Fréttablaðið - 09.10.2015, Page 28
„Það komst nánast
ekkert annað að.
Ég sat svo dögum
skipti við tölvuna
og reyndi að finna
leiðir sem mögulega
gætu hjálpað.“
T
inna Hrafnsdóttir er Reyk
víkingur í húð og hár, alin
upp í Vesturbænum og
gekk í Menntaskólann við
Hamrahlíð. Þegar kom að
því að velja hvað stæði til næst
eftir stúdentsprófin voru góð ráð
dýr því Tinna hafði ekki hugmynd
um hvað hún vildi verða. „Ég vissi
ekkert hvað ég vildi gera en var
þó handviss um að ég vildi mennta
mig frekar.“
Að lokum ákvað Tinna að skrá
sig í lögfræði en komst svo fljót
lega að því að það ætti ekki við
hana. „Ég skipti strax um ára
mótin yfir í almenna bókmennta
fræði og þar var ég komin nær
því sem mig langaði að fást við í
lífinu. Þar var verið að lesa leikrit
og greina texta, ég fann að þarna
lá einhver taug sem mig langaði
til að virkja.“ Í Háskólanum var
Tinna hvött til að koma og taka
þátt í Stúdentaleikhúsinu. „Ég
hafði ekki komið nálægt leiklist á
mínum uppvaxtar árum, það var
alltaf verið að spyrja mig hvort ég
ætlaði ekki að verða leikkona eins
og amma mín, Herdís Þorvalds
dóttir heitin. Við þessar spurning
ar og saman burð kom alltaf upp
í mér unglingamótþrói og ég ætl
aði mér að gera eitthvað allt annað
en að feta leiklistarbrautina. Eftir
að ég tók svo þátt í Stúdentaleik
húsinu þá fann ég að þarna var ég
komin í mitt rétta hlutverk.“
Tinna fann á þessum tíma
punkti að hún gæti ekki verið
lengur í þessari afneitun gagnvart
því sem henni var ætlað frá upp
hafi og sótti um í Leiklistarskóla
Íslands. „Ég laumaðist eiginlega í
inntökuprófin því ég sagði engum
frá þessum áætlunum mínum
nema mömmu, bróður og bestu
vinkonu. Ætli ég hafi ekki verið
að verja mig fyrir þessum sem
þóttust vita hvert leið mín myndi
liggja,“ segir hún brosandi. Tinna
komst inn í fyrstu tilraun og fann
hvernig ástríðan og metnaðurinn
gagnvart leiklistinni jókst sam
hliða því sem hún sleppti tökunum
og tók á móti því sem koma skyldi.
Lífið eftir útskrift
Strax eftir útskrift úr leiklistar
skólanum fékk Tinna nokkur
hlutverk hjá sjálfstæðum leik
hópum og muna margir eftir
henni sem Tóta tannálfi úr
barnaleikritinu Benedikt búálf
ur. „Hann varð afskaplega vin
sæll hjá krökkunum enda á tann
álfurinn sér tilvist utan leikrits
ins.“
Í kjölfarið tók hún svo þátt í
Grease í samstarfi við Borgar
leikhúsið og svo lék hún Pöllu
peru í Ávaxtakörfunni. „Ég var
þakklát fyrir að fá tækifæri
strax eftir útskrift og naut þess
að vinna með sjálfstæðum leik
hópum. Það að komast að hjá
Borgarleikhúsinu og Þjóðleik
húsinu reyndist þyngri róður en
innst inni í hjartanu þóttist ég
vita að tækifærin til að skapa
kæmu þegar tíminn væri réttur.“
Tinna var þó hvergi af baki
dottin og þáði aðal hlutverk sem
henni var boðið í kvikmyndinni
Veðramót sem Guðný Halldórs
dóttir leikstýrði. Stuttu síðar lék
hún svo í sjónvarpsþáttaseríunni
Hamrinum undir stjórn Reyn
is Lyngdal sem sýnd var í Rík
issjónvarpinu. Fyrir bæði þessi
hlutverk var hún tilnefnd til
Edduverðlauna.
Samhliða þessum hlutverkum
hóf Tinna MBAnám í Háskólan
um í Reykjavík. „Það var virki
lega fróðlegt og ólíkt öllu sem
ég hafði áður gert. Þarna kynnt
ist ég líka mörgu fólki með allt
annan bakgrunn en ég sem mér
fannst gott og lærdómsríkt, fólki
sem ég lærði mikið af og var til
búið að deila sinni reynslu.“
Mannlegt að vera hræddur
Tinna giftist Sveini Geirssyni
fyrir rúmu ári en hann er leikari,
nýlega útskrifaður úr Leiðsögu
skóla Íslands og ansi lunkinn tón
listarmaður. Þau hjónin eiga gull
fallega tvíburasyni sem nú eru
á fjórða ári en þeir létu heldur
betur bíða eftir sér á sínum tíma.
„Á sama tíma og ég var að reyna
að feta mig áfram í leikhúsheim
inum vorum við hjónin að reyna
að eignast barn en sú barátta
stóð yfir í fimm ár. Þörfin fyrir
að komast að í leikhúsunum föln
aði í samanburði við þörfina
fyrir að eignast barn og þegar
það reyndist heldur ekki auðsótt
tók það völdin.“
Læknarnir gátu aldrei gefið
Tinnu útskýringu á ófrjósem
inni og stóðu þau frammi fyrir
því að orsökin gæti í rauninni
legið hvar sem er. „Ég prófaði
nánast allt til að koma mér í lag,
jóga, breytt mataræði, nálar
stungur og vítamín. Það komst
nánast ekkert annað að. Ég sat
svo dögum skipti við tölvuna og
reyndi að finna leiðir sem mögu
lega gætu hjálpað,“ segir Tinna.
„Ég hefði kosið að geta vitað
hvert meinið væri svo hægt væri
að ráðast á það en í mínu til
felli var það á huldu, allt ein
hvern veginn kom til greina og
gat verið að. Á þessu tímabili ef
aðist ég mikið. Það sem mig lang
aði í lífinu reyndist mér erfitt
að sækja og ég uppplifði sjálfa
mig á einhvern hátt staðnaða eða
jafnvel út undan.“
Eftir ítrekaðar tilraunir í
glasa og smásjárfrjóvgun kom
loks að því að Tinna varð ólétt.
„Læknirinn sagði mér að ég væri
með það há óléttugildi að líklegt
væri að ég gengi með tvíbura.
Það er erfitt að lýsa með orðum
þeirri gleði og léttistilfinningu
þegar svo loksins „jáið“ kemur,
hvað þá tvöfalt, eftir svona lang
an tíma. Við urðum svo spennt en
þorðum samt varla að trúa þess
um gleðifréttum. Við keyptum
örugglega um tíu óléttupróf, bara
til að sjá staðfestinguna aftur og
aftur, og öll voru þau með sömu
niðurstöðu. Við urðum að full
vissa okkur um að þetta væri
rétt og satt. Þetta var stórkost
legt og það besta sem gat komið
fyrir okkur.“
Meðgangan gekk að óskum
og í heiminn komu tveir falleg
ir drengir. „Eftir að þeir fæddust
var sem eitthvað gerðist innra
með mér, ég náði að sigrast á
eigin takmörkunum. Ég fann að
þungu fargi hafði verið af mér
létt og fylltist áður óþekktri orku
og framtaksvilja. Ég fann fyrir
sterkri þörf fyrir að leikstýra
og allt í einu kjarkinn til að gera
hluti sem ég þorði engan veg
inn að gera áður og hugsaði sem
svo að ég hefði hvort eð er engu
að tapa ef allt færi á versta veg.
Sjálfsmyndin væri ekki í húfi því
álit annarra á mér og verkefn
um mínum væri ekki það sem
skipti mestu máli heldur ástríð
an, að hrinda þeim í framkvæmd.
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is
Skapar Sér tækifæri
Blómavali Skútuvogi
ÓKEYPIS FYRIRLESTUR
FIMMTUDAGINN 15. OKTÓBER KL. 17:00 – 18:30
Benedikta fjallar:
Híbýli fyrir heilsuna.
Hvar finnast hættulegu efnin.
Heiðar Jónsson fjallar um:
Það huglæga, nornaveiðar,
sjálfsstraust og daður.
Skráning á namskeid@husa.is
eða í síma 525 3000.
BENEDIKTA JÓNSDÓTTIR
Lífstíls- og heilsuráðgjafi
HEIÐAR JÓNSSON
snyrtir, fyrirlesari og flugþjó
nn m.m.
TRYGGÐU ÞÉR SÆTI MEÐ SKRÁNINGU
TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ.
ALLIR VELKOMNIR
Frábær
tilboð á meðan
fyrirlestri
stendur
6 • LÍFIÐ 9. október 2015
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
3
-7
2
2
0
1
6
C
3
-7
0
E
4
1
6
C
3
-6
F
A
8
1
6
C
3
-6
E
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K