Skinfaxi - 01.11.2014, Qupperneq 43
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 43
Blönduósi
26.–28. júní 2015
Akureyri
31. júlí – 2. ágúst 2015
Sagnagarður Landgræðslunnar
Saga landgræðslu í máli og myndum.
Fróðleg og lifandi fræðsla um gróðursögu,
landeyðingu og endurheimt landgæða á Íslandi.
Upplýsingar um opnunartíma í síma 488-3000 og á land.is
Landgræðsla ríkisins
Þ ann 2. desember sl. var afmælisrit Ung-mennafélags Njarðvíkur formlega kynnt en það er gefið út í tilefni 70 ára
afmælis félagsins. Athöfnin fór fram í íþrótta-
miðstöðinni í Njarðvík að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Í ritinu er fjallað um sögu félagsins í
máli og myndum. Þar má finna fróðleg viðtöl
við fólk sem komið hefur við sögu í starfi
félagsins og afreksmenn UMFN í gegnum
árin. Ritið er prentað í 4500 eintökum og því
er dreift á öll heimili í Njarðvík.
Verkefnið hefur staðið yfir í þrjú ár en rit-
nefndina skipuðu Viðar Kristjánsson, Hilmar
Hafsteinsson, Haukur Jóhannesson, Ólafur
Thordersen, Jón Bjarni Helgason og Guðjón
Helgason sem er látinn. Svanhildur Eiríksdótt-
ir ritstýrði ritinu.
Veglegt afmælisrit Njarðvíkinga
Frá vinstri: Viðar Kristjánsson, Hilmar Hafsteinsson og Svanhildur Eiríksdóttir.
U ngmennafélag Íslands rekur Ungmenna- og tómstundabúðir á Laugum í Dalabyggð. Þær eru
ætlaðar nemendum í 9. bekkjum grunn-
skólanna sem dvelja þar frá mánudegi
til föstudags við leik og störf. Viðburðir
eru í formi námskeiða sem tengjast
meginstoðum Ungmennabúðanna, en
þær eru menning, útivist, hreyfing og
félagsfærni. Markmiðið með dvölinni á
Laugum er að styrkja félagsfærni ungl-
inga, efla vitund þeirra fyrir umhverfi
sínu og samfélagi ásamt mikilvægi þess
að hafa heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi.
Ungmenna- og tómstundabúðirnar hófu
starfsemi sína árið 2005. Árlega koma
um 1800 ungmenni í búðirnar. Verð fyrir
dvöl í búðunum er 21.000.- á nemanda
árið 2014–2015. Innifalið er dagskrá, gist-
ing, matur, dagsferð, drykkjarflaska og
bolur.
P étur Eyþórsson, Glímufélaginu Ármanni, og Eva Dögg Jóhannsdóttir, UÍA, voru valin glímufólk ársins 2014,
en stjórn Glímusambandsins ákvað þetta á
stjórnarfundi sem haldinn var á dögunum.
Pétur Eyþórsson er 36 ára gamall og hefur
stundað glímu í yfir tuttugu ár. Pétur var sigur-
sæll á árinu, líkt og undanfarin ár, en helsta
afrek hans var þegar hann sigraði Íslands-
glímuna og hlaut þar með Grettisbeltið í
níunda sinn sem gerir hann að einum sigur-
sælasta glímukappa Íslands frá upphafi.
Eva Dögg Jóhannsdóttir, sem er 19 ára
gömul, átti góðu gengi að fagna á glímuvell-
inum árið 2014. Hún tók þátt í öllum glímu-
mótum ársins og var ávallt í verðlaunasæti.
Eva keppti einnig á Evrópumeistaramótinu
í keltneskum fangbrögðum þar sem hún
hlaut ein silfurverðlaun og tvenn brons-
verðlaun í -63 kg flokki. Hún sigraði einnig
nokkur alþjóðleg mót á árinu og varð meðal
annars skoskur meistari í backhold. Eva Dögg
þykir fyrirmyndaríþróttakona, jafnt innan
vallar sem utan.
Eva Dögg og Pétur glímufólks ársins