Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2014, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.11.2014, Blaðsíða 3
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 3 Árið 2014 er senn á enda. Margt kemur upp í hugann þegar viðburðir ársins eru rifjaðir upp og erfitt er að gera upp á milli. Unglingalandsmótið á Sauðár- króki, Landsmót UMFÍ 50+ á Húsavík, almenn- ingsíþróttaverkefnið Hreyfivika (Move Week), starfsemin í Ungmenna- og tómstundabúð- unum á Laugum, heimsóknir til sambands- aðila og samstarfsaðila UMFÍ og sambands- ráðsfundur UMFÍ eru meðal þeirra viðburða sem koma fyrst upp í hugann auk allra hinna verkefnanna, stórra og smárra, sem grasrótin hefur verið og er að vinna að. Öllum þeim sem hafa komið að og tekið þátt í starfsemi ungmennafélagshreyfingarinnar færi ég kær- ar þakkir fyrir árangursríkt starf, gott sam- starf og góð samskipti á árinu sem senn er liðið. Árið 2015 gengur brátt í garð og vonandi verður það íþrótta- og æskulýðsstarfinu í landinu happadrjúgt. Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar eru bætt lýðheilsa og forvarnastarf meðal forgangsverkefna og samfélagslegt mikil- vægi frjálsra félagasamtaka og sjálfboðaliða- starf innan þeirra er viðurkennt. Í sáttmálan- um er lýst yfir vilja til þess að greiða götu slíkrar starfsemi og lögð áhersla á mikilvægi félagasamtaka til að vinna að því markmiði að efla og bæta íslenskt samfélag. Við sem vinnum í þriðja geiranum fögnuðum þessari yfirlýsingu í stjórnarsáttmálanum. Það er gras- rótinni mikilvægt að upplifa sitt samfélags- lega mikilvæga og skilgreinda hlutverk með þeim hætti sem í honum er lýst. Sjálfboðaliðasamtök eins og Ungmenna- félag Íslands eru hluti af þriðja geiranum sem er einkar mikilvægur og til hliðar við einka- geirann og opinbera geirann. Alþjóðlegar rannsóknir sýna að eftir því sem sjálfboða- liðastarf í frjálsum félagasamtökum er öflugra, þeim mun traustari eru innviðir samfélagsins. Hér á landi má finna sjálfboðaliða að störfum á öllum stigum samfélagsins, af einhverju tagi, í hinum ýmsu sjálfboðaliðasamtökum og öðrum félögum. Allir eiga sjálfboðalið- arnir það sameiginlegt að þeir veita fjölþætta samfélagslega þjónustu og berjast fyrir sam- félagslegum úrbótum. Þjóðhagslegur ávinn- ingur af starfi sjálfboðaliða er mikill og óum- deildur. Þeim fjármunum sem ríki og sveitar- félög, fyrirtæki og aðrir hópar eða einstakl- ingar verja í sjálfboðaliðasamtök er því vel Hugleiðing á aðventu varið. Það er einnig staðreynd að án fjár- framlaga frá þessum aðilum gætu sjálfboða- liðasamtökin ekki haldið úti eins öflugri starf- semi og raun ber vitni. Mörg spennandi verkefni bíða ungmenna- félagshreyfingarinnar á nýju ári, m.a. Ungl- ingalandsmót á Akureyri, Landsmót UMFÍ 50+ á Blönduósi, Hreyfivikan 2015, verkefni á vegum ungmennaráðs UMFÍ og eldri ung- mennafélaga, ásamt fjöldanum af öðrum verkefnum sem unnin eru af grasrótinni. Verum virk í starfinu á nýju ári, fáum fleiri til að taka þátt, ræktum líkama og sál og lát- um gott af okkur leiða. Ungmennafélagar, verum öflug á nýju ári og látum hendur standa fram úr ermum. Fyrir hönd stjórnar og starfsmanna Ung- mennafélags Íslands óska ég ykkur gleðilegs nýs árs með ósk um farsælt samstarf og samskipti á komandi ári. Íslandi allt! Helga Guðrún Guðjónsdóttir Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ: Eitt kort 38 vötn 6.900 kr www.veidikortid.is 00000 Aldrei fleiri vötn! JÓL AGJ ÖF V EIÐI MA NNS INS!

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.