Allt um íþróttir - 01.02.1951, Blaðsíða 30
Bretland.
Fyrir 3 árum réðist
hinn kunni landsliðs-
maður Raich Carter frá
Derby County til Hull City, sem
þá var í 3. deild, sem aðstoðar-
framkvæmdastjóri og leikmaður,
en framkvæmdastjóri Hull City
var þá Major Buckley, sem verið
hafði með Wolverhampton. Hann
sagði nokkru síðar af sér og fekk
Carter þá stjóm félagsins einn.
Jafnframt lék hann með aðalliðinu
og eftir leiktímabilið tókst félag-
inu að vinna sig upp í 2. deild.
Varð þetta upphaf þess, að lið í
3. deild réðu til sína gamla leik-
menn, sem áttu aðeins eftir fáein
ár sem virkir leikmenn. Doncaster
Rovers réð til sín írann fræga,
Peter Doherty, og vann sig upp í
2. deild í vor. Önnur lið, sem hafa
ráðið til sín leikandi framkvæmda-
stjóra, eru Mansfield Town (Fred-
die Steele frá Stoke City og K.R.!),
Crystal Palace (Rooke frá Arsen-
al), Bristol City (Beasley frá Ful-
ham). Nú fyrir nokkru keypti Old-
ham, sem nú er 23. í 3. deild N.,
landsliðsbakvörðinn gamla hjá
Middlesbrough, George Hardwick,
fyrir 15.000 sterlingspund og verð-
ur hann framkvæmdastjóri félags-
64
ins. Furðulegastur er þó ferill
Broadis, sem gerðist framkvæmda-
stjóri Carlisle og var þá áhuga-
maður, en eftir leiktímabilið seldi
félagið hann til Sunderland fyrir
20.000 sterlingspund.
Eftir nýár fer venjulega svo, að
deildakeppnin enska fellur að nokk-
uru leyti í skugga bikarkeppninnar,
sem þá rennur lokaskeiðið, er lýk-
ur á Wembley í apríl. Með 3. um-
ferð hefst aðalþáttur hennar með
tilkomu I. og II. deildar-liðanna,
og varð sú umferð að þessu sinni
aUsöguleg, því að „stóru Iiðin“
féllu svo að segja hvert um annað
þvert. Meistaramir Portsmouth
mega ekki sjá framan í lið, sem
vegur salt milli n. og HI. deildar.
1948 féllu þeir út í undanúrslitum
fyrir Leicester City, í ár sá Luton
Town fyrir því, að þeir færu ekki
lengra, Tottenham féll fyrir borð
í Huddersfield (2-0), Middlesbro í
Leeds (1-0) og Liverpool í Nor-
wich, þar sem góðkunningi okkar
frá heimsókn Lincoln City 1949,
vinstri útherjinn Tom Docherty,
átti aðalþáttinn í falli Liverpools,
skoraði 2 mörk (3-1). Mansfield
Town með Freddie Steel við stjóm-
vöhnn hefur slegið út 2 n. deildar-
lið, í 3. umf. Swansea og í 4. umf.
Sheffield United. Eftir 4 umferðir
em enn með 4 lið úr 3. deild:
Bristol-félögin City og Rovers,
ásamt Norwich og Mansfield, og
úr H. deild Birmingham og Hull,
sem nú hefur fengið Neil Frank-
lin með.
En nöfnin úr I. deild eru m. a.:
Arsenal, Blackpool, Manch. United
IÞRÓTTIR