Allt um íþróttir - 01.02.1951, Blaðsíða 11

Allt um íþróttir - 01.02.1951, Blaðsíða 11
BóSsundssveit Ægis, er setti isl. met í 4X50 m. flugsundi. TcdiS frá vinstri: Ari GuSmundsson, Elías GuSmundsson, SigurSur Þorkels- son og HörSur Jóhannesson. SUNDMÓT ÆGIS: Pétur setti nýtt met í 50 m. flugsundi. Mótið gekk óvenju vel. Sundmót Ægis fór fram í Sund- höllinni 31. jan. s.l. 62 keppendur voru skráðir til leiks og mættu frekar vel. Það bar helzt til tíðinda á þessu skemmtilega móti, að okkar ágæti Pétur sýndi, að hann er sízt lak- ari í flugsundi en skriðsundi, því að hann vann Hörð eftir harða keppni á 33.3 sek., sem er y5 úr sek. betri tími en met Sigurðar Jónssonar KR-ings. Þegar tilkynnt var, að Sigurður Þingeyingur gæti ekki mætt, þar sem hann væri veðurtepptur á Laugarvatni, bjuggust allir við auðveldum sigri Atla, en Kristján veitti honum harðari keppni en buizt var við. Það virðist ætla að ganga illa fyrir Atla að komast neðar en 1:19, hverju svo sem um er að kenna. Þorsteinn Löve, hinn góðkunni kringlukastari ÍR-inga, kom skemmtilega á óvart með að verða þriðji á ágætum tíma. Ari vann 300 m. skriðsund, eins og við var búizt. Hann var samt óvenju þungur, kannske ekki kom- inn í æfingu ennþá. Helgi Sigurðs- son, sem varð annar, er kornung- ur og á mikla framtíð fyrir sér í sundíþróttinni. Virðist hann vera IÞRÓTTIR 45

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.