Fréttablaðið - 09.10.2015, Page 37
Og þora að vera það sem maður
er. Óháður samþykki annarra.
Gera það sem mann langar til að
gera, gefast ekki upp, skapa sín
eigin tækifæri. Ef verkefnin mín
ganga vel þá er það stórkostlegt
en ef ekki þá er það líka í lagi,
heimurinn ferst ekki. Ég læri þá
bara af því, er að minnsta kosti
að reyna, taka þátt, lifa því lífi
sem mig langar að lifa.
Í dag er ég þakklát fyrir þessa
afstöðu, þakklát fyrir þá reynslu
að hafa sigrast á því sem ég ótt-
aðist mest, því þegar móður-
hlutverkið var í höfn varð margt
annað sem áður var erfitt og
ógerlegt svo auðvelt og yfirstíg-
anlegt. Það er samt mannlegt
að vera hræddur við útkomuna,
hræddur við að mistakast og við
álit annarra. Við erum það öll,
einhvern tímann. Aðalatriðið er
bara að láta ekki stjórnast af því
og vera trúr sjálfum sér.“
Leikstjórastóllinn
Tinna setti upp leikritið Útundan
þar sem hún nýtti reynslu sína af
ófrjósemi í leikstjóra stólnum.
„Leikritið fjallaði einmitt um
þrjú pör sem eru að fást við ófrjó-
semi og það var svona mín leið
sem listamaður að nýta mátt leik-
hússins til að opna umræðuna. Ég
fann hvað þetta var þörf umræða
þar sem barnleysi er oft og tíðum
mikið feimnis mál. Ég vildi setja
upp þetta verk til að sýna fólki
að það stæði ekki eitt í sinni bar-
áttu.“
Eftir það lét Tinna ekkert
stöðva sig og hélt áfram að leika
og setja upp verk á eigin vegum
og í samstarfi við aðra. Í síðustu
viku frumsýndi Tinna verkið
Lokaæfingu eftir Svövu Jakobs-
dóttur sem fjallar um eilífa leit
mannsins að öryggi í heimi þar
sem ekki er allt sem sýnist. Sagan
segir frá hjónum sem ákveða að
búa til neðanjarðarbyrgi undir
heimili sínu sem þau geta leit-
að í þegar heimurinn ferst. Við
þetta vakna ýmsar siðferðisleg-
ar spurningar og nálægð þeirra
hvort við annað afhjúpar þau.
„Kaldhæðnin í þessu verki er
svo sú að það sem þau eru að flýja
mætir þeim aldrei sterkar en ein-
mitt þarna niðri í byrginu,“ segir
Tinna leyndardómsfull á svip.
„Mér finnst margt í þessu leik-
verki eiga mikið erindi til okkar
í dag, að minnsta kosti miðað við
þá leið sem ég ákvað að fara að
því. Ég stytti verkið töluvert og
skilgreini aldrei hvaða alheimsvá
það er sem hjónin eru að flýja.
Þau eru bara að flýja heimsendi,
í hvaða mynd sem hann er. Í dag
er svo margt sem ógnar öryggi
okkar. Heimsmyndin hefur breyst
töluvert frá því að Svava skrif-
aði verkið en ákveðnir grunn-
þættir í tilveru okkar sem reyna á
okkur sem manneskjur hafa ekk-
ert breyst.“
Nýlega sendi Tinna frá sér
stuttmyndina Helgu og eins og
önnur verk sem Tinna sendir frá
sér hefur myndin mikilvæg skila-
boð að geyma. „Myndin er byggð
á sögu konu sem ég þekki og
fjallar í stórum dráttum um mik-
ilvægi þess að hlusta. Einhvern
tímann heyrði ég að ást væri
hlustun og fyrir mér er það al-
gjörlega rétt. Góð hlustun er svo
mikilvæg í lífinu, í svo mörgum
skilningi.“
Draumur Tinnu er að senda
myndina á stuttmynda hátíðir er-
lendis og er hún um þessar mund-
ir að vinna í þeim málum. „Ég
hef trú á myndinni. Fyrir mér á
hún erindi og sagan virðist snerta
fólk.“
Þegar litið er á þau verk sem
Tinna hefur sent frá sér má sjá
rauðan þráð sem tengir þau öll
saman, þau koma mikilvægum
skilaboðum út í samfélagið og
skapa þannig umræðu um mál-
efni sem skipta máli í mann-
legum samskiptum. Blaðamað-
ur hefur það á tilfinningunni
að þessi orkumikla og eldklára
kona sé rétt að byrja, því verður
spennandi að fylgjast með verk-
um Tinnu Hrafnsdóttur í fram-
tíðinni.
MyndaaLbúMið
Fjölskyldulífið skiptir miklu máli í lífi Tinnu Hrafnsdóttur.
HEIMILISMATUR
Tímalaus máltíð
ORA Heimilismatur lætur tímann og hjartað ráða för því réttirnir eru tilbúnir
á aðeins örfáum mínútum. Ljúengir, hollir og ölbreyttir réttir fyrir alla ölskylduna.
Ding og maturinn er tilbúinn.
V
E
R
T
LÍFið 9. okTóber 2015 • 7
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
3
-7
2
2
0
1
6
C
3
-7
0
E
4
1
6
C
3
-6
F
A
8
1
6
C
3
-6
E
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K