Allt um íþróttir - 01.02.1951, Side 22

Allt um íþróttir - 01.02.1951, Side 22
Afrekaskrá Islands í frjálsíþróttum 1950 Stökk. Köst. Það náðist betri árangur í öllum stökkunum 1950 heldur en árið áð- ur. Met voru sett í hátökki, stang- arstökki og langstökki. í þrístökki var ekkert met sett, en nú áttum við í fyrsta sinn tvo menn yfir 14 metra. Skúli ber höfuð og herðar yfir hástökkvara okkar. Hann virðist nú hafa meiri snerpu en áður og yfirleitt betra vald á stökkinu. Vonandi hættir Skúli ekki keppni fyrr en hann hefur náð 2 metrum, sem er æðsta takmark flestra há- stökkvara. Sigurður Friðfinnsson er í mikilli framför og ætti strax næsta sumar að ráða við 1.90 m. Mörg glæsileg efni eru í uppsigl- ingu, og dettur okkur helzt í hug að nefna Gunnar Bjarnason, ÍR, Magnús Bjarnason, ÍBV, Jafet Sig- urðsson, KR, og Eirík Haraldsson úr Ármanni. í stangarstökki og langstökki er Torfi okkar langbezti maður. öm veitti honum þó stundum harða keppni í langstökkinu. Við eigum gott langstökkspar, þar sem Torfi og Öm eru, og að öllum líkindum verða þeir í fyrsta og öðru sæti í Oslo. Yfirburðir Torfa yfir aðra stangarstökkvara okkar eru geysi- miklir. Stíll hans batnaði mikið í fyrrasumar, en á þó eftir að lag- ast enn, sérstaklega yfir ránni. Torfi ætti að setja sér það tak- Torfi yfir ránni. mark að jafna Ólympíumetið næsta sumar, en það er 4.35 m., sett af Earle Meadotvs í Berlín 1936. Af yngri kynslóðinni eru líklegastir til afreka drengjameistaramir Valdimar Ömólfsson og Baldvin Ámason, báðir úr ÍR, auk þess Ámi Magnússon, Eyjafirði, Gylfi Gunnarsson, lR og Ásgeir Guð- mundsson, Borgarfirði. Kristleifur úr Eyjum er sterkur þrístökkvari og með réttri æfingu og þolinmæði ætti hann að nálg- ast 15 m., en Stefán væri kominn yfir 15 m., ef hann gengi heill til leiks. Verði Stefán og Kristleif- 56 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.