Allt um íþróttir - 01.02.1951, Qupperneq 32

Allt um íþróttir - 01.02.1951, Qupperneq 32
Hearts 21 10 4 7 41-32 24 Rangers 19 10 3 6 35-22 23 Raith R. 21 10 2 9 40-35 22 Celtic 20 8 4 8 38-31 20 Morton 20 9 2 9 35-32 20 Motherwell 16 8 3 5 39-32 19 Partick 17 8 2 7 35-31 18 Th. Lanark 21 8 1 12 27-32 17 Clyde 22 6 5 11 26-38 17 St. Mirren 21 6 4 11 20-38 16 Falkirk 21 5 3 12 22-46 13 East Fife 18 4 4 10 24-47 12 Airdrie 20 4 412 28-52 10 Noregur. Skíðagöngumaðurinn Henry Hermansen hefur að undanfömu sigrað í hverju mótinu á fætur öðru og eru tengdar miklar vonir við hann á Holmenkollenmótinu. Einnig er þolhlauparinn Stokken í góðri æf- ingu. Af stökkmönnunum eru Ame Hoel, Arne Aasen, Petter Hugsted og Hans Bjömstad í sérflokki, en fjöldi annarra stökkmanna em á góðri leið með að komast í þjálfun. Meðal þeirra eru Asbjörn Ruud, Hans Haanes og Thormod Knud- sen. Allir þessir kappar eru nú á keppnisferðalagi víðsvegar um Mið-Evrópu. Af svigmönnunum er Stein Erik- sen stærsta nafnið, en í Sviss fyr- ir skemmstu sigraði hann m. a. ít- alana Zeno Colo og Carlo Gartner og Austurríkismanninn Othmar Schneider. Brautin, sem keppt var í, var með 47 hliðum og var tími Erikesns eftir fyrri umferð 54.3. í seinni umferð hafði Colo beztan tíma, 55,0, og Eriksen og Schnei- der 55.8. — Þess má geta, að Schneider er núverandi heims- meistari. Tvíkeppnismaðurinn Simon Sláttvik hefur undanfarið verið sigursæll og er í afar góðri þjálf- un. Er talið, að hann, ásamt Már- dalen og Gjelten, muni verða aðal- keppinautamir um „Kongepoka- len“ á Holmenkollenmótinu. Evrópumeistaramótið á skautum fór fram í Osló í janúar og varð Norðmaðurinn Hjalmar Andersen Evrópumeistari með 194.057 stig. Annar varð van der Voort, Hol- landi og þriðji Henry Wahl, Noregi með 199.063 stig. Tími á einstökum vegalengdum: Hj. Andersen: 44.5 — 2:22.7 — 8:15.6 — 17:28.6. van der Voort 45.4 — 2:22:5 — 8:28:5 — 17:56.5. Wahl 46.4 — 2:23.8 — 8:33.5 — 17:47.6. Jappen Eriksen, sá er kenndi hér skíðastökk í fyrra, varð ný- lega annar í stökkkeppni í Askim, næstur á eftir sjálfum Ame Hoel. Sviss. Um miðjan nóv. léku Svisslendingar gegn Sví- um í Zúrich. Völlurinn var blautur og þungur og veittist heimaliðinu auðveldara að athafna sig við þessar aðstæður, polla og aur. T. d. var v. úth. Svíanna, Bengtsson, alls ekki með í leikn- um, en nýliðinn Lindh frá Örebro var bezti Svíinn á vellinum. Sviss- nesku útherjamir, Antenen og 66 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.