Skinfaxi - 01.11.2014, Blaðsíða 37
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 37
H arpa Þorláksdóttir hefur gegnt for-mennsku í Íþróttafélaginu Gerplu frá 2013, en hún sat áður í stjórn félags-
ins. Harpa sagði í samtali við Skinfaxa að það
væri gríðarlega mikil starfsemi innan Gerplu.
Stærsta íþróttadeild landsins
„Iðkendur hjá okkur í dag eru um 1700 og
starfsmenn 120. Gerpla er því stærsta ein-
staka íþróttadeildin á landinu hvað iðkenda-
fjölda snertir. Við erum með áhalda- og hóp-
fimleikadeild og almenna deild þar sem auk
barna, unglinga og fullorðinna eru einnig
flokkar fyrir fatlaða einstaklinga. Svo bjóðum
við upp á parkour sem er vinsælt meðal
drengja.
Það er gaman að segja frá því að félagið
fékk fyrir skemmstu jafnréttis- og mannrétt-
indaviðurkenningu Kópavogsbæjar sem við
erum afar stolt af,“ sagði Harpa.
Við önnum ekki eftirspurn
Fimleikar hafa notið mikilla vinsælda hér
á landi í mörg ár og hefur iðkendum fjölgað
jafnt og þétt. Harpa var innt eftir hvort Gerpla
annaði eftirspurn.
„Nei, því miður önnum við ekki eftirspurn
og það eru biðlistar hjá okkur. Þeir eru mis-
langir eftir því á hvaða aldri börnin eru, en
sumir hafa beðið í allt að þrjú ár eftir plássi.
Við erum í góðu samstarfi við yfirvöld í Kópa-
vogi um að finna lausn á því máli en við mun-
um fá aðstöðu í íþróttahúsi sem mun rísa
við Vatnsendaskóla og verður sérsniðið að
fimleikum.“
Frá morgni til kvölds
- Hvernig er nýting íþróttahússins í Versölum?
„Fimleikahúsið er í notkun frá því á morgn-
ana til klukkan rúmlega tíu á kvöldin. Við vor-
um með gríðarlegan fjölda inni í salnum á
hverjum tíma en þegar það var farið að bitna
á iðkendum og þjálfurum settum við okkur
það markmið að iðkendur yrðu aldrei fleiri en
200 í húsinu í einu. Við höfum ekki komist hjá
því að leigja aðstöðu fyrir okkar eigin iðkend-
ur í íþróttahúsum í öðrum bæjarfélögum.“
Góður árangur skiptir máli
- Hver er ástæðan fyrir svona miklum vinsæld-
um fimleika hér á landi?
„Ástæðan fyrir því er fyrst og fremst sú að
fimleikar eru gríðarlega góð alhliða íþrótt.
Svo hefur það einnig haft mikið að segja að
fimleikafólk hefur náð góðum árangri bæði í
áhaldafimleikum og hópfimleikum. Það hefur
haft í för með sér góða kynningu fyrir fimleik-
ana almennt og enn fremur hvað við höfum
átt góðar fyrirmyndir. Með tilkomu hópfim-
leikanna upp úr 1990 jókst framboðið til fim-
leikaiðkunar enn frekar. Líftími iðkenda í fim-
leikum er líka að lengjast og við sjáum eldri
iðkendur bæði í áhalda- og hópfimleikum en
áður. Margir sjá líka tækifæri í því að færa sig
yfir í hópfimleika eftir að áhaldafimleikaferli
lýkur og eiga þá jafnvel mörg ár eftir í fimleik-
um. Það má því með sanni segja að iðkendur
í fimleikum séu að eldast sem er jákvæð
þróun,“ sagði Harpa.
Yngstu börnin byrja fyrr
- Hvað með uppeldishlutverk félagsins?
„Það má segja að það gegni mjög mikil-
vægu uppeldishlutverki. Börn og unglingar
stunda íþróttir mikið og forvarnagildið er
mikilvægt. Við erum farin að tvinna það betur
saman þannig að yngstu börnin geti byrjað
fyrr á daginn til að æfingum þeirra sé lokið
þegar vinnudegi foreldranna lýkur. Það tekst
ekki alltaf því að við búum við húsnæðis-
skort en við reynum samt eftir fremsta
megni að vinna þetta vel í samvinnu við alla
aðila.“
Gríðarleg bylting með Versölum
- Hverju breytti nýja fimleikahúsið í Versölum
fyrir ykkur?
„Það var gríðarleg bylting og Versalir eru
mjög fínt fimleikahús. Aðstaðan skiptir öllu
máli og við hér í Kópavogi búum almennt
séð vel í þeim efnum. Bæjaryfirvöld hafa
stutt vel við bakið á okkur.“
Fimleikar eru í miklum vexti
- Hvernig sérðu fyrir þér stöðu fimleika á næstu
árum?
„Ég held að iðkendum eigi bara eftir að
fjölga á næstu misserum. Þeim hefur fjölgað
mun hraðar en spár gerðu ráð fyrir þannig
að þessi íþrótt er í miklum vexti. Fimleikar
eru góð alhliða íþrótt þar sem reynir á flesta
hluta líkamans. Það eru stórir árgangar að
koma upp í Kópavogi og því sé ég fjöldann
bara aukast í framtíðinni. Það er mikil gróska
og vöxtur í fimleikastarfinu og ekki ástæða
til annars en að vera bjartsýn. Við höfum á
að skipa frábæru starfsfólki, iðkendurnir
eru jákvæðir og metnaðarfullir, þannig að
starfið getur ekki annað en dafnað og vaxið
og framtíð Gerplu er því mjög björt,“ sagði
Harpa Þorláksdóttir, formaður Gerplu.
Harpa Þorláksdóttir, formaður Gerplu:
Fimleikar eiga bara eftir að vaxa og dafna
Íþróttafélagið Gerpla