Fréttablaðið - 09.10.2015, Page 52
Viltu vita hvað eignin þín
hefur hækkað í verði ?
Kristján Þ. Hauksson
Sölufulltrúi.
696 1122
kristjan@fastlind.is
Frítt verðmat og framúrskarandi
þjónusta í þína þágu.
Fermetraverð í ölbýli á höfuðborgarsvæðinu eftir hverfum árið 2014
662 6163
Bjarni Blöndal
Löggiltur fasteignasali.
bjarni@fastlind.is
Allar tölur eru í íslenskum krónum. Miðað er við kaupverð. Heimild Þjóðskrá Íslands.
244.715 349.985
321.143
314.972
334.899
217.542
237.389
286.612
267.287
264.304
352.005
284.146
Innan Hringbrautar og
Snorrabrautar
Melar og Hagar
Grandar
Hlíðar
Háaleitisbraut
Lönd
Teigar og Tún
Vogar
Heimar
Hólar
Sel
Hraunbær
382.146
332.150
315.628
274.462
331.514
318.476
305.475
291.121
242.402
232.417
270.112
351.425 271.601
284.334
266.728
264.657
278.553
276.898
290.504
296.502
309.569
287.226
290.329
Hús
Foldir
Sjáland (Garðb)
Akrar (Garðb)
Vangur (Hafn)
Álfaskeið (Hafn)
Hraun (Hafn)
Ás(Hafn)
Berg(Hafn)
Vellir(Hafn)
Seltjarnarnes
Mosfellsbær
Garðabær utan
Akrar og SjálandsBorgir
Engi
Víkur
Rimar
Grafarholt
Lindir (Kóp)
Smárar (Kóp)
Salir (Kóp)
Kórar, Hvörf, Þing (Kóp)
Norðan
Kópavogslækjar
Nóbelsverðluanahafinn í bókmenntum árið 2015 er Svetlana Alexievich. Hún
er 67 ára og hefur lengi starfað sem
rannsóknarblaðamaður og verk
hennar teljast til heimildarbók-
mennta. Hún er hvað þekktust fyrir
magnaðar frásagnir af stríðinu í
Afganistan og Tsjernóbyl-slysinu en
ekki hefur farið mikið fyrir þýðing-
um á verkum hennar hér enn sem
komið er. Halldór Guðmundsson
rithöfundur, sem í haust sendir frá
sér bókina um Mamúsku, var einn
af þeim sem kynntu Alexievich á
Bókmenntahátíðinni í Reykjavík
og hann segir að það sé sérstakt
fagnaðarefni að hún fái Nóbelsverð-
laun í bókmenntum í ár .
Leyfir röddum að heyrast
„Það er fagnaðarefni vegna þess
sem hún hefur skrifað og fagnaðar-
efni vegna þess sem hún stendur
fyrir. Því hefur verið spáð í nokkur
ár að hún fengi þessi verðlaun, og
m.a. var heilmikil umræða um það
þegar hún var hér á bókmennta-
hátíð 2013.
Hún er frá Hvíta-Rússlandi, fædd
í Sovétríkjunum 1948, átti víst hvít-
rússneskan föður og úkraínska
móður, býr í Minsk og hefur lengst
af verið blaðamaður, lærði raunar
það fag en átti ekki alltaf auðvelt
með vinnu vegna skoðana sinna.
Þótt margir rithöfundar hafi lagt
blaðamennsku fyrir sig um tíma,
svo sem Hemingway og Marquez,
er hún líklega fyrsti atvinnublaða-
maðurinn til að fá verðlaunin – og
fjórtánda konan. Og hún hefur tekið
blaðamennskuna með sér í höf-
undarverkið, því hún vinnur eins og
góður blaðamaður, leyfir röddum
að heyrast sem aldrei höfðu heyrst,
heldur sannleika þeirra til haga og
stendur vörð um sögulegt minni.
Það hefur mikla pólitíska þýðingu
á þessu svæði öllu, hvort sem við
tölum um Rússland, Hvíta-Rússland
eða Úkraínu, og sem rússneskur höf-
undur hefur hún háð gagnmerka
baráttu fyrir málfrelsi og gegn hvers
konar yfirgangi og valdníðslu.
Enginn vill þetta stríð
Það var okkur á bókmenntahátíð-
inni mikið kappsmál á sínum tíma
að fá hana hingað. Ein ástæðan
var sú að í það sinnið vorum við í
samstarfi við PEN, alþjóðasamtök
rithöfunda, sem héldu heimsþing
sitt hér á sama tíma og því var mikil
áhersla á málfrelsi og mannréttindi
á hátíðinni rétt eins og þinginu og
reyndar átti Sjón, forseti íslenska
PEN, hugmyndina að því að bjóða
henni. Koma hennar vakti mikla
athygli og upplestrar hennar voru
fjölsóttir, enda hafði hún frá miklu
að segja. Ég fékk þann heiður að
kynna hana í eitt skiptið og ræddi
svolítið við hana, með aðstoð túlks
því ég kann ekki rússnesku og ætla
þess vegna ekki að þykjast vera
neinn sérfræðingur í hennar verki.
En ég man það sló mig annars vegar
hvað hún var æðrulaus, þrátt fyrir
ótrúlega erfiðar aðstæður sem hún
hefur lengst af starfað við, og hins
vegar hvað hún var svartsýn á þróun
mála á þessu svæði, svartsýn vegna
þess hve lýðræði allt stæði veikum
fótum og mannréttindi hefðu aldrei
fest sig almennilega í sessi – þetta
má sjá í nýlegri grein eftir hana
um Pútín og Úkraínu, þar sem hún
ræðst harkalega á rússneska þjóð-
rembu en segir um leið, með tilvísun
í Tolstoj: Enginn vill þetta stríð, en
samt er það í undirbúningi. Heim-
sókn hennar varð enn fremur til
þess að Árni Bergmann þýddi kafla
úr nýjustu bók hennar fyrir Tíma-
rit Máls og menningar, hann heitir
Bernskusaga og sýnir einmitt vel
aðferð hennar sem höfundar.“
Örlög einstaklinga
Halldór segir að Alexievich fari þá
leið að tala við fjölda manns, alls
margar þúsundir, um upplifun
þeirra á því sem er viðfangsefni
hennar hverju sinni. „Hún klippir
síðan vitnisburðinn saman í stór
verk sem gefa ótrúlega áhrifamikla
heildarmynd, að dæma af því tak-
markaða sem ég hef lesið. Fyrsta bók
hennar fjallaði um konur í seinni
heimsstyrjöldinni, Stríðið hefur
ekki kvenlegt andlit heitir hún og
er frá 1985, en síðan hefur hún með
sama hætti fjallað um mörg erfið-
ustu mál Sovétríkjanna, Tsjernóbyl,
Afganistan, og nú síðast hvernig var
að alast upp í Sovétríkjunum. Mér
finnst þessi aðferð reyndar ekkert
svo langt frá því sem ýmsir góðir
rússneskir höfundar hafa iðkað,
þótt þeir skrifi skáldskap en hún
heimildasögur. Fræðimaðurinn
Bakhtin gerði á sínum tíma grein
fyrir margradda skáldsögunni, þar
sem sjálfstæðar persónur tjá sig á
sínum forsendum, og þetta var til
dæmis aðferð Solsénitsíns í nokkr-
um af bókunum hans um sovéska
sögu. Hugmyndin er alltaf þessi að
draga fram hin mannlegu sannindi
bak við pólitísku viðburðasöguna,
láta örlög einstaklinga hljóma
saman í sterkri kviðu, leyfa þeim að
segja frá á sínum forsendum. Það er
afar ánægjulegt að Nóbelsnefndin
hafi heiðrað Svetlönu Alexievitch og
þessa aðferð hennar. Verk Svetl önu
Alexievitch eru sannkallaður fjár-
sjóður frá öld öfganna.“
Þúsund vitnisburðir klipptir í eina áhrifaríka heild
Sænska Nóbelsnefndin tilkynnti í gær að rithöfundurinn Svetlana Alexievich frá Hvíta-Rússlandi hlyti
Nóbelsverðlaunin í ár. Alexievich var gestur Bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík árið 2013.
Svetlana Alexievich Nóbelsverðlaunahafi og Halldór Guðmundsson á Bókmenntahátíðinni í Reykjavík árið 2013.
EN ég mAN þAð Sló mig
ANNARS vEgAR HvAð HúN
vAR æðRulAuS, þRátt fyRiR
ótRúlEgA ERfiðAR AðStæðuR
SEm HúN HEfuR lENgSt Af
StARfAð við, og HiNS vEgAR
HvAð HúN vAR SvARtSýN á
þRóuN málA á þESSu Svæði,
SvARtSýN vEgNA þESS HvE
lýðRæði Allt Stæði vEikum
fótum og mANNRéttiNdi
HEfðu AldREi fESt Sig
AlmENNilEgA í SESSi.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
9 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F Ö S t U D A G U r28 M e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
menning
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
_
N
ÝT
T
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
2
-9
3
F
0
1
6
C
2
-9
2
B
4
1
6
C
2
-9
1
7
8
1
6
C
2
-9
0
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
8
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K