Skinfaxi - 01.11.2014, Blaðsíða 31
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 31
S tarfsemi HSÞ geng-ur vel í dag og aðildarfélög sam-bandsins eru mörg
hver mjög virk. Það er búið
að vera mikið af verkefnum
í gangi í tengslum við afmælis-
árið. Það hefur eflt alla undirstarfsemina svo
að þá má segja að skemmtileg starfsemi sé á
svæðinu akkúrat í dag,“ sagði Jóhanna Krist-
jánsdóttir, formaður HSÞ, þegar ritstjóri Skin-
faxa settist niður með henni til að fræðast
örlítið um HSÞ, en sambandið fagnaði ný-
lega merkum áfanga er það varð 100 ára.
HSÞ hefur gegnt mikil-
vægu hlutverki í heila öld
Jóhanna hefur gegnt formennsku í HSÞ í
fimm ár og segir starfið gefandi og skemmti-
legt. Hún sagði að héraðssambandið skipti
miklu máli á svæði sínu. Sambandið væri
hornsteinn í héraði og væri búið að gegna
miklu hlutverki í heila öld. Starfið hefði skilað
miklu fyrir samfélagið, í tengslum við byggða-
mál, samgöngur og ekki síst menntamál. Hún
sagði að starfið hefði ekki eingöngu snúist um
íþróttamál í gegnum tíðina.
Starfið snýst um miklu
meira en bara íþróttir
„Héraðssamböndin sinna ekki bara íþrótt-
um og íþróttasinnuðum viðburðum. Starfið
er miklu meira. Verkefnin eru allt önnur í dag
en fyrir einhverjum áratugum. Það kemur m.a.
til af því að Héraðssamband Þingeyinga er
nú sameinað Ungmennasambandi Norður-
Þingeyinga og Héraðssambandi Suður-Þing-
eyinga. Þegar aðildarfélögin voru færri og
svæðin minni voru verkefnin mjög ólík því
sem er í dag. Samböndin eru orðin meiri regn-
hlífarsamtök og halda utan um 31 aðildar-
félag sem eru sjálfstæðari en áður. Áður fyrr
sáu stjórnir Héraðssambands Suður-Þingey-
inga og Ungmennasambands Norður-Þing-
eyinga að mestu leyti um verkefni á borð við
mótshald svo eitthvað sé nefnt. Héraðssam-
bandið styður miklu fremur við aðildarfélög
sín í dag en áður,“ sagði Jóhanna.
Áherslurnar hafa breyst
með tíð og tíma
- Hefur aðildarfélögum fjölgað á síðustu árum?
„Já, þannig hefur það orðið og gaman er
að sjá hver breytingin hefur orðið í gegnum
tíðina. Núna erum við komin með mjög virkt
skákfélag og landsliðsmenn í skák. Við erum
líka allt í einu komin með öfluga bogfimi og
höfum náð ótrúlegum árangri á allra síðustu
árum. Ennfremur erum við með aksturs-
íþróttaklúbb og vorum m.a. með mótocross
á Landsmótinu 2013. Svo má líka nefna golf
og hestaíþróttir. Núna er komin golfdeild
innan eins aðildarfélags okkar sem er mjög
spennandi. Áherslurnar hafa breyst með tíð
og tíma sem er hið besta mál. Hér áður fyrr
voru glíma, frjálsar íþróttir, sund og knatt-
spyrna aðalgreinarnar.“
Aðstaðan mætti vera betri
- Hvað með aðstöðuna sem iðkendur búa við?
„Aðstaðan mætti alltaf vera betri. Það vant-
ar töluvert upp á aðstöðu í stærsta bæjarfélagi
okkar. Aðstaðan á Laugum er aftur á móti til
fyrirmyndar en það er langt fyrir marga að
sækja þangað æfingar. Starfssvæði okkar er
stórt en það nær frá Grenivík til Bakkafjarðar.
Það er því erfitt fyrir þá sem eru langt í burtu
að sækja allt í Laugar í Reykjadal og land-
fræðilega er það ekki auðvelt. Uppbygging
íþróttamannvirkja hefur ekki orðið eins og
við hefðum vonast eftir og í þeim efnum þarf
að gera miklu betur. Við erum alltaf að ýta
við sveitarfélögunum en það er í þeirra valdi
á hverjum stað að ákveða hvað gert er í þess-
um efnum. Eins og við vitum er fjárhagur
sveitarfélaga ekki öflugur nú um stundir.
Þetta verður því erfitt og á brattann að sækja
en hins vegar er mjög mikilvægt að við reyn-
um að byggja upp íþróttamannvirki jafnt og
þétt þannig að við höfum bestu aðstæður að
bjóða,“ sagði Jóhanna.
Við eigum mörg tækifæri
og margt ógert
- Ertu ekki stolt af HSÞ og þeim verkefnum sem
það hefur stýrt í gegnum tíðina?
„Ég er verulega stolt af HSÞ, hef alltaf verið
það og er mikill Þingeyingur í mér. HSÞ-hjart-
að slær fast í brjósti mér. Ég sé ekki annað en
að starfsemi HSÞ muni eflast jafnt og þétt í
framtíðinni. Við eigum svo mörg tækifæri og
það er margt sem við eigum ógert og við
getum bætt í á mörgum sviðum. Þetta snýst
að miklu leyti um að halda vel utan um hlut-
ina, vera vel vakandi og hafa góða yfirsýn.
Styðja og styrkja vel aðildarfélögin en þar er
mannauðurinn. Starfið snýst að verulegu
leyti um sjálfboðaliðann og það verkefni
finnst mér fara dvínandi, því miður. Það er
orðið vandamál í dag að efla starf sjálfboða-
liða en það er eitt af hlutverkum héraðssam-
bandsins að halda vel utan um að störf þeirra
haldist í héraði. Það er ekki sjálfgefið að fólkið
hoppi af götunni og fari að vinna sem sjálf-
boðaliðar. Það þarf að sækja þennan mikil-
væga hlekk og við þurfum að minna okkur á
það að við höfum ákveðnar samfélagslegar
skyldur. Að mínu viti er þetta að tapast hjá
yngri kynslóðinni í dag. Þeim finnst að þau
eigi að fá allt upp í hendurnar en við verðum
að leggja áherslu á að breyta því. Það er
stórt, ögrandi og krefjandi verkefni að sinna
þessari samfélagsskyldu.“
Þurfum að nýta tækifærin
og vinna betur með öðrum
- Hvernig sérðu framtíð HSÞ fyrir þér?
„Ég tel að hún sé björt. Það er margt að
gerast og við vitum að það er ýmislegt að
breytast sem tengist íþróttahéruðunum.
Við verðum að horfa á það sem spennandi
verkefni inn í framtíðna. Við þurfum líka að
nýta tækifærin til að vinna betur með öðrum
samböndum,“ sagði Jóhanna Kristjánsdóttir,
formaður Héraðssambands Þingeyinga.
Jóhanna Kristjánsdóttir, formaður HSÞ:
HSÞ-hjartað slær fast í brjósti mér
„Uppbygging íþróttamannvirkja
hefur ekki orðið eins og við
hefðum vonast eftir og í þeim
efnum þarf að gera miklu betur“
„Þetta snýst að miklu leyti
um að halda vel utan um
hlutina, vera vel vakandi
og hafa góða yfirsýn“.