Allt um íþróttir - 01.02.1951, Blaðsíða 26

Allt um íþróttir - 01.02.1951, Blaðsíða 26
Kristján Árnason varð íslandsmeistari í skautahlaupi. Á skautamóti íslands, sem fór fram á Akureyri um síðustu mán- aðamót varð Kristján Ámason, KR meistari, hlaut hann alls 246.7 st. og nafnbótina „íslandsmeistari í skautahlaupi 1951“. Annar varð Þorsteinn Steingrímsson, Þrótti, með 258,8 st. og þriðji Jón D. Ár- mannsson, Akureyri, með 264,5 st. í einstökum greinum urðu þess- ir sigurvegarar: 500 m. karlar: Kristján Ámason 51.6 (met), 1500 m. karlar: Kristján Árnason 3:15.2, 3 km. Kristján Ámason 5:55.2 (met), 5 km. Jón D. Ármannsson, Ak. 11.43.1. — Konur: 500 m. Edda 60 Indriðadóttir, Ak. 75.9,. 1500 m. Erla Indriðadóttir, Ak. Ráðgerð hafði verið sýning á listhlaupi, en vegna þess, hve mik- ið snjóaði, féll það niður. Að öðm leyti var veður gott og mótið fór vel fram. Úr Norður-Þingeyjarsýslu. Hér í Norður-Þingeyjarsýslu skeður fátt, sem í frásögur er fær- andi og ekki áður getið. Þó mætti kannske geta þess, að hinn 36 ára gamli bóndi á Grásíðu í Keldu- hverfi, Þorgeir Þórarinsson, sem kunnur er víða um land fyrir góð- an árangur í hlaupum, hljóp í sumar 800 m. á 2:15 mín. Þetta er að vísu ekki góður árangur, þó við miðum aðeins við bezta árang- ur hérlendis s.I. sumar. En það er sjálfsagt einsdæmi hér á landi og jafnvel þó víðar væri leitað, að 36 ára gamall maður, sem vinnur erfiðisvinnu allt árið og hlýtur enga aðra þjálfun en þá, sem dag- leg störf veita, skuli geta, ef hann kastar frá sér önnum dagsins, náð svo góðum árangri á þessari vega- lengd. Umf. Leifur heppni gekkst fyrir drengjamóti s.l. sumar, því fyrsta hér um slóðir. Árangur var heldur lélegur, en þó má benda á 10 mín. 7 sek. í 3 km. hlaupi hjá Jóhanni Gunnarssyni við slæmar aðstæður. Undirbúningur keppenda var mjög lítill og því í raun og veru ekki við miklu að búast. En mjór er mikils vísir. X + Y=Z. IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.