Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2014, Síða 4

Skinfaxi - 01.11.2014, Síða 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Á sambandsráðsfundi UMFÍ sem haldinn var í Garðabæ 11. október sl. var samþykkt að halda fyrsta Vetrarlandsmót UMFÍ á Ísafirði árið 2016. Hugmyndin með Vetrarlands- mótinu er að koma með atburð að vetri til í líkingu við Unglingalandsmótin að sumri og gefa þar með sem flestum krökkum tækifæri til að fara í keppnisferðir út fyrir sitt svæði og búa til möguleika til fjölskyldu- ferðalags á vetrartíma. Undirbúningsnefnd lagði til að mótið verði haldið dagana 5.–7. febrúar 2016. Miðað er við að keppni hefjist seinnipart föstudags og standi fram á sunnudag. Við tímasetninguna var gengið út frá því að Vetrarlandsmótið verði haldið fyrir mesta annatímann í móta- haldi félaga sem er frá seinnipart febrúar fram í miðjan apríl. Miðað er við að aldur þátttak- enda sé 10–14 ára, en hjá þessum aldurs- hópi eru færri mót en hjá 14 ára og eldri. Fyrirhugaðar keppnisgreinar eru skíða- ganga, alpagreinar, snjóbretti, freestyle, stiga- sleðarallý, blak, handbolti, jiujitsu og sund- bolti, þ.e. að keppt verði í hefðbundnum Fyrsta Vetrarlandsmót UMFÍ verður haldið á Ísafirði 2016 greinum eins og alpagreinum og skíðagöngu. Einnig verði keppt á snjóbrettum og freestyle- skíðum, en mikill vöxtur er í þessum greinum nú. Stigasleðarallý og sundbolti verði nýjar keppnisgreinar sem allir gætu prófað. Blak, handbolti og jiujitsu verði svo innigreinar sem ekki er keppt í á Unglingalandsmóti UMFÍ. Keppnisstaðir verða á skíðasvæðinu á Seljalandsdal, skíðasvæðinu í Tungudal, íþróttahúsinu á Torfnesi, íþróttahúsinu á Austurvegi og í sundlaug Ísafjarðarbæjar. Spennandi verkefni – mót sem býður upp á mikla möguleika „Við erum rosalega ánægð með að hafa fengið þetta verkefni sem er mjög spennandi. Mótið býður upp á mikla möguleika fyrir svæðið og við teljum okkur hafa þó nokkra reynslu í mótahaldi sem mun koma okkur að góðum notum í undirbúningi fyrir Vetrar- landsmót UMFÍ. Við hlökkum mikið til og það er ákveðin áskorun að halda fyrsta mótið af þessu tagi,“ sagði Guðný Stefanía Stefánsdóttir, formað- ur Héraðssambands Vestfirðinga. Guðný Stefanía sagðist vona að mótið verði útfært þannig að sem flestir staðir á landinu gætu haldið slíkt mót. Henni finnst mikilvægt að litlu skíðasvæðin hafi mögu- leika á að gera þetta og að kröfurnar verði aldrei svo miklar að þær kæmu í veg fyrir slíkt. „Við erum núna að finna fólk í nefnd til að vinna að undirbúningi mótsins. Væntanlega þarf að vinna í málum á keppnissvæðinu næsta sumar. Við erum að mínu mati með eitt besta og skemmtilegasta skíðasvæði landsins. Það býður upp á marga möguleika þannig að okkur er ekkert að vanbúnaði,“ sagði Guðný að lokum. Guðný Stefanía Stefánsdóttir, formaður Héraðssambands Vestfirðinga.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.