Allt um íþróttir - 01.02.1951, Blaðsíða 9
t
ölympíumeistarinn G. Smith, U.S.A., stekkur if.SO í stangarstökki.
Afreksmenn í frjálsíþróttum IV:
Bcmdaríkjamenn eru langbeztir
í stangarstökki.
Margir munu vera á þeirri skoð-
un, að stangarstökkið sé einhver
skemmtilegasta og um leið glæsi-
legasta grein frjálsíþrótta, og mun
það ekki fjarri sanni. Til þess að
geta orðið góður stangarstökkvari,
þarf íþróttamaðurinn að hafa
kraft, hraða og áræði og mikið
sjálfstraust.
Eins og sjá má bæði af skránni
um Ólympíusigurvegarana og
skránni um beztu menn heimsins,
eru það Bandaríkjamenn, sem hafa
verið og eru langbeztir í þessari
grein. Annars var það Norðmaður-
inn Charles Hoff, sem fyrstur
stökk háu hæðimar, því að 1922
setti hann heimsmet með því að
stökkva 4.12 m., og árið eftir bætti
hann það upp í 4.20 og loks 4.21.
Hoff tókst samt ekki að sigra á
Ólympíuleikjunum í París 1924,
því að hann meiddi sig í ökla og
þurfti að horfa á Bandaríkjamann-
inn Lee Barnes vinna á 3.95. En
nú kom Bandaríkjamaðurinn Spea-
row fram á sjónarsviðið og bætti
heimsmetið í 4.25, en það met stóð
IÞRÓTTIR
43