldur rann leigutím-
inn út á tilsettum, umsömdum tíma,
sem var löngu fyrirséður.
Gert var samkomulag milli leigj-
enda og leigusala um uppgjör vegna
loka leigusamningsins. Það mátti
skilja af greininni hér í blaðinu í gær
að svo væri ekki og að réttur leigjand-
ans hafi verið meiri en kveðið var á
um í samningum. Það er ekki rétt.
Jarðhitasýningin í
Hellisheiðarvirkjun
Eiríkur
Hjálmarsson
upplýsingafull-
trúi OR
Svar Jóns Steinars Gunnlaugs-sonar við grein minni í Frétta-blaðinu 6. þ.m. sannar þau
orð mín, að réttarfar í landinu sé of
mikilsverður þáttur nútímalýðræðis
til þess að lögfræðingar og gamlir
hæstaréttardómarar fjalli einir um
þau mál.
Sjónarmið Jóns Steinars eru
sjónarmið liðins tíma, sjónarmið
úreltrar lögspeki, þar sem talið var
að lög væru óskeikul guðs lög en
ekki mannasetningar, og forsenda
fyrir starfi dómstóla væri „að hin
lagalega rétta niðurstaða sé aðeins
ein“, eins og Jón Steinar orðar það.
En hvað veldur því þá, að dómstólar
klofna í málsniðurstöðum sínum?
Það er vegna þess að hin lagalega
rétta niðurstaða er ekki alltaf ein.
Í framtíðinni munu dómarar
verða „þverskurður af fólkinu í land-
inu“ því að bæði kynferði, menntun,
innsæi og lýðræðisleg hugsun skipta
miklu máli – en ekki úreltar kenn-
ingar um eina rétta niðurstöðu.
Krafa nútíma lýðræðis er að konur
komi alls staðar að málum þar sem
velferð okkar og örlög eru ráðin.
Konur og aðrir sólbaðs-
stofunuddarar – taka tvö
Tryggvi Gíslason
fv. skólameistari
Sif
Sigmarsdóttir
Í dag
Það eina sem
trúfélög
landsins
þurfa að gera
til að stíga inn
í 21. öldina er
að tileinka sér
meiri mann-
kærleik. Á
kærleikurinn
ekki einmitt
að heita
sérsvið
kirkjunnar?
Leigjendum var því ekki sagt
upp þegar Orka náttúrunnar
tók við rekstrinum nú á
dögunum heldur rann leigu-
tíminn út á tilsettum, um-
sömdum tíma, sem var löngu
fyrirséður.
Styrkjum starfsemi Krabbameinsfélagsins
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameinsfélagsins
og baráttuna gegn krabbameini hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný
með bleikum taxaljósum.
Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekniátaks
Krabbameinsfélagsins í október og nóvember
Tökum bleikan bíl!
Styrkjum starfsemi
Krabbameinsfélagsins
SÆKTU APPIÐ
á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is
eða í App Store og Google Play
Sæktu þér Hreyfils appið
og pantaðu bleikan bíl.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15F Ö s T u d a g u R 9 . o k T ó B e R 2 0 1 5
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
1
-F
1
0
0
1
6
C
1
-E
F
C
4
1
6
C
1
-E
E
8
8
1
6
C
1
-E
D
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K