Skinfaxi - 01.11.2014, Síða 11
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 11
Halldór Axelsson, formaður Skotíþróttasambands Íslands:
Það er meðbyr og
hann ætlum við að nýta
Þ að eru alltaf að koma inn ný félög og í því sambandi má nefna félög í Borgarnesi og fyrir vestan og austan. Þau eru mörg hver að koma í stað-
inn fyrir þau sem voru fyrir. Aukn-
ingin er mest hvað iðkendur snertir. Þar erum
við tala um 10–15% á hverju ári. Þetta má
þakka góðri kynningu og að einhverju leyti
skotvopnaleyfunum. Innan okkar raða í dag
eru iðkendur um fjögur þúsund,“ sagði Hall-
dór Axelsson, formaður Skotíþróttasambands
Íslands, í viðtali við Skinfaxa.
Tók okkur um 10 ár
Halldór sagðist vera afar stoltur af fram-
gangi íþróttarinnar hér á landi. Við eigum
marga efnilega unga skotmenn og svo eig-
um við skotmenn sem hafa komið sér fyrir á
meðal þeirra hundrað bestu á heimslistan-
um. Halldór sagði að það hefði tekið um tíu
ár að koma þessu á þann stall sem íþróttin
er í dag.
„Við höfum byggt þetta upp með öðru-
vísi hætti en mörg önnur sambönd að því
leytinu til að við höfum ekki verið með starf-
andi landslið heldur reynum við að styðja við
bakið á hverjum einstaklingi fyrir sig. Það
hefur við gert m.a. með því að viðkomandi
einstaklingur fái þjálfun erlendis af því að við
erum ekki í stakk búnir til að vera með topp-
afreksþjálfun hér heima,“ sagði Halldór.
Hægt að stunda langt
fram eftir aldri
- Geta allir tekið þátt í skotíþróttum?
„Þetta er líklega sú íþrótt sem flestir geta
stundað, vegna þess m.a. að hægt er að
stunda íþróttina langt fram eftir aldri. Það
sem truflar okkur hér á landi er að unglingar
geta ekki byrjað nógu snemma en það kemur
til af byssunum sjálfum. Keppandi verður að
hafa náð 15 ára aldri til að geta keppt en má
ekki skjóta nema innan skotvalla. Hann má
ekki heldur taka þátt í keppni með skamm-
byssu á þessum aldri.“
„Við höfum ekki verið með
starfandi landslið heldur reynum
við að styðja við bakið á hverjum
einstaklingi fyrir sig.“
Hefðin er sterk á
Norðurlandi
- Telur þú að þessi íþrótt eigi eftir að eflast?
„Já, vonandi eftir mikla fjölgun þátttak-
enda undanfarin ár og þá sérstaklega á lands-
byggðinni. Vellir eru víða og hefðin hefur
alltaf verið sterk á Norðurlandi.
Ásgeir á meðal 30 efstu
á listanum
Besti skotmaður okkar, Ásgeir Sigurgeirs-
son, og framganga hans hefur líka verið góð
auglýsing. Ásgeir tryggði sér á dögunum
keppnisrétt á Evrópumótinu sem er frábær
árangur en þar keppa 30 efstu á listanum.
Við eigum nokkra mjög góða skotmenn sem
eiga eflaust eftir að láta að sér kveða í fram-
tíðinni. Það er ekki annað hægt en að vera
bjartsýnn, það er meðbyr og hann ætlum
við að nýta,“ sagði Halldór Axelsson, for-
maður Skotíþróttasambands Íslands, að
lokum í samtalinu við Skinfaxa.