Fréttablaðið - 09.10.2015, Síða 33
Héðinn Unnsteinsson skrifaði
bókina Vertu úlfur sem Forlagið
gaf út í vor en hún segir frá
falli og upprisu manns sem
var greindur með geðhvörf.
Maðurinn er hann sjálfur. Bókin
fékk góðar viðtökur og er sögð
skyldulesning fyrir alla sem
starfa innan heilbrigðisgeirans
og alla sem hafa áhuga á
mannlegu eðli.
Héðinn hefur í gegnum tíðna verið ötull baráttumaður fyrir betri geðheilbrigðis-
þjónustu. Hann var frumkvöðull
Geðræktarverkefnisins og Geðorð-
anna 10 og starfaði meðal annars á
geðheilbrigðissviði Evrópuskrif-
stofu Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar um nokkurra ára skeið.
Í dag starfar hann sem stefnumót-
unarsérfræðingur hjá forsætisráðu-
neytinu.
Hvað telur þú að hafi áunnist
með útkomu bókarinnar? „Það er
nú erfitt fyrir mig að leggja mat á
það en boðskapurinn er á þá leið að
það er engin ein lína á milli þess að
vera geðsjúkur og heilbrigður. Við
erum öll á sama rófi en skynjum
hlutina á mismunandi hátt.“
Héðinn hefur verið viðriðinn geð-
heilbrigðismálin í tuttugu ár og er í
dag orðinn heldur afhuga greining-
um enda um 200 ára gamalt fyrir-
bæri að ræða. „Okkur er svo tamt
að takast á við hlutina útfrá dis-
ease og dis-ability í stað þess að
leggja áherslu á heilbrigði og getu.
Faðir geðlæknisfræðinnar, Emil
Kraeplins, flokkaði geðveiki í þrjá
meginflokka með örfáum undir-
flokkum. Í dag eru undirflokkarn-
ir á fimmta hundrað. Mér finnst
eitthvað bogið við það. Í dag byggir
heilbrigðiskerfið að stórum hluta á
því að meðhöndla einkenni og bjóða
endurhæfingu. Kannski af því að
það felast meiri peningar í veikind-
um og örorku en getu og heilbrigði
– en mér finnst tími til kominn að
staldra við. Okkur er líka svo tamt
að setja merkimiða á allt. Ef við
lítum á mannfólkið sem risavaxið
tré þá erum við alltaf að bæta við
greinum í stað þess að horfa á stofn-
inn og ræturnar sem eru sammann-
legar. Við nálgumst fólk frekar út
frá því hvar það er staðsett á grein-
unum.“
Héðinn segir geðheilbrigðismál-
in auk þess sérstaklega flókin enda
engar hlutlægar sannanir fyrir því
að eitthvað sé að heldur aðeins hug-
lægt mat eins á huglægu ástandi
annars. „Að síðustu er að mínu mati
mikið vald fólgið í þessum grein-
ingar kerfum.“
Yfirskrift Alþjóðageðheilbrigð-
isdagsins í ár er Dignity in Mental
Health, eða Virðing í verki. Hvern-
ig kallast innihald bókarinnar á
við það? „Í bókinni fer ég m.a. yfir
atvik sem átti sér stað árið 2008
en þá var mér synjað um innlögn
á geðdeild Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri vegna gagnrýnna skoð-
ana á aðferðum sjúkrahússins í við-
tali við Kastljós. Yfirskrift dags-
ins snýr meðal annars að virðingu
fagfólks í garð notenda en þetta er
dæmi um hið gagnstæða og gaf um-
boðsmaður Alþingis það síðar út að
hann efaðist um lögmæti synjunar-
innar á sínum tíma,“ segir Héðinn.
„Menn vilja berjast fyrir bættri
geðheilbrigðisþjónustu en áherslan
á þjónustu vill stundum gleymast
hjá hinu opinbera. Innan markaðar-
ins þykir sjálfsagt að veita þjónustu
en hjá hinu opinbera getur það verið
snúnara þar sem notendur hafa ekki
beinan kaupmátt á þjónustuna.“
Héðinn segir lækna og heil-
brigðisstarfsfólk ekki hafa einka-
leyfi á því að hjálpa. „Það er margt
annað sem hjálpar og hver þarf að
finna sína leið. Sumir geta þurft að
styðja sig við lyf um tíma. Öðrum
gagnast að hreyfa sig og/eða hug-
leiða og öðrum að breyta mataræð-
inu,“ segir Héðinn sem sjálfur
sagði skilið við lyfin fyrir nokkr-
um árum. „Mér gagnast til dæmis
vel að sitja í köldum potti við upp-
haf dags. Það veitir ró yfir dag-
inn en svo hef ég líka tileinkað mér
reglulega hugleiðslu. Auk þess er
heilmikið fengið út úr því að hafa
fjörugt ímyndunarafl og alls kyns
skynjanir,“ segir hann og brosir út
í annað. „Við erum sem fyrr segir
öll á sama rófi og nýlegar rannsókn-
ir renna stoðum undir það að ekki
séu jafn skörp skil á milli geðsjúk-
dóma og heilbrigðis og lengi hefur
verið talið.“
En hvað þarf að þínu mati að
breytast til að tryggja virðingu í
geðheilbrigðisþjónustunni? „Það
þarf að halda áfram opinni um-
ræðu bæði fagfólks og notenda og
allra sem koma að þessari þjón-
ustu. Að menn tali um það sem vel
og miður er gert alveg eins og gert
er um alla aðra þjónustu.“ Héðinn
segir þó margt hafa áunnist. „Við
getum meðal annars séð það á því
hvernig orðræðan hefur breyst í
gegnum tíðina. Í upphafi var talað
um lunacy eða tunglsýki, svo mad-
ness, insanity, svo mental illness og
nú mental health með viðskeytinu
problem. Við þokumst því áfram,
a.m.k. í orðræðunni.“
Hvað finnst þér Geðhjálp hafa
lagt af mörkum til að auka áhuga
fólks á geðrækt og Geðheilsu? „Fé-
lagið hefur staðið sig mjög vel og
stækkar sífellt og nær til fleiri. Í
upphafi var þetta aðallega félag not-
enda, aðstandenda og fagfólks. Mér
finnst félagið vera að þokast í átt að
því að hafa miklu víðari skírskotun
og vera fyrir alla sem hafa áhuga á
geðheilbrigði, en ef grannt er skoð-
að hafa það flestir því öll eigum við
svo mikið undir því að búa við góða
geðheilsu.“
Erum öll á sama rófi
Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á málþingið
með því að senda tölvupóst með nafni og kennitölu þátttakanda
og nafni og kennitölu greiðanda ef annar aðili en þátttakandi er
greiðandi á verkefnisstjori@gedhjalp.is.
Aðgangseyrir kr. 2.000, frítt fyrir félaga í Geðhjálp.
Hægt er að skrá sig í Geðhjálp á www.gedhjalp.is.
ÖÐRUVÍSI LÍF
Upplifun, reynsla og lærdómur aðstandenda geðsjúkra
Gullteigur, Grand Hótel 14. október 2015.
Fundarstjóri Erla Hlynsdóttir fjölmiðlakona.
13.00 – 13.15 Ljóð
Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, les upp ljóð í minningu Pálma, bróður síns.
13.15 – 13.30 Inngangur
Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar.
13.30 – 13.50 Reynsla aðstandenda af alvarlegum geðsjúkdómum
Knútur Birgisson, fötlunarfræðingur.
13.50 – 14.05 Með hjálp frá Virginíu Woolf
Styrmir Gunnarsson, maki.
14.05– 14.25 Lifað með harminum
Einar Zeppelin Hildarson (Zeppi), sonur.
14.25 – 14.40 Litla systir.
Erla Kristinsdóttir, systir.
14.40– 14.55 KAFFIHLÉ
14.55– 15.10 Rússíbaninn sem alrei stoppar
Helga Björg Dagbjartsdóttir, móðir.
15.10 – 15.30 Sætaskipti – lærdómur móður og fagmanns.
Ragnheiður Eiríksdóttir, móðir/hjúkrunarfræðingur.
15.30– 15.45 Samantekt
Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar.
MYND/STEFÁN
Í sumar byrjaði Héðinn
með uppistand í félagi
við tónlistarmanninn
Jónas Sigurðsson undir
yfirskriftinni Hamingjan
og Úlfurinn. „Jónas syng-
ur og ég segi reynslu-
sögur og set eitthvað á
svið sem einhverjir nefna
geðveiki en ég kalla upp-
lifun af reynslu á jaðri
skynsviðsins. Við prufu-
keyrðum dagskrána í
ágúst og fluttum okkur
svo í Salinn í Kópavogi í
september og sýndum
fyrir fullu húsi. Næsta
uppistand er á dagskrá
15. október.“
FÖSTUDAGUR 9. okTóbeR 2015 5Geðhjálp l
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
2
-1
3
9
0
1
6
C
2
-1
2
5
4
1
6
C
2
-1
1
1
8
1
6
C
2
-0
F
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K