Allt um íþróttir - 01.02.1951, Blaðsíða 13

Allt um íþróttir - 01.02.1951, Blaðsíða 13
Enska deildakeppnin var í upphafi neyðarúrrœði. EFTIR JOHN ARLOTT Með hliðsjón af væntanlegri starfrækslu veðbanka hérlendis, vill ritið með grein þessari kynna lesendum sögu og fyrirkomulag þeirrar keppni, sem óhjákvæmilega verður undirstaða slikrar starfsemi. Um þessar mundir standa yfir á Englandi tvær knattspyrnu- keppnir, sem fylgzt er með af at- hygli um allan heim. Önnur er hin „lýðræðislega" bikarkeppni, sem öll félög fá að taka þátt í, hin er hin stranga keppni forréttindafé- laganna, stóru og smáu atvinnufé- laganna, sem mynda hina svo- nefndu „lígu“. Þegar bikarkeppnin hafði slitið barnsskónum („fædd“ 1872) og atvinnumennska komst á á Englandi, sáu stóru félögin fram á gjaldþrot, ef svo færi, að þau yrðu slegin út úr bikarkeppninni í fyrstu umferðunum. Það var því af hreinni neyð, að atvinnufélögin komu sér saman um að hef ja stiga- keppni, sem stæði yfir samhliða bikarkeppni enska knattspyrnu- sambandsins. Til að komast fyrir upphaf líg- unnar, verður að fara aftur í tím- ann, nokkurum árum fyrir stofn- un hennar. Allir fyrstu sigurveg- arar bikarkeppninnar voru áhuga- mannafélög, félög fullorðinna leik- manna, sem lært höfðu undirstöðu- atriði knattspymunnar og hlotið þjálfun sína 1 barnaskólum og menntaskólum, félög eins og Ox- ford háskóli, félag verkfræðinga í hernum, og félag gamalla Eton- nema. Engu að síður voru þetta sterk félög, og þau voru öll úr suð- urhéruðunum. Knattspyrna var að vísu leikin í iðnaðarborgum norð- urhéraðanna, en áhugamenn þar skorti oftast undirstöðuþjálfunina, sem skólar suðurhéraðanna veittu, og iðulega skorti bæði velli og nauðsynlegan útbúnað. Þegar atvinnumennskan komst á í norðurhéruðunum, varð stofn- un deildakeppninnar óhjákvæmi- leg. Einu knattspymukeppnir þessara tíma voru útsláttarkeppn- ir, og iðulega kom fyrir, að stórt félag tók þátt í 4 slíkum keppnum á' sama leiktímabili. Afleiðingin varð óskiljanleg ringulreið á leik- dögum og andstæðingum. Auðug áhugamannafélög, sem létu sér nægja vikulega hreyfingu á laug- ardegi, gátu vel komizt af undir þessum kringumstæðum, en at- vinnufélögin áttu erfitt uppdrátt- ar. Með löngum launalistum á viku IÞRÓTTIR 47

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.