Allt um íþróttir - 01.02.1951, Qupperneq 3

Allt um íþróttir - 01.02.1951, Qupperneq 3
Til lesenda Tímaritið „ALLT UM ÍÞRÓTTrR“ hefur nú komið út í 8 mánuði, og hafa útgefendur þess kappkostað að koma ritinu til lesenda í fyrri helmingi hvers mánaðar og mun svo verða i framtíðinni. Ýmsir örðugleikar hafa mætt ritinu á fyrsta ári þess og hafa fjárhagsörðugleikamir orðið erfiðastir að yfirstíga, því að innkomið fé fyrir seld eintök er háð sveiflum mismunandi fjölda kaupenda hvers mánaðar. Ritinu er því einungis tryggður fastur fjárhagslegur grund- völlur, að áskrifendafjöldinn sé nægilega mikill, til að ritið þurfi ekki að byggja afkomu sína á ótryggri lausasölu. Því leitum við til yðar, lesandi góður, þar sem þér eigið sjálfsagt fjölda vina og kunningja, sem enn hafa ekki gerzt áskrifendur að'ritinu, og biðjum yður vin- samlegast að hjálpa oss til að auka áskrifendafjöldann. Ritið nöfn hinna nýju áskrifenda á þar til gerðan áskriftaseðil aftan á þessu blaði og sendið oss ásamt árgjaldinu, kr. 40.00. Sé hinsvegar hinn nýi áskrif- andi þegar búinn að kaupa fyrsta tölublaðið, ber honum ekki að greiða nema kr. 37.00, eða bæði 1. og 2. tölublað, þá kr. 34.00. Verður þá sendingu hagað eftir því. Vér viljum benda þeim lesendum, sem kaupa ritið í lausasölu, á það, að með því að gerast áskrifandi, þá sparið þér yður kr. 20.00 á ári eða kr. 1.67 á hverju hefti, og fáið það sent heim meS pósti strax eftir útkomu ritsins. Gerizt áskrifendur að ALLT UM ÍÞRÓTTIR. Ákveðið hefur verið, að þeir, sem safna 10 eða fleiri nýrra áskrif- enda, fái 2. árg. ritsins ókeypis. íþróttamenn og íþróttaunnendur, vinnið að útbreiðslu ritsins og útvegið að minnsta kosti einn nýjan áskrifanda. Útgefendur.

x

Allt um íþróttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.