Allt um íþróttir - 01.02.1951, Blaðsíða 23

Allt um íþróttir - 01.02.1951, Blaðsíða 23
ur með í Osló er þrístökkinu vel borgið. í köstunum stöndum við mjög framarlega, nema í sleggjukasti. Huseby er stóra nafnið með sína 16.74 og 50.13. Það er frábær ár- angur, en hann getur enn meir. Næstu menn í kúluvarpi og kringlu kasti eru einnig mjög góðir og jafnir. í sumar verða þeir þó enn betri. Löve, Friðrik og Hallgrímur verða allir nálægt 50 m., ef þeir æfa vel og keppa nógu mikið. Ágúst Ásgrímsson og Vilhjálmur Vihnundarson fara einnig yfir 15 m. í kúluvarpinu. Þó að hér séu að- eins nefnd þessi fáu nöfn, eru fjöl- margir aðrir efnilegir í kjölfarinu. Jóel Sigurðsson. Jóel hefur verið okkar langbezti spjótkastari undanfarin ár og er það enn. Hann vann það afrek 1949, eins og flestum er kunnugt, frá Lundúnaleikunum, og kastaði þá 66.99 m. í fyrra var hann held- ur lakari, en spurningin er, hvað gerir hann sumarið 1951? Ef Jóel nær meiri hraða í atrennuna, þá kemst hann í 70 m.-hópinn, því að hann hefur nægan vilja og kraft. Hjálmar Torfason er næstur Jóel með sína 60.91, sem er annar bezti Gunnar Huseby árangur íslendings frá upphafi. Hjálmar og Adolf eiga báðir að setja markið 62—65 metra næsta sumar, því að það geta þeir. í spjótkasti eru liðleg efni á ferð- inni, sem mikils má af vænta. Erfiðlega virðist ætla að ganga fyrir okkur að eignast góðan sleggjukastara. Þórður er efnileg- ur og kannske hann verði okkar fyrsti 50 m.-maður. Gunnar Jóns- son, ÍBV, hefur einnig mikla hæfi- leika sem sleggjukastari. Að lokum verður minnzt hér lít- illega á þrautirnar. Öm keppti að- eins einu sinni á árinu og setti þá glæsilegt met. Hann gat ekki æft vikum saman vegna liðagigtar og hafði það auðvitað mjög slæm IÞRÓTTIR 57

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.