Allt um íþróttir - 01.02.1951, Blaðsíða 28
JACK HOLDEN
Evrópumeistari í Maraþonhlaupi
fæddist í marz 1907 í Bradley,
Staffordshire.
Þó að Holden hafi verið góður
þolhlaupari árum saman, var það
ekki fyrr en 1946, að hann fór að
leggja stund á Maraþonhlaup.
Hér sést Holden sigra í Auckland.
Hann hljóji berfœttur meiri liluta
leiöarinnar. ■
Hann keppti þó ekki í Osló, þar
sem hann hafði ekki nóga reynslu
í Maraþonhlaupi þá.
Margir spáðu Holden sigri á
Ólympíuleikunum 1948, því að þá
hafði hann oft sigrað í Maraþon-
hlaupum. Þetta fór nú samt á ann-
an veg, því að hann varð að hætta.
Árið 1950 varð mikið sigurár
fyrir Holden, því að þá varð hann
meistari á móti brezku samveldis-
landanna í Auckland á Nýja-Sjá-
landi og svo varð hann E.M.-
meistari í Briissel með talsverðum
yfirburðum.
Jack Holden æfir mjög mikið og
unir sér aldrei hvíldar, því að hann
æfir allan ársins hring. Að lokinni
erfiðisvinnu í verksmiðju allan
daginn, fer hann á æfingu og það
er alveg sama, hvernig viðrar.
Hann hefur ekki sérstaklega mikla
ánægju af æfingum eða keppni.
Ástæðan fyrir íþróttaiðkunum
hans er sú, að hann vill leggja
sitt fram til að halda nafni Bret-
lands á lofti í íþróttunum.
Norskur göngukennari.
Norðmaðurinn J. Tenman, sem
hingað er kominn á vegum SKÍ,
hefur undanfarið dvalið við
kennslu á Akureyri. Námskeið
hans sóttu skíðamenn frá ísafirði,
Siglufirði og Þingeyjarsýslu, auk
Akureyringanna.
Ritstj. hafði tækifæri til að hitta
Tenman að máli, áður en hann fór
norður, og ræða við hann um ýmis
áhugamál ísl. skíðamanna. —
Kvaðst hann að svo stöddu ekkert
geta sagt um væntanlega þátttöku
ísl. göngumanna í Holmenkollen-
mótinu, en mundi ráðleggja það,
sem bezt væri í þeim efnum.
(SKÍ hefur að hans ráði hætt
við þá einkennilegu ráðstöfun að
senda sveit til þátttöku í boð-
göngu!).
62
IÞRÓTTIR