Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2014, Blaðsíða 43

Skinfaxi - 01.11.2014, Blaðsíða 43
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 43 Blönduósi 26.–28. júní 2015 Akureyri 31. júlí – 2. ágúst 2015 Sagnagarður Landgræðslunnar Saga landgræðslu í máli og myndum. Fróðleg og lifandi fræðsla um gróðursögu, landeyðingu og endurheimt landgæða á Íslandi. Upplýsingar um opnunartíma í síma 488-3000 og á land.is Landgræðsla ríkisins Þ ann 2. desember sl. var afmælisrit Ung-mennafélags Njarðvíkur formlega kynnt en það er gefið út í tilefni 70 ára afmælis félagsins. Athöfnin fór fram í íþrótta- miðstöðinni í Njarðvík að viðstöddu miklu fjöl- menni. Í ritinu er fjallað um sögu félagsins í máli og myndum. Þar má finna fróðleg viðtöl við fólk sem komið hefur við sögu í starfi félagsins og afreksmenn UMFN í gegnum árin. Ritið er prentað í 4500 eintökum og því er dreift á öll heimili í Njarðvík. Verkefnið hefur staðið yfir í þrjú ár en rit- nefndina skipuðu Viðar Kristjánsson, Hilmar Hafsteinsson, Haukur Jóhannesson, Ólafur Thordersen, Jón Bjarni Helgason og Guðjón Helgason sem er látinn. Svanhildur Eiríksdótt- ir ritstýrði ritinu. Veglegt afmælisrit Njarðvíkinga Frá vinstri: Viðar Kristjánsson, Hilmar Hafsteinsson og Svanhildur Eiríksdóttir. U ngmennafélag Íslands rekur Ungmenna- og tómstundabúðir á Laugum í Dalabyggð. Þær eru ætlaðar nemendum í 9. bekkjum grunn- skólanna sem dvelja þar frá mánudegi til föstudags við leik og störf. Viðburðir eru í formi námskeiða sem tengjast meginstoðum Ungmennabúðanna, en þær eru menning, útivist, hreyfing og félagsfærni. Markmiðið með dvölinni á Laugum er að styrkja félagsfærni ungl- inga, efla vitund þeirra fyrir umhverfi sínu og samfélagi ásamt mikilvægi þess að hafa heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi. Ungmenna- og tómstundabúðirnar hófu starfsemi sína árið 2005. Árlega koma um 1800 ungmenni í búðirnar. Verð fyrir dvöl í búðunum er 21.000.- á nemanda árið 2014–2015. Innifalið er dagskrá, gist- ing, matur, dagsferð, drykkjarflaska og bolur. P étur Eyþórsson, Glímufélaginu Ármanni, og Eva Dögg Jóhannsdóttir, UÍA, voru valin glímufólk ársins 2014, en stjórn Glímusambandsins ákvað þetta á stjórnarfundi sem haldinn var á dögunum. Pétur Eyþórsson er 36 ára gamall og hefur stundað glímu í yfir tuttugu ár. Pétur var sigur- sæll á árinu, líkt og undanfarin ár, en helsta afrek hans var þegar hann sigraði Íslands- glímuna og hlaut þar með Grettisbeltið í níunda sinn sem gerir hann að einum sigur- sælasta glímukappa Íslands frá upphafi. Eva Dögg Jóhannsdóttir, sem er 19 ára gömul, átti góðu gengi að fagna á glímuvell- inum árið 2014. Hún tók þátt í öllum glímu- mótum ársins og var ávallt í verðlaunasæti. Eva keppti einnig á Evrópumeistaramótinu í keltneskum fangbrögðum þar sem hún hlaut ein silfurverðlaun og tvenn brons- verðlaun í -63 kg flokki. Hún sigraði einnig nokkur alþjóðleg mót á árinu og varð meðal annars skoskur meistari í backhold. Eva Dögg þykir fyrirmyndaríþróttakona, jafnt innan vallar sem utan. Eva Dögg og Pétur glímufólks ársins

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.