Skinfaxi - 01.11.2014, Blaðsíða 8
8 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Okkur langaði til að búa til
fjórða íshokkíliðið
„Upphafið að stofnun deildarinnar og að
við myndum senda lið til þátttöku í deildinni
í vetur var að okkur nokkra félagana langaði
til að búa til fjórða íshokkíliðið. Um árabil
hafa aðeins verið þrjú lið í deildinni, en síðan
kom nýtt lið sem starfaði aðeins í stuttan
tíma. Því gekk illa og allir leikirnir töpuðust.
Það var því ekki auðvelt að koma fram með
nýtt lið og þó nokkrar hindranir urðu á vegi
okkar. Ljóst var að við yrðum að koma okkur
undir hatt ungmennafélags eða íþróttafélags
til að komast í aðstöðu með liðið okkar. Við
settum okkur í samband við Ungmennasam-
band Kjalnesinga, áttum fundi með þeim og
þeim leist mjög vel á hugmynd okkar. Að lok-
um tilkynnum við liðið og sóttum um tíma
til ÍBR í Egilshöllinni. Þar fengum við tíma til
æfinga seint á kvöldin sem við sættum okkur
við svona í byrjun. Þegar á allt er litið er þetta
búið að vera ofsalega gaman þótt sigrarnir
hefðu mátt vera fleiri,“ sagði Gunnar Árna-
son, formaður íshokkífélagsins Esjunnar, í
samtali við Skinfaxa.
Tilbúnir að leggja mikið
á sig svo að allt gangi vel
Gunnar sagði að öll umgjörðin kringum
liðið hefði verið til fyrirmyndar. Hann sagði
að víða á spjallsíðum væri talað vel um liðið
og allir leikmenn sem og þeir aðilar sem
kæmu að liðinu væru tilbúnir að leggja mik-
ið á sig svo allt gengi vel. Gunnar sagði að í
liðinu væru fimmtán Íslendingar og tveir út-
lendingar, allt leikmenn sem hefðu leikið áður
með öðrum liðum. Þessir leikmenn byggju
því yfir ágætri reynslu sem kæmi Esju vel á
fyrsta ári sínu í deildinni. Margir hefðu haft
í hyggju að hætta en voru tilbúnir að halda
áfram þegar til þeirra var leitað.
Spennan ekki verið meiri
í mörg ár
„Þetta er búið að vera óendanlega gaman
og á ýmsu hefur gengið. Við erum búnir að
vinna óvænta og sæta sigra en auðvitað hefði
þetta mátt ganga betur. Það tekur bara tíma
Gunnar Árnason, formaður Ungmennafélagsins Esju:
Við finnum fyrir auknum stuðningi
fólks á Kjalarnesi við leikina hjá okkur
að slípa saman nýtt lið, spennan var mikil í
byrjun, en það er óhætt að segja að deildin
hafi ekki verið jafn spennandi í mörg ár. Allir
eru að vinna alla og deildin er fyrir vikið
galopin. Áhorfendum fer fjölgandi, þeir voru
kannski um hundrað í fyrra en eru núna stund-
um um þrjú hundruð á leik. Leikirnir eru jafn-
ari, stundum fara þeir í framlengingu, svo
að spennan hefur ekki verið meiri í mörg ár,“
sagði Gunnar.
Esja komin til að vera
Á Gunnari var að heyra að íshokkíliðið Esja
væri komið til að vera. „Já, það er ekki nokkur
spurning. Fyrst var að koma þessu liði á kopp-
inn. Svo ætlum við að snúa okkur að barna-
„Þegar á allt er litið er
þetta búið að vera ofsalega
gaman þótt sigrarnir hefðu
mátt vera fleiri“
Íshokkí
og unglingastarfi strax næsta vetur. Byrja
fyrst með yngstu krakkana, vinna vel með
þeim og vinna okkur svo hægt og bítandi
upp með það að markmiði að fjölga
iðkendum.“
Rogast með æfingadótið
heim eftir æfingar
Þegar Gunnar var spurður hvort íshokkí-
íþróttin væri í sókn hér á landi sagði hann
svo vera. Aðstöðuleysi hefur þó staðið íþrótt-
inni fyrir þrifum en alltaf er verið að reyna
finna lausnir. Hann nefndi sem dæmi um
aðstöðuleysi að leikmenn Esjunnar þyrftu að
rogast með æfingadótið heim eftir hverja
æfingu. Æfingataskan væri í kringum 50 kg
svo að þetta væri þó nokkuð mál í hvert
skipti. Þetta ástand myndi vonandi lagast
með tíð og tíma.
„Það sem skiptir mestu er að þetta hefur
verið ofsalega skemmtilegur tími. Við finnum
fyrir auknum stuðningi fólks á Kjalarnesi við
leikina hjá okkur og það er gaman fyrir íbúa
að eiga lið í þessari deild. Við komum inn á
sumarnámskeið hjá þeim með íshokkídótið
okkar, allir voru voða spenntir og fannst
þetta skemmtilegt.“
Stefnum ótrauðir á úrslita-
keppnina
Þegar Gunnar var spurður um framhaldið
sagði hann að það yrði skemmtilegt og ekki
síður spennandi.
„Þetta er gefandi og við verðum sterkari þeg-
ar fram í sækir. Við erum neðstir sem stendur
en stefnum ótrauðir að því að komast í úrslita-
keppnina. Þetta er bara byrjunin og við
stefnum að því að gera atlögu að titlinum
innan nokkurra ára,“ sagði Gunnar Árnason,
formaður íshokkífélagsins Esjunnar, í samtali
við Skinfaxa.
upphafi leiktíðar í íshokkí í haust vakti athygli
að nýtt lið myndi keppa í deildinni í vetur. Nýja
félagið, sem hér um ræðir, er Ungmennafélagið
Esja og heyrir undir Ungmennasamband Kjal-
nesinga. Forráðamenn félagsins störfuðu ötul-
lega í sumar við að tryggja félaginu keppnis-
rétt, gera samninga við styrktaraðila og síðast
en ekki síst að semja við leikmenn. Í